Morgunblaðið - 27.04.2004, Síða 44

Morgunblaðið - 27.04.2004, Síða 44
DAGBÓK 44 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag eru væntanleg Arnarfell og Lómur. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag eru væntanleg Skarus og Koralnes. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5. Fataúthlutun þriðju- daga kl. 16–18. sími. 867 7251. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 bað og vinnustofa, kl. 9 jóga, kl. 13 postulíns- málun. Hársnyrting, fótaaðgerð. Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og handavinna, kl. 9–12.30 bókband, kl. 9 leikfimi, kl. 9.30 dans, kl. 9.45 boccia, kl. 13– 16.30 smíðar, kl. 20.30 línudans. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 10– 11.30 sund, kl. 14–15 dans, kl. 15 boccia. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað og hárgreiðsla, kl. 10 samverustund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 handavinnustofan opin og vefnaður, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið Furu- gerði 1. Í dag kl. 9 að- stoð við böðun, kl. 13 frjáls spilamennska. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Opin vinnu- stofa 9–16.30, leikfimi kl. 10–11, versl- unarferð í Bónus kl. 12.40, bókabíllinn á staðnum kl. 14.15–15. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10 hársnyrting, kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf eldri borg- ara Mosfellsbæ, Dval- arheimilinu, Hlað- hömrum. Kl. 13–16 föndur, spil og bók- bandsnámskeið, kl. 16– 17 leikfimi og jóga. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Karla- leikfimi kl. 13. Þeir sem koma með muni á vorsýninguna eru beðnir um að koma með þá í safn- aðarheimilið í dag. Lokað í Garðabergi. Kirkjan er með opið hús í safnaðarheim- ilinu. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Kl. 9 Moggi, rabb, kaffi. Kl. 10 ganga. Kl. 11.30 leikfimi. Kl. 13 saumar, brids og glerskurður. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Skák kl. 13. Miðvikud.: Göngu- Hrólfar ganga frá Ás- garði kl. 10. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar, m.a. glerlist. Kl. 10 létt ganga. Kl. 13 boccia. Sími 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 10–17 handavinna, kl. 9.30 gler og postu- línsmálun, kl. 9.05 og kl. 9.55 leikfimi, kl. 10.50 róleg leikfimi, kl. 14 ganga, kl. 14.45 boccia, kl. 19 brids. Í dag kl. 14 kemur kór Snælandsskóla í heim- sókn. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.05 og 9.55 leikfimi, kl. 9. 15 postu- línsmálun, kl. 10 ganga, kl. 13–16 handavinnustofan op- in, leiðbeinandi á staðnum. Hraunbær 105. Kl. 9 postlín og glerskurður, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 versl- unarferð, kl. 13 mynd- list, línudans og hár- greiðsla. kl. 15 línudans. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9. 30 boccia, kl. 9–16.30 handavinna, kl. 13.30 helgistund. Fótaað- gerðir virka daga, hár- snyrting þriðju- til föstudags. Korpúlfar Grafarvogi. Miðvikudagur: Fundur í Miðgarði kl. 10. Norðurbrún 1. Kl. 9- 16.45 opin vinnustofa, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10–11 boccia, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 skinnasaumur, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.15–16 postulín, kl. 10.15–11. 45 enska, 13– 16 spilað og bútasaum- ur. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir og leik- fimi, kl. 13 handmennt, og postulín, kl. 14 fé- lagsvist. Þjónustumiðstöðin Sléttuvegi 11. Kl. 10– 12 verslunin opin, kl. 13–16 keramik, tau- málun, almennt fönd- ur, kl. 15 bókabíllinn. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum kl. 11. Félag eldri borgara í Gjábakka. Spilað brids kl. 19 þriðjud. og kl. 13.15 föstud. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði kl. 20, svar- að í s. 552 6644 á fund- artíma. Sjálfsbjörg félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu Hátúni 12. Kl. 20 opið hús, spilað UNO. Öldungaráð Hauka. Munið fundinn annað kvöld, miðvikudag, kl. 20 á Ásvöllum. Í dag er þriðjudagur 27. apríl, 118. dagur ársins 2004. Orð dags- ins: Því að náð Guðs hefur opinber- ast til sáluhjálpar öllum mönnum. (Tít. 2, 11.)     Vefþjóðviljinn segir aðminna sé um verkföll en áður. Því hafi kaup- máttur vaxið hratt síð- asta áratuginn. „Verkföll eru þó ekki óþekkt hér á landi og þegar litið er yfir tíu ára tímabilið 1993- 2002 […] má sjá að verk- föll hér á landi eru miklu algengari en í nokkru þeirra landa sem við ber- um okkur almennt saman við. Jafnvel Frakkar, sem alltaf virðast vera í verk- föllum, voru aðeins einn dag í verkfalli fyrir hverja fimm verkfalls- daga Íslendinga á þessu tímabili. Þess ber þó að geta að líklega yrði nið- urstaðan önnur ef litið yrði til allra síðustu ára.     Verkföll eru sér-kennilegt fyrirbæri, því að með þeim taka sumir sér rétt til að banna öðrum að vinna. Maður sem ýmist hefur vinnu eða er að leita sér að vinnu og býðst að vinna þegar sumir launþegar hafa ákveðið að fara í verkfall, verður að sæta því að mega ekki vinna. Hann kann að vera sáttur við það sem boðið er, en engu að síður skal hann sitja heima aðgerðarlaus vegna þess að aðrir eru ósáttir við kjör sín og krefjast þess af honum að hann aðstoði þá í kjara- baráttunni. Með slíkum aðferðum hefur verka- lýðsfélögum gjarnan tek- ist að þrýsta launum ofar en fyrirtæki ráða við, sem hefur ýmsar neikvæðar afleiðingar. Þekktustu neikvæðu afleiðingarnar hér á landi eru gengisfell- ing, verðbólga og kaup- máttarrýrnun.     En það er ekki aðeinsmeð verkföllum sem verkalýðsrekendur reyna að halda mönnum frá vinnu. Í viðtali sem birt var í tímariti á dögunum sagði formaður VR frá kjörum og kjarabaráttu. Þar kom meðal annars fram hjá formanninum að í kjarasamningi hefði ver- ið kveðið á um að versl- anir skyldu vera lokaðar á sunnudögum og um helgar yfir sumartímann. Formanninum segist þannig frá að VR hafi reynt að „reka VR-félaga úr búðum á þessum um- sömdu frídögum“, en það hafi verið „óvinnandi veg- ur því alltaf hafi ein- hverjir verið tilbúnir í að svíkja lit og vinna“. Ja, það eru nú meiri ófreskj- urnar þetta fólk sem er bara til í að svíkja lit og vinna. Fólk sem telur að það hafi sjálft rétt til að meta hvort það vinnur um helgar eða ekki hlýt- ur að vera að misskilja stöðu sína illilega. Auðvit- að er það formaður VR og aðrir forkólfar í verkalýðshreyfingunni sem eiga að ákveða hvort fólk vinnur um helgar eða ekki. Fólk sem vill verða sér úti um ein- hverjar krónur aukalega með því að vinna um helgar verður að átta sig á því að verkalýðsfélagið er best til þess fallið að meta hvað fólki er fyrir bestu.“ STAKSTEINAR Svíkja lit og vinna Víkverji skrifar... Víkverji er harður stuðningsmaðurArsenal og fagnaði því þrett- ánda Englandsmeistaratitli félags- ins innilega um liðna helgi. Það var ekki amalegt að innbyrða hann í höf- uðvígi erkióvinarins, Tottenham Hotspur, þó oft hafi liðið nú leikið betur. Það er alltaf gaman að vinna titla. Stærstu verðlaun Arsenal á þessum frábæra vetri er eigi að síður ekki meistaratitillinn heldur, eins og á síðustu árum, þetta stórbrotna lið sem Arsène Wenger hefur byggt upp. Knattspyrnan sem það leikur er unaðsleg á að horfa. Sjaldan hafa lið verið fljótari að fara milli víta- teiga og Arsenal hefur fært mönnum heim sanninn um það að þessi dásamlegi leikur, knattspyrna, er í raun afar einfaldur. Liðið í dag er besta lið sem Arsen- al hefur nokkru sinni teflt fram og líklega eitt það besta frá upphafi vega í ensku knattspyrnunni. Fari liðið í gegnum tímabilið án þess að tapa deildarleik – það eru fjórir leik- ir eftir – getur það að sönnu gert til- kall til þeirrar nafnbótar. Það yrði afrek sem seint verður leikið eftir. Þegar litið er á mannskapinn þarf þetta svo sem ekki að koma á óvart. Patrick Vieira, Robert Pires, Sol Campbell og Dennis Bergkamp eru allir í hópi bestu leikmanna sem klæðst hafa búningi Arsenal. Þarna eru líka Fredrik Ljungberg, Edu, Ashley Cole og nýstirnið Kolo Touré, að ógleymdum fulltrúa okkar dauðlegra manna, Ray Parlour. x x x Einn maður er þó fremstur meðaljafningja: Thierry Henry. Þetta franska viðundur er án efa besti fót- boltamaður samtímans. Hann hefur allt, hraða, kraft, tækni og útsjón- arsemi. Maður hélt sig hafa séð allt á síðasta tímabili en í vetur hefur hann bætt enn frekar við sig. Henry hefur þennan einstaka hæfileika til að koma fólki sífellt í opna skjöldu. Líkast til hefur manneskja ekki í annan tíma verið betur löguð til sparkiðkunar. Henry verður 27 ára gamall í sumar og Víkverja þykir tímabært að fara að máta hann við fremstu sparkendur sögunnar, menn á borð við Pelé, Diego Mara- dona, Michel Platini og Johan Cruyff. Það er auðvitað erfitt að bera menn frá ólíkum tímum saman en Henry hefur klárlega eitt fram yfir alla þessa snillinga – holdlegt at- gervi. Þar standa hinir honum langt að baki. Raunar dettur Víkverja að- eins einn hópíþróttamaður í hug til samanburðar, körfuboltamaðurinn Michael Jordan. Og það er ekki leið- um að líkjast. Oft fannst manni Jordan vera full- orðinn maður að etja kappi við börn. Slíkir voru yfirburðir hans, þó and- stæðingarnir væru yfirleitt fram- úrskarandi íþróttamenn. Víkverji fær þetta sama á tilfinninguna þegar Henry tekur flugið. Að hann sé hreinlega kominn yfir „leyfileg“ getumörk. Áfram Arsenal! Reuters Thierry Henry: Bestur frá upphafi? Einhæft eftirlit SÍÐUSTU dagana hef ég unnið uppi á Hellisheiði og þar í grennd við akstur. Það hefur vakið athygli mína hversu ötullega lög- reglan gengur fram í að stöðva vöru- og flutninga- bíla, væntanlega til þess að vigta þá og skoða aksturs- skífur og gæta þess að lög- unum sé framfylgt í hví- vetna. Verði einhverjum á í messunni, þ.e. ef bíll er of- hlaðinn eða einhverju er ábótavant varðandi ökuskrá, er viðkomandi sektaður um háar upphæðir. Ég hef ekkert við það að athuga að lögreglan sinni vinnu sinni og sjái um að far- ið sé eftir lögum og reglum. Mér finnst það hins vegar at- hyglisvert að áhugi þeirra virðist eingöngu beinast að atvinnubílstjórum, s.s. vöru- og flutningabílstjórum, en þeir láta sig lítið varða um hvort eigendur annarra far- artækja fara eftir settum reglum. Þetta nefni ég vegna þess að þennan tíma sem ég hef dvalist á Hellisheiðinni hafa fleiri bílar en ég hef tölu á verið með alltof stórar og breiðar hestakerrur í eftir- dragi. Þetta eru iðulega kerrur fyrir 4–6 hesta, bílarnir eru margir hverjir ekki með nógu breiða spegla og kerr- urnar bæði alltof stórar og þungar miðað við reglurnar. Mér er óskiljanlegt hvern- ig stendur á því að lögreglan lætur þetta afskiptalaust, en sýnir vörubílunum hins veg- ar svona ógurlega mikinn áhuga. Bílstjóri. Dýrahald Tinni er týndur TINNI hvarf frá heimili sínu í Grafarvogi á hádegi sl. laugardags. Tinni er tæp- lega tveggja ára gamall. Hann er blanda af púðli og terrier, er með svartan krull- aðan feld og lítinn hvítan hring á bringunni. Hann er ósköp tætingslegur, greyið, en okkur þykir vænt um hann og söknum hans. Sá sem hefur séð hann eða veit hvar hann er, er vinsamlega beðinn að hafa samband við Rósu í síma 567 5749, Jón í síma 822 1749 eða Ægi í síma 860 5152. Brúskur er týndur BRÚSKUR, sem er dísar- páfagaukur, flaug út um glugga í Hraunbæ 174 í gær, 26. apríl. Hann er grár með gulan haus og rauðar kinnar. Hans er sárt saknað. Þeir sem hafa séð hann hafi sam- band í síma 695 4236, 690 1915 og 567 1915. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 berja, 4 skipa fyrir, 7 falla í dropum, 8 mjólk- urafurð, 9 brún, 11 um- rót, 13 sjávardýrið, 14 gretta sig, 15 himna, 17 úrkoma, 20 púka, 22 skoðunar, 23 stórs nagla, 24 annríki, 25 peningar. LÓÐRÉTT 1 hörfar, 2 einkennis, 3 mjög, 4 bakki, 5 óglatt, 6 flýtirinn, 10 litlar öldur, 12 ætt, 13 forfeður, 15 batna, 16 spilið, 18 bál, 19 þefar af, 20 hæðir, 21 sálar. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 andhverfa, 8 gutla, 9 aflar, 10 lin, 11 spils, 13 staka, 15 hross, 18 spaði, 21 kát, 22 skapa, 23 angur, 24 rauðaldin. Lóðrétt: 2 nýtni, 3 hvals, 4 efans, 5 falla, 6 agns, 7 hráa, 12 las, 14 tap, 15 hass, 16 okana, 17 skarð, 16 stagl, 19 angri, 20 iðra. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.