Morgunblaðið - 09.06.2004, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2004 9
HEIMDALLUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, hélt upp
á skattadaginn í fyrradag með því
að afhenda Geir H. Haarde, fjár-
málaráðherra, skýrslu um skatta-
daginn. Í skýrslunni kemur fram
hvernig þróun útgjalda ríkis og
sveitarfélaga hefur verið und-
anfarin ár. Heimdellingar hafa
haldið skattadaginn hátíðlegan
um nokkurra ára skeið en dag-
urinn segir til um hvenær lands-
menn hætta að vinna fyrir hið op-
inbera og fara að vinna fyrir sig
sjálfa.
Samkvæmt upplýsingum frá
Heimdalli eyddu landsmenn 159
dögum í það að vinna fyrir hið op-
inbera sem er fimm dögum meira
en þeir unnu á síðasta ári. Þar af
á ríkið þátt í tveimur dögum en
sveitarfélögin eiga þrjá daga. Sér-
staklega gagnrýna Heimdellingar
fjármálastjórn Reykjavíkurborgar,
sem þeir kalla „fjármálaóstjórn“.
Heimdellingar telja út-
gjaldaaukningu hins opinbera
óásættanlega og krefjast þess að
hið opinbera dragi úr útgjöldum
með aukinni hagræðingu í rekstri
og að álögur á landsmenn verði
lækkaðar.
Heimdellingar hafa lagt fram
ýmsar tillögur um útgjaldaliði
sem hið opinbera mætti losa sig
við. Þar vega þyngst hlutur Rík-
isútvarpsins og greiðslur vegna
sauðfjár-, mjólkur-, og grænmet-
isframleiðslu, eða samtals rúmir
níu milljarðar króna.
Heimdellingar halda
upp á skattadaginn
Morgunblaðið/Eggert
Afhentu fjár-
málaráðherra
skýrslu um þróun
útgjalda ríkis og
sveitarfélaga
HEIMIR Örn Herbertsson
lögmaður hefur fyrir hönd
umbjóðanda síns sent Per-
sónuvernd formlegt erindi
vegna skráningar á undir-
skriftalistann áskorun.is, sem
Fjölmiðlasambandið stóð að í
síðasta mánuði, þar sem skor-
að var á forseta Íslands að
undirrita ekki lög um eign-
arhald á fjölmiðlum.
Að sögn Heimis er þess
óskað að Persónuvernd upp-
lýsi á grundvelli hvaða heim-
ildar umrædd undirskrifta-
söfnun fór fram og jafnframt
að gerð verði grein fyrir því
til hvaða úrræða verði gripið
til að tryggja hagsmuni
þeirra sem skráðu sig á
listann. „Það er augljóst að
framkvæmd af þessu tagi
veldur hættu á því að menn
sem ekki ætluðu að skrá sig
voru engu að síður skráðir,“
segir Heimir. „Einhvern veg-
inn verður að tryggja að allir
sem eru skráðir viti af því svo
þeim sé unnt að grípa sjálfir
til viðeigandi ráðstafana.
Einnig er þess óskað að Per-
sónuvernd leggi bann við því
að skráningarnar verði nýtt-
ar, birtar eða unnið með þær
uns réttur hinna skráðu hefur
verið tryggður.“
Undirskriftasöfnun
á áskorun.is
Persónu-
vernd sent
formlegt
erindi
UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur í
áliti að Landspítali – háskólasjúkra-
hús hafi ekki gefið nægilega grein-
argóða skýringu á því hvers vegna
ákveðinn umsækjandi var tekinn
fram yfir annan í starf yfirfélagsráð-
gjafa á ákveðinni deild á sjúkrahús-
inu.
Sá umsækjandi sem ekki fékk
starfið leitaði til umboðsmanns þar
sem hann taldi að hann hefði ekki
fengið nægjanlega skýringu á því
hvers vegna hinn umsækjandinn
varð fyrir valinu. LSH sagði að um-
sækjandinn sem ekki fékk starfið
hefði uppfyllt öll skilyrði, en að sá
sem var ráðinn hefði haft lengri og
víðtækari starfs- og stjórnunar-
reynslu, auk viðbótarmenntunar.
Umboðsmaður segist í niðurstöðu
sinni telja að nokkuð hafi skort á að
LSH gerði viðhlítandi grein fyrir því
í hverju þessi reynsla og menntun
hefði verið fólgin. Því hefði ekki ver-
ið unnt að álykta út frá rökstuðn-
ingnum hvort ákvörðun sjúkrahúss-
ins hefði verið tekin á réttum
forsendum, hvað þetta varðar. Um-
boðsmaður komst að þeirri niður-
stöðu að rökstuðningur LSH hefði
ekki samræmst þeim kröfum sem
leiddar yrðu af ákvæði stjórnsýslu-
laga um efni rökstuðnings.
Umboðsmaður gerir einnig at-
hugasemdir við að LSH hefði ekki
leiðbeint umsækjandanum sem var
hafnað um rétt hans til að óska eftir
rökstuðningi ákvörðunar, í samræmi
við ákvæði stjórnsýslulaga, þegar
viðkomandi var tilkynnt að annar
hefði verið ráðinn í starfið. Loks taldi
umboðsmaður ástæðu til að finna að
þeim drætti sem varð á því að
sjúkrahúsið veitti umsækjandanum
umbeðinn rökstuðning.
Umboðsmaður beinir þeim tilmæl-
um til sjúkrahússins að það bæti úr
þeim annmarka sem var á rökstuðn-
ingi til umsækjandans, fari hann
fram á það og að LSH taki framvegis
mið af þeim sjónarmiðum sem fram
koma í álitinu.
LSH gaf ekki nægi-
legan rökstuðning
Sjálfstæðisflokkurinn bætir
verulega við sig fylgi í nýjustu
könnun Fréttablaðsins og nýt-
ur stuðnings 34,7% sem er nær
10% meira en í síðustu könnun
blaðsins og 1% meira en í síð-
ustu alþingiskosningum. Fylgi
Framsóknarflokksins dalar
verulega og er liðlega 8% í
könnuninni en var 17,7% í kosn-
ingunum.
Spurt var sérstaklega um af-
stöðu manna til ríkisstjórnar-
innar og sögðust 59,7% vera
henni andsnúnir en 40,3% sögð-
ust vera henni fylgjandi og er
það svipaður stuðningur og í
síðasta þjóðarpúlsi Gallups.
Fylgi Samfylkingarinnar
mælist vera 37% en var 30,9% í
kosningunum, fylgi Vinstri
grænna mælist tæplega 17% en
var 8,8% í kosningunum og
fylgi Frjálslynda flokksins
3,2% en var 7,4% í kosningun-
um.
Könnun Fréttablaðsins var
gerð 5. júní og var úrtakið 800
manns með jöfnu kynjahlutfalli
og rétt deilt niður eftir kjör-
dæmum. Afstöðu til ríkisstjórn-
arinnar tóku 86,2% aðspurðra
en 58,4% gáfu upp afstöðu sína
til flokkanna.
Sjálfstæð-
isflokk-
urinn með
tæplega
35% fylgi
Sex af hverjum
tíu andvígir
ríkisstjórninni
REYKJAVÍK • AKUREYRI
„Bumbubaninn“
sívinsæli
gerir sitt gagn.
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222.
www.feminin.is
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Sumar-
fatnaður
í úrvali
Vorum að taka upp
nýjar miniquevörur
Glæsilegt úrval
Stærðir 42-60
Nám fyrir nemendur í 10. bekk
Sumarskólinn í FB
Allar frekari upplýsingar á www.fb.is
jakkar — buxur — pils
Laugavegi 84, sími 551 0756
Hörfatnaður
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111