Morgunblaðið - 27.04.2004, Page 48
ÍÞRÓTTIR
48 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
GUNNAR Þór Gíslason, stjórnarformaður Stoke, sagði á opnum fundi
um málefni félagsins sem fram fór í gær í Reykjavík að rekstr-
arumhverfi félagsins hefði batnað með hverju árinu sem liðið hefði frá
yfirtöku íslensku fjárfestanna sem eiga meirihluta í Stoke Holding.
„Það er gert ráð fyrir að Stoke verði rekið með um 100 millj. kr. tapi á
rekstrarárinu en fyrir ári var tapið um 170 millj. kr. og árið þar á und-
an seldum við nokkra leikmenn sem skiluðu af sér um 170 millj. kr.
hagnaði. Stjórn félagsins hefur ekki gert upp hug sinn um hver næstu
skref verða varðandi leikmannakaup en við munum taka ákvörðun um
það á næstu vikum,“ sagði Gunnar. Í máli hans kom fram að ef Stoke
City myndi ná að komast í úrvalsdeild myndi félagið fá í það minnsta 2
milljarða kr. í auknum tekjum vegna sjónvarpssamninga og annarra
tekna. Gunnar var spurður eftir því hvort von væri á auknu hlutafé í
Stoke Holding og kom fram í svari hans að slíkar þreifingar hefðu átt
sér stað en viðbrögðin hefðu ekki verið mikil enn sem komið er.
„Það horfir vel hvað varðar næstu leiktíð en nú þegar höfum við selt
9.600 ársmiða en um 6.200 ársmiðar voru seldir fyrir keppnistímabilið
sem nú er að ljúka,“ sagði Gunnar en að meðaltali hafa um 14.000
áhorfendur mætt á leiki liðsins í Stoke og er það svipaður fjöldi og
undanfarin misseri.
Stoke tapar líklega
um 100 milljónum kr.
Morgunblaðið/Eggert
Gunnar Þór Gíslason
LOKEREN, með fjóra íslenska
knattspyrnumenn innanborðs, Arn-
ar Grétarsson, Arnar Þór Viðars-
son, Rúnar Kristinsson og Marel
Baldvinsson, gæti orðið mótherji
Fylkis í Intertoto-keppninni í sum-
ar. Fylkir á að leika gegn belgísku
liði í 1. umferðinni í júní, nánar til-
tekið gegn þriðja liði Belgíu sem
þar leikur. Flest bendir til þess að
Genk, lið Indriða Sigurðssonar, og
Westerlo, sem eru í 5. og 6. sæti 1.
deildar þegar þrjár umferðir eru
eftir, verði fulltrúar Belgíu sem
koma inn í keppnina í 3. umferð.
Germinal Beerschot, sem er í 7.
sæti, hefur ekki áhuga á að taka
þátt í keppninni, þannig að liðið
sem endar í áttunda sæti fær
keppnisrétt og mætir Fylki.
Lokeren og La Louviere eru nú
jöfn að stigum í 8. og 9. sæti og
möguleikar Lokeren á að ná Inter-
toto-sætinu eru því nokkuð góðir.
Ef af því verður, mun leikurinn við
Fylki þó ekki fara fram á leikvangi
Lokeren þar sem hann uppfyllir
ekki skilyrði fyrir Evrópukeppni,
og því yrði trúlega leikið í Gent.
Talið er að Georges Leekens,
fyrrum þjálfari Anderlecht og belg-
íska landsliðsins sem nú stýrir
Moeskroen, taki við þjálfun Loker-
en í sumar. Þrátt fyrir að Lokeren
hafi gengið vel undir stjórn Franky
Van der Elst eftir áramótin, þegar
hann tók við liðinu, eru litlar líkur á
að hann verði áfram. Þetta hefur þó
ekki fengist staðfest hjá forráða-
mönnum Lokeren.
Lokeren mótherji Fylkis
í Intertoto-keppninni?
Pulis hefur dvalið hér á landi und-anfarna daga ásamt John
Rudge, samstarfsmanni sínum, og
hafa þeir fundað með stærstu hlut-
höfum í Stoke Holding. Pulis segir að
hann vonist til þess að íslensku hlut-
hafarnir haldi áfram á sömu braut
með rekstur félagsins. „Sem knatt-
spyrnustjóri er það ósk mín að fá úr
meira fé að moða, og þannig gæti ég
náð í betri leikmenn sem myndi auka
líkurnar á því að Stoke næði betri ár-
angri. En það er auðvelt að tala um að
eyða peningum sem aðrir eiga og ég
virði þá ákvörðun sem stjórn félags-
ins mun taka. Verði mér ætlað að
vinna með sama leikmannahóp án
þess að fá liðstyrk í sumar mun ég að
sjálfsögðu gera mitt besta til þess að
ná betri árangri. En ég væri að
skrökva ef ég segðist ætla að koma
liðinu upp í úrvalsdeild miðað við þær
forsendur sem við erum að vinna með
í dag. Stjórnin veit að ég hef óskað
eftir fjármagni til þess að styrkja liðið
fyrir næsta keppnistímabil og hún
mun fara yfir sín mál á næstunni.“
Pulis sagðist búast við að sam-
keppnin í 1. deild yrði enn harðari á
næsta ári þar sem von væri á liðum á
borð við Plymouth, QPR og Bristol
City upp úr 2. deild og líklega myndu
Leeds, Leicester og Wolves falla úr
úrvalsdeild. „Liðin sem koma upp úr
2. deild eru með metnað til þess að ná
langt og liðin þrjú sem falla úr úrvals-
deild fá í það minnsta hálfan milljarð
kr. á ári í tvö ár eftir fallið vegna sjón-
varpssamninga. Ég gæti vel hugsað
mér að vinna með slíkt fjármagn, til
viðbótar því sem við höfum unnið með
undanfarin misseri.“
Á fundinum í gær kom fram að
heildarlaunakostnaður Stoke á yfir-
standandi rekstrarári er um 430 millj.
kr. og eru þá öll launatengd gjöld og
kaupaukar tekið með í reikninginn.
Pulis segir að margir leikmenn séu
undir smásjánni hjá honum, líkt og
áður á þessum árstíma, en hann er á
höttunum eftir leikmönnum með rétt
hugarfar og mikinn metnað. „Það eru
of margir leikmenn sem hafa það of
gott í dag og hafa misst það hungur
sem einkennir þá sem vilja sanna sig.
Það skiptir engu máli hvaðan leik-
mennirnir eru; ef þeir uppfylla þær
kröfur sem ég geri til þeirra þá eru
þeir áhugaverðir,“ sagði Pulis er hann
var inntur eftir því hvort hann væri á
höttunum eftir íslenskum leikmönn-
um.
HANDKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni karla, undanúrslit, fyrri
leikur:
Hlíðarendi: Valur - ÍR.......................... 19.15
Ásvellir: Haukar - KA .......................... 19.15
Úrslitakeppni kvenna, undanúrslit, fyrri
leikur:
Vestm.eyjar: ÍBV - FH ........................ 19.15
BLAK
Úrslit karla, annar leikur:
Hagaskóli: HK - Stjarnan.................... 20.15
KNATTSPYRNA
Deildabikar kvenna, efri deild:
Leiknisvöllur: Valur - Stjarnan................ 18
Leiknisvöllur: KR - Breiðablik................. 20
Í KVÖLD
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
16-liða úrslit:
Austurdeild:
New York - New Jersey .................... 94:100
New Jersey sigraði, 4:0, og er komið í
undanúrslit Austurstrandar.
Vesturdeild:
Memphis - San Antonio ..................... 97:110
San Antonio sigraði, 4:0, og er komið í
undanúrslit Vesturstrandar.
KNATTSPYRNA
Vináttuleikur U19 karla
Norður-Írland - Ísland .............................2:0
N.-Írar skoruðu á 11. og 90. mín.
ÚRSLIT
UNGVERSKI landsliðsmaðurinn
Krisztian Lisztes, einn af lykil-
mönnunum í Werder Bremen,
toppliðinu í þýsku Bundesligunni,
verður frá æfingum og keppni
næstu 6–7 mánuðina en hann varð
fyrir því óláni að slíta krossband í
hné í viðureign Bremen og Bochum
í fyrradag. Lisztes verður því ekki
með Ungverjum sem taka á móti
Íslendingum í undankeppni HM
sem fram fer ytra 8. september í
haust.
TIM Duncan, miðherji SA Spurs,
var valinn í lið ársins í NBA-deild-
inni sjöunda árið í röð en valið var
kunngert í gær. Duncan, sem tvö
undanfarin ár hefur verið útnefnd-
ur leikmaður ársins, var valinn í lið-
ið ásamt Kevin Garnett, Minnesota,
sem fékk flest atkvæði í kjörinu,
Shaquille O’Neal, LA Lakers, Kobe
Bryant, LA Lakers, og Jason Kidd,
New Jersey.
FÓLK
Það er svo sem hægt að velta sérupp úr því að Vestmannaeyja-
liðið sé orðið lúið og að stúlkurnar
hafi orðið fyrir ein-
hverjum ægilegum
vonbrigðum með úr-
slitin í Evrópu-
keppninni. Mér
finnst það dálítið barnaleg umræða,
en maður hefur svo sem séð allt í
þessum íþróttum.
Vestmannaeyjaliðið er rosalega
reynslumikið og stúlkurnar hljóta að
gera sér grein fyrir því að í Evrópu-
keppninni voru þær að leika við lið
sem var einfaldlega miklu betra en
þeirra lið. Breiddin er meiri og þess-
ar þýsku stúlkur voru einfaldlega
sterkari á flestum sviðum íþróttar-
innar. Eyjastúlkur voru búnar að
standa sig mjög vel í keppninni og
komnar mjög langt í henni og það má
vel vera að þær hafi alið með sér ein-
hverja drauma um að komst í úrslita-
leikinn. Þær hljóta hins vegar að hafa
séð það eftir fyrri leikinn að sá mögu-
leiki var mjög óraunhæfur.
Það hlýtur því að vera keppikefli
Eyjastúlkna að ljúka keppnistíma-
bilinu með sigri í mótinu og verða þar
með fyrsta liðið frá því 1998 að ég
held, sem vinnur þrefalt,“ segir
Ragnar.
Eyjastúlkur urðu deildarmeistar-
ar, þær sigruðu í bikarkeppninni og
eru nú komnar í undanúrslit Íslands-
mótsins. „Stelpurnar eiga möguleika
á að vinna þrefalt og hljóta að stefna
að því. Keppnistímabilið hjá þeim er
auðvitað ekki nema hálfklárað ef þær
ná ekki í þennan titil. Bikarinn er
svona uppákoma. Liðið kemst í Höll-
ina og vinnur þar einn leik. Deildin er
auðvitað erfið og mikið afrek að vinna
þar, en hún er bara of lágt skrifuð hér
á landi eins og þetta er sett upp. ÍBV
hefur mannskapinn til að sigra FH,
kanski ekki 2-0, en þær vinna samt.
FH-liðið er ágætlega mannað og
með fínar stelpur í flestöllum stöðum,
en ÍBV er einfaldlega skrefinu á und-
an í flestum stöðum. FH-liðið verður
því að eiga algjöran toppleik og von-
ast til að Eyjastúlkur séu í hálfgerð-
um sárum eftir Evrópukeppnina og
leiki eitthvað undir getu. Það held ég
sé eina von FH.
Undir öllum eðlilegum kringum-
stæðum ættu Vestmanneyingar að
vinna 2-0 og þá í talsverðu ströggli í
síðari leiknum, sem verður í Kapla-
krika, en ef það gengur ekki hjá þeim
þá vinna þær í versta falli 2-1,“ sagði
Ragnar.
Liðin hafa mæst þrívegis í deild-
inni, ÍBV vann 24:15 í lok september,
27:31 í Firðinum í nóvember en FH
vann í Eyjum, 33:26 í síðasta leikn-
um.
Morgunblaðið/Þorkell
Anna Yakova leikur stórt hlutverk í liði Eyjamanna og hér skor-
ar hún með uppstökki í leik gegn varnarmanni Hauka.
Ragnar Hermannsson spáir í undan-
úrslitaviðureign Eyjastúlkna og FH-inga
Auðvelt hjá
ÍBV ef allt
er eðlilegt
„EF allt er eðlilegt þá á þessi viðureign að vera tiltölulega auðveld
fyrir Eyjastúlkur,“ sagði Ragnar Hermannsson, sem þjálfaði Hauka-
stúlkur í vetur, þegar hann var spurður um undanúrslitarimmu ÍBV
og FH í 1. deild kvenna í handknattleik, en liðin mætast í fyrsta leik í
Eyjum í kvöld.
Eftir
Skúla Unnar
Sveinsson
MARKMIÐ mitt er að gera Stoke City að betra liði og ná árangri. Það
er ljóst að við verðum um miðja deild að þessu sinni en ég er sáttur
við árangur liðsins, sé miðað við það fjármagn sem við höfum unnið
með. Að mínu mati höfum við kannski náð betri árangri en búast
mátti við,“ sagði Tony Pulis, knattspyrnustjóri enska liðsins Stoke
City, í gær á opnum fundi sem stjórn félagsins hélt í gær á Grand
Hótel í Reykjavík.
Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, vonast eftir
meira fjármagni frá hluthöfum félagsins
„Mun virða ákvörð-
un stjórnarinnar“
Leiðrétting
Í blaðinu á föstudag var rangt farið með
nafn Írisar Önnu Skúladóttir, sigurvegara í
kvennaflokki í 89. víðavangshlaupi ÍR, sem
fram fór á fimmtudag. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.