Morgunblaðið - 09.06.2004, Side 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2004 19
Sundlaug mótmælt | Andstæð-
ingar áforma um nýja sundlaug við
Lágafellsskóla í Mosfellsbæ hafa af-
hent fulltrúum bæjarstjórnar undir-
skriftarlista með nöfnum 1.617 bæj-
arbúa, þar sem áformunum er
mótmælt. Þarna er um að ræða um
36% atkvæðisbærra íbúa bæjarins,
og skora undirritaðir á bæjaryf-
irvöld að byggja sundlaug við
íþróttamiðstöðina að Varmá. Þannig
verði haldið áfram uppbyggingu
miðstöðvarinnar og tryggt að
íþróttaaðstaða bæjarins sé í
tengslum við útivistarsvæðið í ná-
grenni miðstöðvarinnar.
Seltjarnarnes | Framkvæmdir standa nú
yfir við nýtt bæjarhlið Seltjarnarnes-
bæjar við Nesveg en í fyrrasumar var
reist slíkt hlið við Eiðsgranda. Stefnt er
að því að ljúka framkvæmdum við hliðið
fyrri hluta sumars. Segir í tilkynningu
frá Seltjarnarnesbæ að með nýju bæj-
arhliði verði aðkoman að Seltjarnarnesi
frá Nesvegi mun fallegri og snyrtilegri
auk þess sem bæjarmörk verði skarpari.
Bæjarhliðið verður mun minna um sig
en Eiðsgrandahliðið enda hafi við hönn-
un þess verið tekið mið af umhverfinu
við Nesveg sem ekki bjóði upp á stórt
mannvirki.
Nýtt bæjarhlið
Mosfellsbær | Gúmmívinnslan hf. á
Akureyri og Mosfellsbær hafa gert
með sér viðskipta- og samstarfs-
samning til fjögurra ára um kaup
Mosfellsbæjar á öryggishellum úr
endurunnu gúmmíi til notkunar á
leikvöllum bæjarins.
Mosfellsbær er fyrsta sveitarfélag-
ið á landinu til að gera slíkan samning
við Gúmmívinnsluna, en endurvinnsla
gúmmís í öryggishellur þykir sam-
rýmast Staðardagskrá 21, sem kveð-
ur á um virka umhverfisstefnu sveit-
arfélaganna.
Þeir Oddgeir Þór Árnason, garð-
yrkjustjóri og starfsmaður Stað-
ardagskrár 21 í Mosfellsbæ, og Þór-
arinn Kristjánsson, stjórnarformaður
Gúmmívinnslunnar, undirrituðu
samninginn á dögunum, en áætlað er
að viðskipti Mosfellsbæjar og
Gúmmívinnslunnar verði upp á um
2,5 milljónir króna á næstu fjórum ár-
um og að um 14 tonn af gúmmí-
úrgangi fari í að framleiða þær ör-
yggishellur sem um ræðir.
Að sögn bæjaryfirvalda í Mos-
fellsbæ er þessi ráðstöfun í beinu
framhaldi af því starfi sem unnið hef-
ur verið að í umhverfismálum í bæj-
arfélaginu á undanförnum árum, en
Mosfellsbær hefur fengið fjölda við-
urkenninga á því sviði.
Gúmmívinnslan hefur framleitt ör-
yggishellur fyrir leikvelli í um tíu ár
en 90% af hráefninu í hellunum eru
fengin úr notuðum hjólbörðum. Ör-
yggishellurnar hafa fengið vottun frá
viðurkenndum erlendum vottunar-
aðila til að standast fyllstu öryggis-
kröfur sem undirlag á leikvelli.
Gúmmíhellur á leikvelli
Ljósmynd/Haraldur Ingólfsson
Skrifað undir á mjúkri gúmmíhellu.
Miðbær | Það var glatt á hjalla og mikil hátíð-
arhöld þegar nemendur, starfsfólk og for-
eldrar í Austurbæjarskóla héldu lokahátíð
fjölmenningarverkefnis skólans á dögunum.
Höfðu viðstaddir vissulega ástæðu til að
fagna, enda markaði hátíðin hápunkt um-
fangsmikils og skemmtilegs samstarfs skóla,
foreldra, félagsmiðstöðvarinnar 100og1 og
ekki síst unglinganna.
Hátíðin hófst með skrúðgöngu um hverfið,
en síðan voru haldin ýmis skemmtiatriði út
um allan skóla; dans, söngur og ýmis atriði
sem unglingarnir hafa verið að vinna að í vet-
ur. Guðbjörg Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá
félagsmiðstöðinni 100og1, segir hátíðina hafa
heppnast gríðarvel, enda hafi veðrið leikið við
viðstadda og mæting betri en búist hafði verið
við,“ segir Guðbjörg. Fjölmenningarkennslan
hefur tvímælalaust skilað sér að mati Guð-
bjargar. „Krakkarnir eru opnari fyrir annarri
menningu og læra heilan helling á þessu. Þau
eru umburðarlyndari og njóta þess að kynnast
krökkum af ólíkum uppruna og skiptast á
ýmsum fróðleik. Þau læra svo mikið af hvert
öðru.“
Morgunblaðið/Árni Torfason
Þeir voru kátir, krakkarnir sem þrömmuðu
niður á Laugaveg.
Lokahátíð
fjölmenningar-
verkefnis
Vesturbær | Hreinsunarátak Reykjavíkur-
borgar 2004, „Tökum til hendinni,“ hófst
formlega, þegar Þórólfur Árnason borgar-
stjóri tók rösklega til hendinni við leikskól-
ann Sæborg í gær.
Hugmyndina að átakinu má rekja til funda
borgarstjóra með borgarbúum sl. haust þar
sem fram kom mikill og almennur vilji þess
efnis að Reykjavíkurborg beitti sér fyrir auk-
inni vitund borgarbúa um umhverfi sitt og
gildi góðrar umgengni. Að sögn borgaryf-
irvalda er ærið tilefni til að fegra borgina, en
fjöldi gesta, erlendra sem innlendra, er vænt-
anlegur til Reykjavíkur í sumar og 60 ára af-
mæli lýðveldisins verður fagnað 17. júní.
Borgin sýni gott fordæmi
Reykjavíkurborg hyggst sjálf ganga á und-
an með góðu fordæmi og hefur tilmælum
þannig verið beint til allra stjórnenda hjá
Reykjavíkurborg um að þeir hyggi að um-
hverfi vinnustaða sinna og virki starfsfólk
borgarinnar í þeim efnum. Þá hafa skólabörn
þegar tekið til hendinni og leikskólabörn og
eldri borgarar munu einnig taka þátt í verk-
efninu. Sérstakt átak verður líka haldið á
vegum vinnuskólans í tengslum við verk-
efnið.
Sérstakir ruslapokar hafa verið útbúnir
sem verða aðgengilegir fólki og fyrirtækjum
í borginni næstu daga en þá er m.a. hægt að
nálgast á bensínstöðvum höfuðborgarsvæð-
isins, í Ráðhúsi Reykjavíkur, félagsmið-
stöðvum félagsþjónustunnar og við sundlaug-
ar borgarinnar.
Einstaklingar og fyrirtæki í Reykjavík eru
hvött til að leggja sitt af mörkum, fegra nán-
asta umhverfi og senda frásögn og myndir af
framtakinu á hreinn@reykjavik.is, en frá-
sagnir og myndir verða birtar á vefsvæði
Reykjavíkur og verðlaun veitt fyrir kraft-
mikil og skemmtileg verkefni.
Hreinn Hreinsson, upplýsingafulltrúi í
Ráðhúsi Reykjavíkur, segir hverfafundina
hafa verið gagnlega, en umgengni hafi skipt
fólk miklu máli þegar það átti samtöl við
borgarstjóra. „Þetta er allt spurning um
hvernig við bregðumst við þessu,“ segir
Hreinn. „Borgin er með heilmikinn mann-
skap og tæki sem eru að þrífa og fegra borg-
ina á hverjum einasta degi, en engu að síður
er mikið af umgengninni undir hverjum og
einum komið, hvernig hann gengur um borg-
ina. Þess vegna ákváðum við að fara af stað
með hvatningarátak, ekki hvað síst til að
vekja fólk til umhugsunar um hvernig maður
gengur um og líka til að sýna að tækifærin til
að gera betur í ungengninni eru út um allt.“
Hreinn segir von borgaryfirvalda að íbúar
borgarinnar finni það hjá sjálfum sér að gera
hreinlætið og góða umgengni að venju sinni,
að taka upp rusl þegar fólk sér það og vinna
saman að betri borg.
Hreinsunarátakið „Tökum til hendinni“ hafið í Reykjavíkurborg
Kviknaði vegna mikils
áhuga borgaranna
TENGLAR
..................................................................
www.reykjavik.is
hreinn@rvik.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Ungur temur: Borgarstjóri nýtur leiðsagnar ungu kynslóðarinnar í fegrun borgarinnar.