Morgunblaðið - 09.06.2004, Blaðsíða 23
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2004 23
Það skiptir að sjálfsögðu máli viðhvaða aðstæður fólk ætlar aðnota tjöldin sín, en okkar
reynsla er sú að fólk ætti ekki að velja
tjald með minna vatnsþol en 3.000
mm,“ segir Guðbjörn Margeirs-
son, aðstoðarverslunarstjóri í
ferða- og útivistarversluninni
Everest. „Með tjald sem
hefur þá vatnsheldni ætti
viðkomandi að vera öruggur
undir öllum kringumstæðum, jafnvel
þótt rigni í nokkra daga samfleytt.“ Að
sögn Guðbjörns nemur vatnsheldni
hinna hefðbundnu unglingatjalda um
2.000 mm [mælikvarðinn er fundinn
með því að dúkur er strengdur undir
rör og vatni helt í rörið þar til dúk-
urinn fer að leka. 2.000 mm jafngildir
því að dúkurinn þolir tveggja metra
vatnssúlu]. „Í góðri helgarútilegu ertu
nokkuð öruggur með slíkt tjald og það
dugir alveg þótt rigni í einn dag, en
lendi maður í lengri rigningu og hvað
þá miklu roki og þá er þetta tjald ekki
jafnöruggt og það sem er með 3.000
mm vatnsþol.“
Guðbjörn bendir á að dúkurinn í
botni tjaldsins eigi alltaf að vera
vatnsþolnari en tjaldið sjálft, og mæl-
ir með 5.000 mm vatnsheldni í því til-
felli svo þrýstingurinn af þunga
tjaldbúanna valdi ekki leka.
Að sögn Guðbjörns skiptir vissu-
lega töluverðu máli hvaða not fólk
ætlar að hafa af tjaldinu og því sé
skynsamlegt að meta notkunina áður
en fjárfest er. Þannig nota sumir t.d.
tjöld sín eingöngu í stuttar helg-
arútilegur, en aðrir kjósa að leggjast
út í lengri tíma, enn aðrir leita þá upp
á hálendið þar sem veður geta reynst
válynd jafnvel yfir hásumarið og svo
kjósa þeir ævintýragjörnustu jafnvel
að gista í tjaldi utan hefðbundins
ferðamannatíma.
Stöðugleiki gagnvart
veðri og vindum
„Önnur mæling en vatnsheldnin
sem líka er mikið notuð er árs-
tíðamælingin sem byggist á stöð-
ugleika tjaldsins gagnvart veðrum og
vindum. Tveggja árstíða tjald hentar
vel í vor- og sumarútilegur á láglendi
hér á landi og ættu tjöldin að geta
staðið af sér flest veður undir þeim
kringumstæðum. Um leið og komið
er upp á hálendið, t.d. þegar Lauga-
vegurinn er genginn, þá veitir hins
vegar ekkert af þriggja til fjögurra
árstíða tjaldi, enda oft mjög vinda-
samt á Íslandi. Í þessu samhengi má
nefna að ferðabækurnar þekktu
Lonely Planet ráðleggja útlendingum
að taka ekki minna en fjögurra árs-
tíða tjald með sér til Íslands.“
Guðbjörn segir tjaldbúa þó eiga að
vera örugga hvar sem er á landinu í
þriggja til fjögurra árstíða tjaldi á
tímabilinu frá maíbyrjun og út sept-
ember, en þessi tjöld eru að sjálf-
sögðu líka vatnsheldari. „Stöðugleiki
tjaldsins gagnvart veðri og vindum
gegnir stóru hlutverki hér á landi og
því skiptir bygging tjaldsins miklu
máli. Einföld regla til að finna öfl-
ugustu tjöldin er að þau standa sjálf
og treysta ekki á stög til annars en að
festa sig við jörðina.“
ÚTIVIST|Hvernig tjald á að velja í útileguna?
Tjald þarf að
vera vatnshelt
og stöðugt
Morgunblaðið/Jim Smart
Guðbjörn Margeirsson: Segir að mörgu að huga þegar tjald er keypt.
Göngutjöld: Þurfa að vera
létt og viðráðanleg.
Nóg rými: Rúmgott tjald
fyrir stórfjölskylduna.
Tjaldferð um landið er fastur liður í sumar-
fríum margra. Það borgar sig hins vegar
að hafa hugfast þegar tjaldið er valið að ís-
lensk veðrátta getur verið dyntótt.
annaei@mbl.is
Tveggja árstíða tjald dugar
yfir sumarmánuðina niðri á
láglendi.
Þriggja árstíða tjald hentar
í flestar hálendisferðir yfir
sumartímann.
Fjögurra árstíða tjald er
góður kostur fyrir hálend-
isferðir frá maíbyrjun og til
loka september.
Fimm árstíða tjald er ætlað
fyrir háfjallagöngur og
vetrarferðir.
TÍVOLÍ í Kaupmannahöfn
var enn einu sinni vinsælasti
ferðamannastaður Danmerk-
ur í fyrra, samkvæmt sam-
antekt danska ferðamálaráðs-
ins. Þangað komu rúmlega
fjórar milljónir manna á síð-
asta ári, en aðeins einu sinni
á undanförnum áratug hafa
gestirnir verið fleiri.
Í næstu sætum voru
skemmtigarðurinn Dyre-
havsbakken í útjaðri Kaup-
mannahafnar, með 2,6 millj-
ónir gesta, Legoland, með
rúmlega 1,6 milljónir gesta,
og Dýragarðurinn í Kaup-
mannahöfn, en hann sóttu
nær 1,2 milljónir manna á
síðasta ári.
Þessir fjórir staðir hlutu
allir ágæta aðsókn í fyrra
miðað við undanfarin ár, en
þangað komu samtals um
9,5 milljónir gesta, sem er
nær helmingur af heild-
argestafjölda 25 vinsælustu
ferðamannastaðanna. Af
öðrum vinsælum við-
komustöðum í Danmörku
má nefna Louisiana-
listasafnið, Glyptotekið, Rík-
islistasafnið í Kaupmanna-
höfn og dýragarðana í Óð-
insvéum og Álaborg.
DANMÖRK
Tívolí
vinsælast
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
1
3
8
16 hótel
allan hringinnSími: 444 4000
Frábær tilboð fyrir 10 manns eða fl eiri
www.esja. is
Dugguvogi 8
Sími 567 6640
Sími 533 2660
www.hafsulan.is
HAFSÚLAN
Hvalaskoðun frá Reykjavík
- frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
með viðkomu í Lundey
Brottför frá Ægisgarði alla daga kl. 9,13 og17
10 tíma kort á aðeins 3500 kr.
12 tíma morgunkort 3500 kr
Stakur tími 400 kr
T I L B O Ð
ljósab
ekki
Við no
tum e
inung
is hág
æða
Eddufelli • s. 567 3535
Hvalaskoðun
með Moby Dick
Sími: 421 7777 & 800 8777
Farsími 896 5598 - Fax 421 3361
Pósthólf 92, 230 Kefl avík
www.dolphin.is - moby.dick@dolphin.is
Daglega frá
Kefl avíkurhöfn
frá apríl til október.
Sjóstangveiði - Skemmtisiglingar.
10 ára
1994 - 2004
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s