Morgunblaðið - 09.06.2004, Qupperneq 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Discovery kemur og
fer í dag. Pamiut og
Mánafoss koma í dag.
Selfoss, Freri og Þern-
ey fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Arrow kemur í dag.
Selfoss og Viking fara í
dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofa s. 551 4349, fax.
552 5277, mataraðstoð
kl. 14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og postulín,
kl. 13 postulín, kl.13.30
Leshringur í fund-
arsalnum.
Hársnyrting, fótaað-
gerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
10.30–11.30 heilsu-
gæsla, kl. 13–16.30
smíðar og handavinna,
kl. 13 spil.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 13–
16.30 bridge/vist. Sími
535 2760.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan
opin, kl. 9–14 aðstoð við
böðun, kl. 10–10.45
leikfimi, kl. 14.40 ferð í
Bónus, púttvöllurinn
opinn.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 opin verslunin,
kl. 13.30 bankinn, kl.
11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið Löngu-
hlíð 3. Kl. 9.30 hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um, kl. 10 hársnyrting,
kl.10–12 verslunin opin
til kl. 12, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Vinnustofan
opin miðviku-, fimmtu-
og föstudag með leið-
beinanda til 15. júní.
Púttvöllurinn opinn.
Böðun mánu- og
fimmtudaga. Fótaað-
gerðastofa á mið-
vikudögum, aðra daga
eftir samkomulagi.
Hárgreiðsla alla daga
kl. 9–12
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Sameiginleg
kvennaleikfimi í
Kirkjuhvoli kl. 11.
Vöfflukaffi í Garða-
bergi e.h. Handa-
vinnuhornið í Garða-
bergi kl. 13.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofan
er opin í dag frá kl. 10–
11.30, viðtalstími í Gjá-
bakka kl 15–16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Samfélagið í
nærmynd kl. 11 þáttur
um málefni eldri borg-
ara á RÚV.
Söngfélag FEB kóræf-
ing kl. 17. Línudans-
kennsla kl. 19.15. Far-
þegar í ferð um
Snæfellsnes, fundur
með fararstjóra
í kvöld í Ásgarði
Glæsibæ kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 11
línudans, kl. 13.30 pílu-
kast.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar kl. 10.30 sund- og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug frá hádegi
spilasalur opinn.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handavinna,
kl. 13 félagsvist, kl. 17.
bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin alla virka daga frá
kl. 9–17.
Handavinnustofan er
opin frá kl. 13–16.
Alltaf heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og búta-
saumum , kl. 10–11
pútt, hárgreiðsla, fóta-
aðgerð og banki, kl. 13
brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
10–11 og kl. 11–12 jóga,
kl. 10.30 samverustund.
Fótaaðgerðir, hár-
snyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 vinnustofa, kl. 9–
16 fótaaðgerð, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi og verð-
laun.
Vesturgata 7. Kl. 9–
10.30 setustofa, dag-
blöð og kaffi, kl. 10–12
sund í Hrafnistulaug,
kl. 9–16 fótaaðgerð og
hárgreiðsla, kl. 12.15–
14.30 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–14 mynd-
bandssýning, spurt og
spjallað.
Þeir sem eru skráðir í
ferð til Skagafjarðar
10. júní vinsamlegast
vitjið farseðlana sem
fyrst.
Nánari upplýsingar í
síma 535 2740.
Vitatorg. Kl. 8.45–
11.45 smiðjan, kl. 9–16
hárgreiðsla, kl. 9.30–16
handmennt, almenn, kl.
10–11 morgunstund, kl.
10–16 fótaaðgerðir, kl.
10–16.30 bókband , kl.
12.30 verslunarferð í
Bónus
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13–
16 keramik, taumálun,
föndur, kl. 15 bókabíll-
inn.
Hafnargönguhóp-
urinn. Kvöldganga kl.
20 miðvikudaga. Lagt
af stað frá horni Hafn-
arhússins norð-
anmegin.
Brúðubílinn
Brúðubílinn, verður í
dag kl. 10 við Fífusel og
kl. 14 við Frostaskjól
og á morgun kl. 10 við
Fróðengi.
Í dag er miðvikudagur 9. júní,
161. dagur ársins 2004, Kól-
úmbamessa. Orð dagsins: Vitur
maður sér ógæfuna og felur sig,
en einfeldningarnir halda áfram
og fá að kenna á því.
(Ok. 27, 12.)
Fréttablaðið birti í gærfrétt á forsíðu þess
efnis að „helztu at-
hugasemdir“
skattrann-
sóknarstjóra
á skatt-
skilum
Baugs hefðu
lotið að því
hvernig
„staðið var
að verðmati fyrirtækja,
sem lögð voru inn í félagið
við stofnun þess“.
Nú er það svo að skatt-
rannsóknarstjóri veitir
fjölmiðlum engar upplýs-
ingar um málefni fyr-
irtækja eða einstaklinga
sem tekin eru til athug-
unar. Eini aðilinn sem það
getur gert er sá aðili sem
athugun embættisins bein-
ist að. Í fréttum ríkissjón-
varpsins í gærkvöldi var
haft eftir Hreini Loftssyni,
stjórnarformanni Baugs,
að fyrirtækið mundi engar
upplýsingar veita um efni
frumskýrslu skattrann-
sóknarstjóra.
Vandinn við fréttir áborð við þá sem
Fréttablaðið birti í gær
um þetta mál er sá að les-
endur geta ekki vitað
hvort sagan öll er sögð
eða einungis hluti hennar.
Flestir fjölmiðlar mundu
hafa þann hátt á, ef þeim
bærust upplýsingar af
þessu tagi, að þeir mundu
telja nauðsynlegt að sjá
skýrsluna alla til þess að
leggja sjálfstætt mat á það
hvort sagan öll væri sögð
eða hvort þeir væru mat-
aðir á upplýsingum sem
hentuðu viðkomandi aðila.
Nú má vel vera að Frétta-
blaðið hafi alla frum-
skýrslu skattrannsókn-
arstjóra undir höndum og
frétt blaðsins í gær bygg-
ist á slíku sjálfstæðu mati.
Eða þá að um upphafsfrétt
hafi verið að ræða og fleiri
fréttir um efni skýrsl-
unnar fylgi í kjölfarið.
Þetta kemur í ljós næstu
daga eða þegar málið allt
verður upplýst opinber-
lega.
Í þessu sambandi erástæða til að minna á að
Jón Ólafsson kaupsýslu-
maður og fyrirtæki hon-
um tengd
voru í rann-
sókn hjá
skattrann-
sóknarstjóra
fyrir nokkr-
um miss-
erum. Jón
Ólafsson tók sjálfur
ákvörðun um að óska eftir
því við Morgunblaðið að
skýrsla skattrannsókn-
arstjóra ásamt at-
hugasemdum yrði birt í
heild í blaðinu. Morg-
unblaðið varð við þeim
óskum Jóns Ólafssonar.
Með því að óska eftir birt-
ingu á skýrslunni allri
gerði Jón Ólafsson les-
endum Morgunblaðsins
kleift að leggja sjálfstætt
mat á efni málsins. Segja
má að þau vinnubrögð
hans hafi verið til fyr-
irmyndar.
Hins vegar er ljóst aðtakmarkaðar upplýs-
ingar hafa borizt um eft-
irleikinn, þ.e. um end-
urálagningu o.s.frv. Það
er viðtakandinn einn sem
getur ákveðið að birta
þær upplýsingar.
STAKSTEINAR
Er sagan öll sögð?
Hreinn
Loftsson
Jón Ólafsson
Óhreinn ferðamaður
ÉG VAR á ferð um landið
síðustu helgi og lá leið mín
á Kirkjubæjarklaustur þar
sem ég var að taka þátt í
vélhjólakeppni ásamt um
það bil 300 öðrum keppend-
um. Þegar löngum og skít-
ugum degi var lokið var
ákveðið að skella sér í sund
til að hreinsa af sér óhrein-
indin. Þá varð ég fyrir mikl-
um vonbrigðum. Til að
byrja með var starfsmaður-
inn í GSM-símanum sínum
þegar við mættum til að
borga. Hann lagði þó fljót-
lega á þegar hann varð okk-
ar var. Fyrir framan bún-
ingsklefana voru engar
skóhillur og voru skór því á
víð og dreif og var illmögu-
legt að komast inn í klefana
fyrir skóm. Búningsklef-
arnir sjálfir voru hreint og
beint ógeðslegir. Sturturn-
ar skiluðu nánast engu
vatni frá sér til að hægt
væri að þrífa sig, gólfin í
búningsklefanum voru
blaut og skítug, það var
myrkur inni á klósettinu og
enginn pappír.
Þessi aðstaða var svo
slæm að við misstum áhug-
ann á að fara í pottinn og
yfirgáfum staðinn óánægð
og illa þrifin. Þetta var alls
ekki peninganna virði. Við
skorum á þennan vinsæla
ferðamannastað að bæta
aðstöðuna hjá sér fyrir
sumarið.
Björn Ingvar Einarsson.
Yndisleg sýning
ÉG FÓR í Iðnskólann í
Hafnarfirði í gær og þar er
yndisleg sýnging eftir Þor-
kel Guðmundsson arkitekt
og listamann, sem ber heit-
ið Hönnun og handverk í
hálfa öld. Ég hvet alla til
þess að mæta á þessa sýn-
ingu en henni lýkur á
fimmtudag.
Sigríður.
Tapað/fundið
Hálsmen tapaðist
SILFURHÁLSMEN með
handsmíðaðri skeifu tapað-
ist á afmæli Sjálfstæðis-
flokksins á Hótel Nordica
hinn 27. maí sl. Hestshaus
er í skeifunni og á skeifuna
er grafið nafn eigandans,
Guðrún Fjeldsted. Finn-
andi vinsamlegast hafi
samband í síma 437 1686
eða 893 3886. Fundarlaun í
boði.
Dýrahald
Kettlingur af
skógarkattarkyni
GÓÐAN fress af skógar-
kattarkyni vantar heimili.
Áhugasamir vinsamlegast
hafið samband í síma
866 4403 eftir klukkan 5 á
daginn.
Tveir kettlingar
fást gefins
YNDISLEGIR kettlingar
fást gefins. Upplýsingar í
síma 554 2406.
Persa vantar heimili
MOLI er silfurpersi, tæp-
lega 3ja ára og sérlega ljúf-
ur, fallegur og kelinn kött-
ur. Vegna breyttra að-
stæðna vantar hann nýtt
heimili. Upplýsingar í síma
669 9313.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 kría, 4 þyrping, 7 lofað,
8 óhæfa, 9 kraftur, 11
skelin, 13 fiskurinn, 14
dögg, 15 vegg, 17 ilma,
20 hlass, 22 heldur, 23
hefja, 24 ávöxtur, 25 fugl.
LÓÐRÉTT
1 þjónustustúlka, 2 hæsi,
3 sníkjudýr, 4 fatnað, 5
frumeindar, 6 duglegur,
10 flandur, 12 miskunn,
13 væla, 15 glampi, 16
kind, 18 orða, 19 dýrin,
20 sóminn, 21 slæmt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 góðgætinu, 8 skælt, 9 nætur. 10 agn, 11 arinn,
13 alinn, 15 mögla, 18 efsta, 21 fen, 22 trant, 23 geðug,
24 Dalabyggð.
Lóðrétt: 2 ólæti, 3 gátan, 4 tunna, 5 nýtni, 6 espa, 7
grun, 12 nál, 14 lyf, 15 meta, 16 glaða, 17 aftra, 18 Eng-
ey, 19 siðug, 20 auga.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
Víkverji verður mitt í gleði sinniyfir glimrandi sumartíð að
kvarta eilítið, svona rétt til að finna
ákveðinni útrás farveg. Kvörtunar-
efnið er lenging skólaársins.
Man Víkverji þá bernskudaga fyr-
ir norðan að skólaslita var beðið með
mikilli eftirvæntingu svo hægt væri
að fara út í stutta íslenska sumarið
að leika sér. Ekki var orðið pláss í
heilabúi krakkanna fyrir meiri boð-
skap eftir margra mánaða nám og
sól hátt á lofti.
x x x
Nú er svo komið að flestir skólarlandsins, einkum í þéttbýlinu,
eru að störfum fram í júnímánuð en í
þeim tilvikum sem Víkverji þekkir
til er varla hægt að tala um eiginlegt
skólastarf síðustu dagana. Þeir
ganga gjarnan undir heitinu „skertir
dagar“ og þá eru nemendur kannski
ekki látnir mæta fyrr en kl. 10 á
morgnana og eru búnir upp úr há-
degi. Skólabókum er að mestu vikið
til hliðar þessa daga og nemendur
fara margir hverjir í vettvangsferðir
með kennurum sínum. Allt er það
góðra gjalda vert en Víkverji leggur
til að skólastarfinu ljúki með hnit-
miðaðri hætti, þannig að foreldrar
geti gengið að ákveðinni dagsetn-
ingu vísri þegar skóla lýkur alfarið
og sumarfrí tekur við hjá börnunum.
Óboðlegt er þegar skólarnir rekast
t.d. á við sumarnámskeið og -æfing-
ar hjá íþróttafélögum. Þannig á Vík-
verji erfitt með að skilja af hverju
grunnskólum Reykjavíkur var ekki
öllum slitið fyrir síðustu helgi.
Nokkrir þeirra héldu áfram í þessari
viku, þegar sumarstarfið hjá ÍTR
hófst og æfingar hjá íþróttafélögum
byrjuðu á nýjum tímum, og þurftu
krakkar þá að mæta í skólann á
„skertum“ mánudegi, starfsdagur
kennara var svo í einhverjum til-
vikum á þriðjudegi og skólaslit ekki
fyrr en í dag, á miðvikudegi. Þetta
fyrirkomulag er ekki nemendum í
hag og hvað þá foreldrum sem þurfa
að standa í alls konar reddingum
varðandi pössun og akstur í miðjum
vinnutíma. Þegar Víkverji hefur
fært þetta í tal við kennara þá hefur
viðkvæðið gjarnan verið þetta, með
svolitlu hæðnisglotti þeirra: Nú, það
voruð þið, foreldrarnir, sem vilduð
lengja skólaárið, ekki við!
x x x
Ekki veit Víkverji við hvaða for-eldra var talað í þeim efnum en
flestir slíkir sem hann þekkir og um-
gengst hafa lýst óánægju sinni með
núverandi fyrirkomulag. Vonandi
taka skólastjórnendur þetta til
greina fyrir skipulagningu næsta
skólaárs. Það dugir ekkert hálfkák,
annaðhvort er skólinn búinn eða
ekki, og ekki látinn fjara út með
ómældum óþægindum fyrir foreldra
og forráðamenn. Það er til dæmis
óskiljanlegt að slíta sundur síðustu
vikuna með starfsdegi kennara,
skólastjórnendur hljóta að geta
fundið þeim stað fyrr.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skólunum er loksins að ljúka, enda
komið stutt íslenskt sumar.