Morgunblaðið - 27.04.2004, Síða 42

Morgunblaðið - 27.04.2004, Síða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Lalli lánlausi ÞÚ FÉLST AFTUR LALLI. ENN EITT NÚLLIÐ © LE LOMOMBARD Grettir Grettir Smáfólk HVERT ERT ÞÚ AÐ FARA? EKKI NEITT HINGAÐ OG EKKI LENGRA LEITT AÐ KOMA SEINT ÞAÐ ÞYKIR ÞÉR ÖRUGGLEGA NÚNA ÞEGAR VIÐ ERUM BÚIN MEÐ SKÓNA OF ÁVEXTINA SÆLL... ÞÚ HEFUR VERIÐ VALINN Í SÉRSTAKT VERKEFNI ÞEGAR MAÐUR ER VALINN Í SÉRSTAKT VERKEFNI AF YFIRHUNDINUM ÞÁ KVEÐUR MAÐUR ALLA OG DRÍFUR SIG! ÉG HEF ALDREI HITT NEINN SEM HEFUR VERIÐ VALINN Í VERKEFNI AF YFIR- HUNDINUM ÁÐUR NÚ SKALT ÞÚ SKRIFA 100 SINNUM MARG- FÖLDUNARTÖFLUNA MEÐ ÁNÆGJU FINNST ÞÉR ÞAÐ FYNDIÐ!! JÁ HERRA, REFSINGAR ERU EINS OG GRÁU HÁRIN. EFTIR SMÁ TÍMA TEKUR MAÐUR EKKI LENGUR EFTIR ÞEIM HUGSAÐU ÞÉR SKÓLASTJÓRI, ÞESSI TOSSI KANN EKKI MARGFÖLDUNARTÖFLUNA SVONA, SVONA, HANN HLÝTUR AÐ KUNNA EITTHVAÐ NEI, EKKERT!!! ALHEIMS TÓMIÐ!! BOTLAUST TÓM EINS OG FJÁRLÖG HEILBRIGÐISKERFISINS AFSAKIÐ, ÉG KEM STRAX AFTUR LALLI HVAÐ ERT ÞÚ AÐ GERA HÉR ÉG VEIT AÐ ÞETTA ER KENNARA- STOFAN. ÞIÐ MEGIÐ EKKI HALDA AÐ ÉG SÉ AÐ FARA AÐ VINGAST VIÐ ÓVININN. EN HÉR ER LJÓSRITUNARVÉLIN LJÓSRITUNARVÉL? SAGÐIR ÞÚ MÉR EKKI AÐ SKRIFA 100 SINNUM MARGFÖLDUNAR ATÖFLUNA NÚ, HÉRNA ER ÞETTA ALLT SAMAN ÉG BIÐ SVO AÐ HEILSA HINU LÁGLAUNALIÐINU Á KENNARASTOFUNNI TAKTU NÚ ÞESSU BARA MEÐ RÓ. SKÓLASLITIN VERÐA EFTIR 30 DAGA BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. MAN ég þá tíð þegar stjórnvöld á Íslandi skikkuðu almenning að neyta smjörlíkis í stað smjörs. Gefnir voru út skömmtunarseðlar til handa fjölskyldum landsins svo að þær eyddu ekki um efni fram. Allt var skömmtunum yf- irvalda háð. Allri neyzlu almenn- ings var stýrt of- an frá af valdhöf- um sem sjálfir gátu farið í kring um reglurnar sem og þeirra nánustu gæðingar. Ekkert skorti á heimilum þeirra. Fjölskyldur þeirra ólust upp við þann „eðlilega veruleika“ að finna sig hafnar yfir náungann og sam- borgarann, sem varð að láta sér lynda það sem í hann var hreytt. Ekki þóttu það „góðar tvíbökur“ og var því fyrirkomulagi breytt eins og allir vita. Enn er þó til fólk sem finnst það æðra öðrum samborg- urum og eiga betra skilið en þeir. Smjör frekar en smjörlíki. Man ég þá tíð þegar fjármunir til heilbrigðismála voru í höndum sjúkrasamlags og peningarnir sem fólk greiddi til þess voru eyrna- merktir velferðarkerfi þjóðarinnar. Aurarnir fóru einungis í það verk- efni. Ekki til sendiráðsbygginga úti í heimi, ekki til svonefndra „menningarmála“, ekki til sæ- greifa, ekki til gírugra sjálfskömm- untargæðinga og eiginkökusk- arara. Þá hafði fólk von um að það fengi eðlilega umönnun og nauð- synlega meðhöndlun, þegar og ef það þyrfti á því að halda seinna á lífsleiðinni. Almennt sá samborg- arinn ekki eftir þessum greiðslum til sjúkrasamlagsins, enda var tryggt að þær kæmu honum sjálf- um til góða, hvenær svo sem það yrði. Í trausti þess greiddi fólk sitt framlag til samábyrgðarinnar umyrðalaust. Auðvitað þurfti verkstjórn og fjárvörslu, en hún var auðveldari og liprari í þá daga, þar sem þetta fé var ætlað til fyrrgreinds mála- flokks og einskis annars. Langt um liðið Síðan hefur töluvert vatn runnið til sjávar. Nú vaða allir í óskil- greindan, sameiginlegan pott og hver ráðherra, hver embættismað- ur, já reyndar hver sem vettlingi getur valdið reynir bara sem mest hann má að moka til sín úr hrúg- unni til þess að hygla sér og sínum skjólstæðingum og áhugamálum þeirra. Framleiðsla sérfræðinga, (þ.e. þeirra sem vita mikið um fátt), hef- ur margfaldast og pólitískir frama- potarar og eignhagsmunaseggir hafa tröllriðið þjóðfélaginu um ára- tuga skeið á kostnað þeirra sem hafa grundvallarréttlæti og hags- muni almennings í landinu að leiðarljósi í lífinu. Þeir sem hafa svokallaða almenna dómgreind, (þ.e. þeir sem vita sitthvað um margt), virðast hins vegar vera að týna tölunni. Allt er útreiknað af sérfræðingum og ályktað af nefnd- um sérfróðra. Því miður virðist marga þeirra vanta „common sense“, og ekki skánar það þegar þeim er þjappað saman í hóp, sem ætlað er að komast að sameigin- legri niðurstöðu um mál sem varða aðra. Þá er með samningum komist að útþynntum málamiðlunum, sem ekki eru einu sinni fjarskyldar grundvallarréttlætinu, sem þeir voru fengnir til að vernda, og svo ganga allir nefndarmenn af fundi sælir og sáttir við sjálfa sig, hver við annan og vel unnin störf. Nú skal ennþá einu sinni vegið í sama knérunn. Áfram skal tekjulausum, sjúkum öryrkjum og öldruðum gert að greiða meira til að halda lífi. Lyfin sín skulu þeir greiða sem þjást, hvað sem tautar og raular. Við getum svo sem skaffað þeim ódýr eftirhermilyf ef þeir þurfa eitthvað til að japla á. Smjörlíki. Við vitum hins vegar að mörg eftir- hermilyfin eru ekkert lík þeim sem við þurfum. Enn ein niðurstaða sérfróðra nefndarmanna hefur litið dagsins ljós. Látum þá greiða sem njóta. Vegna þess að óprúttnir lyfjaheild- salar, innflytjendur lækninga- tækja, smásalar og fégráðugir læknar hafa mokað til sín svo miklu af hrúgunni að ekkert er eft- ir, skal hinn ósjálfbjarga öreigi borga brúsann. Kostnaðurinn er orðinn svo gífurlegur að segja þarf upp „skúringakonunum“ og þú átt ekkert með að verða veikur eða hrumur nema að eiga fyrir því í buddunni. Samt eru allar deildir yfirfullar af sjúklingum. Hvernig er þetta hægt? Hvers konar hugmyndir og til- finningar hrærast inni í þessum þykkhausum, sem kjörnir eru af þjóðinni til þess að taka á þessum málum? Er eitthvað þarna inni? Er ekki allt í lagi heima hjá þeim? Ekki vantar verkstjórn Það segir sig sjálft að það vantar alla verkstjórn í þennan málaflokk. Þetta gengur ekki. Það er alveg öruggt að meirihluti þjóðarinnar vill að á þessum málum sé tekið af viti og skynsemi, ábyrgð, festu og réttlæti. Auðvitað eiga þeir sem kjörnir eru af þjóðinni að sjá sjálfir um verkstjórnina, en ekki skipa stanslaust þúsundir nefnda svo- kallaðra „sérfræðinga“ til þess að losna undan vinnuskyldunni. Réttlæti? Lítilmennskan er orðin hroðalegur blettur á stjórnvöldum landsins okkar. Þau ættu að skammast sín, segja af sér og hunzkast heim til sín ef þau geta ekki sinnt þeim verkum sem þau voru kjörin til að vinna. Hvað á að gera? Það virðist stundum réttlátara að taka þessa sjúklinga af lífi, skjóta þá bara á færi, í stað þess að halda áfram að pína þá til dauða á þennan grimmúðlega og andstyggi- lega hátt, yfirfulla af samviskubiti fyrir það að vera baggar á þjóðinni og geta ekki rönd við reist. STEFÁN AÐALSTEINSSON, Melgerði 24, 108 Reykjavík, stolla@isl.is Lítilmennska Frá Stefáni Aðalsteinssyni:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.