Morgunblaðið - 27.04.2004, Síða 49

Morgunblaðið - 27.04.2004, Síða 49
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 49 Í GÆR var undirritað sam- komulag á milli körfuknattleiks- deildar Hamars í Hveragerði og Selfoss þar sem félögin skuldbinda sig til þess að vinna saman næstu fimm árin. Meistaraflokkar félags- ins í karla- og kvennaflokki munu leika undir merkjum Hamars/ Selfoss á næstu leiktíð en karlalið- ið leikur í úrvalsdeild og kvenna- liðið í 2. deild. Pétur Ingvarsson mun þjálfa karlaliðið á næstu leiktíð en hann hefur gert samning til næstu þriggja ára. Pétur sagði í gær að markmiðið með sameiningunni væri að efla starfsemi félaganna. „Heimaleikir liðanna verða til skiptist í Hveragerði og á Selfossi en þar er að rísa nýtt íþróttahús sem menn renna hýru auga til enda er þar parket og góð að- staða. Yngri flokkar félaganna munu æfa í Hveragerði og á Sel- fossi en keppa undir sameiginlegu merki félagsins. Það verður því ekki mikið rask á æfingum þeirra. Við ætlum að efla körfuknattleik- inn á þessu svæði með sam- komulaginu og teljum að kostirnir séu margir, enda er um að ræða 7000 manna samfélag sem hefur ýmislegt upp á að bjóða. Það eru ekki nema 10 km. á milli staðanna og við sjáum ekkert nema kosti við að vinna með nágrönnum okk- ar. Markmiðið er að bæði karla og kvennaliðið verði í keppni um titla í efstu deild í framtíðinni,“ sagði Pétur. Hamar og Selfoss sameinast í körfunni ARNAR Sigurðsson og félagar í Pacific Tigers urðu há- skólameistarar í tennis í Vest- urdeildinni í Bandaríkjunum þegar þeir sigruðu Santa Barbara, 4:1, í úrslitaleik í fyrrinótt. Með þessum sigri öðlaðist lið Pacific keppnisrétt í úrslitakeppninni um meist- aratitil bandarísku háskól- anna sem hefst um miðjan maí. Arnar vann örugga sigra í sínum viðureignum, bæði í ein- liðaleik og tvíliðaleik, en hann hefur verið nánast ósigrandi í vetur. Tenniskeppni banda- rísku háskólanna er mjög sterk en margir af efnilegustu tennisleikurum Bandaríkj- anna og víðar að úr heiminum velja að fara í háskóla og keppa þar áður en þeir fara út í atvinnumennskuna. Arnar Vest- urdeildar- meistari með Pacific ÁSGEIR Sigurvinsson landsliðs- þjálfari sagði að það hefði ekki verið annað hægt en gefa Eiði Smára Guðjohnsen, fyrirliða landsliðsins, frí frá leiknum gegn Lettlandi í Riga. „Við gerðum okkur fyllilega grein fyrir því að hann er að fara að leika einn þýðingarmesta leik sinn sem knattspyrnumaður, er hann leik- ur með Chelsea gegn Mónakó í Meistaradeild Evrópu í næstu viku á Stamford Bridge í London. Chelsea á möguleika á að komast í úrslitaleik um Evrópumeist- aratitilinn og það hefði ekki verið sanngjart að láta hann leika hér í Riga þegar Chelsea væri að und- irbúa sig fyrir þann leik. Það er mikið undir, þar sem Chelsea þarf að vinna upp tap í Mónakó, 3:1, til að komast í úrslitaleikinn. Eiður Smári hefur verið að leika mikið undanfarið og var byrjaður að finna fyrir meiðslum í nára og þá fékk hann flensu fyrir fyrri leikinn gegn Mónakó. Síðan meiddist hann í baki og þurfti að fara í sprautumeðferð. Hann þarf á hvíld á að halda. Við vitum fullkomlega hvað hann get- ur, þannig að það er ekki Eiður Smári sem við þurfum að skoða mest í æfingaleikjum. Það eru aðrir leikmenn en hann,“ sagði Ásgeir. Ásgeir sagði að hann væri alls ekkisammála þeim sem héldu því fram að æfingaleikur sem þessi hér í Ríga hefði enga þýð- ingu fyrir okkur. „Ég tel að það sé mjög mikilvægt að fá sem flesta leiki. Það eru ákveðin kynslóðaskipti í íslenska landsliðshópnum núna, þannig að það er mjög þýðingarmikið fyrir okkur að fá landsleiki. Við fengum tækifæri í Albaníu á dögunum til að prófa okkur áfram og nú er önnur prófraun fram- undan hér í Ríga. Við munum hugs- anlega gera einhverjar breytingar á liðinu. Eftir átökin hér í Ríga koma tveir mjög þýðingarmiklir leikir á þriggja þjóða móti í Manchester í byrjun júní, þar sem við leikum fyrst gegn Japan og síðan gegn Englandi. Eftir það koma Ítalir í heimsókn til Reykjavík- ur í ágúst. Allt eru þetta leikir sem hafa þýðingu. Við fáum mjög góðan tíma með strákana í Englandi, þar sem við verðum saman í tíu daga við æfingar og keppni. Þegar við höfum farið í gegnum þessa dagskrá hefst alvaran – undankeppnin fyrir heimsmeistara- keppnina í Þýskalandi 2006,“ sagði Ásgeir og hann bætti við: „Ef við nýt- um okkur ekki að leika æfingaleiki á alþjóðlegum leikdögum, eins og flest- ar þjóðir gera, þá ættum við í erfið- leikum með að fá vináttuleiki. Við verðum alltaf að nýta þá mögu- leika að fá að sjá sem flesta leikmenn leika undir merkjum Íslands. Þá er nausynlegt að geta kallað leikmenn okkar saman reglulega áður en út í al- vöruna er komið. Við gerðum okkur grein fyrir því að leikurinn í Albaníu á dögunum yrði erfiður, en aðalatriðið var að fá hópinn saman.“ Ásgeir sagði að Lettar væru erfiðir mótherjar, sem sýndu góða leiki í Evrópukeppninni gegn Svíum, Ung- verjum og Tyrkjum og tryggðu sér rétt til að leika í Evrópukeppni lands- liða í Portúgal í sumar. „Við mætum hér til leiks til að reyna að leggja þá að velli. Ég er mjög spenntur að sjá hvernig leikmenn taka á málum. Við gerum okkur grein fyrir því að við þurfum að bæta okkur töluvert frá leiknum í Albaníu. Róðurinn verður erfiður, því að það segir allt um Letta að þeir lögðu Tyrki að velli í auka- leikjum um Evrópusætið – bæði hér í Ríga og í Istanbúl. Við erum ekki komnir hingað til að leika eingöngu vináttuleik. Það verður allt gert til að fagna sigri. Við erum með stóran hóp af atvinnumönnum sem vita út á hvað leikurinn gengur. Ég og Logi Ólafs- son spáum þó ekki eingöngu í úrslitin. Aðalatriðið er að við fáum að sjá að leikmenn okkar leggi hart að sér. Það berjast margir leikmennum stöður í landsliðinu og við höfum sagt strák- unum að það eigi enginn fast sæti í lið- inu. Takmark okkar er að gera betur en í síðustu keppni – Evrópukeppni landsliða. Strákarnir vita að það er stefnan og ef menn eru ekki tilbúnir í slaginn verður kallað á nýja menn í hópinn,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson leggja á ráðin á æfingu íslenska lands- liðsins en þeir eru staddir í Ríga í Lettlandi þar sem leikið verður gegn heimamönnum á morgun. Við stefnum að sjálf- sögðu á sigur í Ríga ÞAÐ var létt yfir landsliðshópi Íslands í knattspyrnu er hann kom saman í Kaupmannahöfn í gær á leið til Lettlands, þar sem verður leikinn vináttuleikur gegn Lettum í Ríga á morgun, á Skonto- leikvellinum. Enginn leikmaður landsliðshópsins lagði upp frá Ís- landi því að KR-ingarnir Kristján Finnbogason og Kristján Örn Sig- urðsson komu frá Færeyjum þar semþeir léku með KR-liðinu um sl. helgi, en aðrir leikmenn komu frá Noregi, Svíþjóð, Englandi, Dan- mörku, Belgíu og Þýskalandi. „Það er alltaf ákveðin stemning þegar landsliðshópurinn kemur saman og takmark okkar er að búa lands- liðið sem best undir undankeppni heimsmeistarakeppninnar í Þýskalandi 2006 sem hefst í haust,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson, annar þjálfari landsliðsins. Sigmundur Ó. Steinarsson skrifar frá Ríga Vináttulandsleikir eru mikilvægir, segir Ásgeir Sigurvinsson Eiður Smári þarf á hvíld að halda FÓLK  GÍSLI Kristjánsson var útnefndur leikmaður ársins af leikmönnum danska úrvalsdeildarliðsins Fredericia á lokahófi félagsins um nýliðna helgi. Gísli gekk í raðir Fredericia síðastliðið sumar en hann var áður í herbúðum Gróttu/KR. Gísli er línumaður og skoraði 70 mörk fyrir lið sitt á leiktíðinni og var fjórði markahæsti leikmaður liðsins.  STEFÁN Guðmundsson úr Breiðabliki hjó nærri Íslandsmeti Sveins Margeirssonar í 3.000 m hlaupi í flokki 17–18 ára er hann tók þátt í Cenntennial Invitational mótinu í Oregon á laugardaginn. Stefán hljóp á 8.45,54 mín. sem er að- eins fjórum sekúndum frá meti Sveins sem sett var fyrir níu árum.  ROY Keane, fyrirliði Manchester United, dró sig í gær út úr írska landsliðshópnum í knattspyrnu sem mætir Pólverjum í vináttulandsleik á morgun. Keane varð fyrir meiðslum í leiknum gegn Liverpool á laugardag.  SLITNAÐ hefur upp úr samninga- viðræðum PSV Eindhoven og Feyenoord um kaup fyrrnefnda fé- lagsins á framherjanum Robin van Persie, sem er tvítugur og þykir afar efnilegur. Hollensk dagblöð greina frá því að PSV hafi boðið 3 millj. evra, um 260 millj. kr., en það hafi verið of lágt að mati þeirra sem stýra málum hjá Feyenoord. Ennfremur er hermt að Arsenal, Sevilla og Schalke vilji klófesta Persie og að Arsenal sé reiðubúið að greiða 4,8 millj. evra fyrir framherjann.  DIEGO Maradona er örlítið að ná sér á strik. Nú getur hann orðið and- að sjálfur með aðstoð öndunarvélar, en á sunnudaginn var hann svo slappur að öndunarvélin varð alfarið að sjá um að dæla súrefni í hann.  JONATHAN Woodgate, varnar- maðurinn öflugi hjá Newcastle, meiddist á læri í leiknum við Chelsea í fyrradag og er óttast að hann leiki ekki meira með liðinu á yfirstandandi leiktíð. Þetta er enn eitt áfallið hjá Sir Bobby Robson og lærisveinum hans. Craig Bellamy og Kyeron Dyer eru báðir á sjúkralistanum og Andy O’Brien þarf að taka út tveggja leikja bann en Newcastle er í harðri baráttu um fjórða sætið í deildinni og að komast í úrslit í UEFA-keppninni.  RUUD van Nistelrooy hefur orðið að draga sig út úr hollenska landslið- inu sem mætir Grikkjum á morgun í Eindhoven. Ástæðan er meiðsli. Sömu sögu er að segja af löndum hans Edgar Davids, Phillip Cocu og Andy van der Meyde. Dick Advoca- at, landsliðsþjálfari Hollendinga, hefur eigi að síður úr vaskri sveit leikmanna að velja. Hann hefur að- eins kallaði í einn leikmann í stað fjórmenninganna – það er Paul Bos- velt, miðvallarleikmaður Manchest- er City.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.