Morgunblaðið - 27.04.2004, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
BRENNISTEINSMENGUN hefur aukist veru-
lega í Jökulsá á Sólheimasandi undanfarna
daga. Jarðfræðingar segja aukna mettun
brennisteinsvetnis vera einkenni kvikusöfnunar
undir Kötlu og afleiðingu aukins jarðhita sem
henni fylgir. Jarðvísindamaður fékk nýlega
eitrunareinkenni af þessum sökum. Almanna-
varnadeild ríkislögreglustjórans og lög-
reglustjórinn í Vík hafa sent frá sér viðvörun
þar sem varað er við því að fólk sé í nágrenni
við upptök Jökulsár á Sólheimasandi. Hætta er
á brennisteinseitrun, en helstu einkenni hennar
eru sviði í augum og óþægindi frá önd-
unarfærum ásamt ógleði og höfuðverk.
Nýlega fékk Ólafur Ingólfsson, prófessor í
jarðfræði við Háskóla Íslands, snert af brenni-
steinseitrun þegar hann var við undirbúning
kennsluferðar. „Við vorum fyrst hjá Sól-
heimajökli og svo keyrðum við nánast upp að
Kötlujökli. Mikill brennisteinsfnykur lá í loftinu,
sérstaklega við Sólheimajökul,“ segir Ólafur.
„Nóttina áður hafði verið nokkur skjálftavirkni
og þá hefur komið gusa af vatni sem hefur verið
mettuð af þessum gastegundum.“
Alvarleg eitrun getur leitt til dauða
Þegar líða tók á daginn fór Ólafur að finna
fyrir þeim eitrunaráhrifum sem fylgja brenni-
steinsvetni, ertingu í augum og vaxandi höf-
uðverk. „Þegar frá leið varð höfuðverkurinn
mjög skæður og ég var alveg að sálast, en þetta
leið hjá eins og gengur og gerist. Þetta var ekki
mjög alvarleg eitrun, ég var við Sólheimajökul í
þrjá til fjóra tíma.“
Að sögn Ólafs geta alvarleg eitrunaráhrif
verið firnahættuleg og getur mikill styrkur
brennisteinsvetnis valdið blindu og jafnvel löm-
un í öndunarfærum og dauða.
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræð-
ingur segist ekki þekkja dæmi um slíka eitrun.
„Ef fólk veit að þetta hefur gerst áður við Jök-
ulsá á Sólheimasandi, þá viljum við endilega
heyra frá því,“ segir Magnús Tumi. „Þetta gerð-
ist daginn eftir að leiðnin var sem hæst í Múla-
kvísl og gæti tengst auknu jarðhitavatni undan
Mýrdalsjökli.“
Magnús Tumi segir þessa auknu brenni-
steinsmyndun geta stafað af því að kvika safnist
fyrir undir Kötlu og jarðhiti aukist við það.
„Þessir atburðir einir og sér eru ekki merki um
það að Kötlugos sé að hefjast, heldur vænt-
anlega afleiðing af auknum jarðhita síðustu
misserin. Jarðhitaaukningin hefur verið sam-
fara hægu en ákveðnu landrisi og nokkuð auk-
inni jarðskjálftavirkni. Allt eru þetta dæmigerð-
ir forboðar eldgosa í megineldstöðvum. Það er
hins vegar alls óljóst hversu lengi þessi þróun
þarf að standa áður en gýs. Það geta verið vik-
ur, mánuðir eða ár. Einnig er möguleiki á að
þessi þróun hætti og ekki gjósi í Kötlu í bráð.“
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Við upptök Jökulsár á Sólheimasandi, við Sólheimajökul, í gærkvöld. Fólk er varað við því að vera þar á ferð.
Aukin brennisteinsmengun við Kötlu
Fólk varað við að vera í nágrenni við upptök Jökulsár á Sólheima-
sandi – Jarðvísindamaður fékk einkenni brennisteinseitrunar
SAMKEPPNISSTOFNUN hefur tekið
sér lengri frest til að skoða samruna Norð-
urljósa og Fréttar ehf. og Skífunnar og
verslunarsviðs Tæknivals, eða fram í
seinni hluta júní.
„Það að við skulum taka okkur þennan
tíma þýðir auðvitað að við teljum hugs-
anlegt að þarna séu einhver ljón á veg-
inum,“ segir Guðmundur Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs Sam-
keppnisstofnunar.
Við samrunann kom meðal annars fram
að Skífan yrði eftir breytingarnar með
85% markaðshlutdeild í tónlistar- og tölvu-
leikjasölu á Íslandi. Guðmundur segir að
eitt af því sem horft sé til hjá Samkeppn-
isstofnun sé að Hagar, sem er að stórum
hluta í eigu Baugs Group, reki verslunar-
keðjuna Hagkaup, sem sé stórseljandi
geisladiska og mynddiska.
Samruni Fréttar við
Norðurljós og hluta
Tæknivals við Skífuna
Lengri frestur
til að skoða
samkeppnis-
áhrif samruna
Samkeppnisstofnun/12
EKKI verður af samningum milli Loftleiða
Icelandic, dótturfélags Flugleiða, og ísraelska
flugfélagsins Israir um leiguflug milli Tel Aviv
og New York. Að sögn Sigþórs Einarssonar,
framkvæmdastjóra Loftleiða Icelandic, gátu
Loftleiðamenn ekki gengið að kröfum Ísr-
aelsmanna um ýmis öryggisákvæði. Sam-
kvæmt samningsdrögum áttu m.a. að vera
vopnaðir öryggisverðir um borð í vélunum,
eins og tíðkast hjá ísraelskum flugfélögum.
Segir Sigþór að ekki hafi náðst að samræma
þessar kröfur þeim vinnureglum sem félagið
og áhafnir á þess vegum fylgja. Loftleiðir-
Icelandic munu hins vegar leigja ísraelska
flugfélaginu eina flugvél á svokallaðri þurr-
leigu, þ.e. án áhafna.
Halldór Þ. Sigurðsson, formaður Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna (FÍA), segir af-
stöðu íslenskra flugmanna skýra og hún hafi
komið fram áður. „Sú stefna hefur verið tekin
upp bæði hjá flugmönnum innan FÍA og hjá
samtökum flugmanna erlendis að það auki
ekki öryggi að hafa vopnaða flugmenn um
borð,“ segir Halldór, en flugmenn telja að frá-
gangur farþegalista og öryggisleit á farþegum
eigi að vera fullnægjandi áður en þeir ganga
um borð.
„Ef það þarf vopnaðan vörð um borð teljum
við að áhættan sé svo mikil að það sé betra að
fella niður flugið.“ Halldór segir vopnaðan ör-
yggisvörð í vélinni þar fyrir utan skapa hættu.
„Ef hann beitir skotvopni getur hann valdið
skemmdum á vélinni og einnig stefnt lífi far-
þega í hættu. Þegar vopnið er komið um borð
er heldur ekki víst að öryggisvörðurinn haldi á
því lengur, einhver annar getur náð því af
honum.“ FÍA vísar algjörlega á bug að hafa
vopnaða verði um borð í vélum.
Loftleiðir Icelandic leigja vél án áhafnar til Israir í stað leiguflugs
Íslenskar áhafnir höfnuðu
vopnuðum öryggisvörðum
ÞORGERÐUR Katrín
Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra telur að
skipta eigi um formann
útvarpsréttarnefndar
verði frumvarpið um
eignarhald á fjölmiðlum
að lögum en það varðar
einkum útgáfu útvarps-
leyfa. Því sé rétt að
Kjartan Gunnarsson, núverandi formaður
nefndarinnar, sem á sæti í bankaráði
Landsbankans, víki úr formennskunni.
„Nú er verið að auka valdsvið nefndar-
innar og þá tel ég óheppilegt að formaður
útvarpsréttarnefndar sé meðal annars
bankaráðsmaður í Landsbankanum. Þetta
undirstrikar það sem við höfum sagt að
okkur er fyllsta alvara með því að setja hér
fram almennar leikreglur. Enginn getur
verið vændur um að koma fram með þetta
mál vegna einhverra annarlegra hags-
muna. Við erum fyrst og fremst með hags-
muni almennings í huga,“ segir mennta-
málaráðherra.
Þorgerður Katrín tók fram að Kjartan
hefði staðið sig vel sem formaður nefnd-
arinnar og einkamiðlarnir í landinu hefðu
fremur hagnast á veru hans þar en hitt.
Telur rétt að
skipta um for-
mann í útvarps-
réttarnefnd
VIÐRÆÐUM um kjarasamninga milli Fé-
lags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og
Icelandair var síðdegis í gær vísað til rík-
issáttasemjara. Sáttasemjari hefur boðað
samninganefndir til fundar kl. 13 í dag.
Síðasti kjarasamningur flugmanna og
Icelandair rann út 15. mars sl. og mun hægt
hafa miðað í viðræðum síðustu daga.
Samninganefnd FÍA hefur mælst til þess
við flugmenn Icelandair að þeir virði kjara-
samninga í hvívetna og að menn vinni ekki á
frídögum. Þá hefur samninganefndin boðað
flugmenn félagsins til fundar í kvöld, þar
sem þeim verður kynnt staðan og framhald-
ið ákveðið, að því er fram kemur á vef FÍA.
Deila FÍA og
Icelandair til
sáttasemjara
♦♦♦
♦♦♦