Morgunblaðið - 09.06.2004, Blaðsíða 43
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert ákveðin/n og átt það
til að láta fara mikið fyrir
þér. Þú hefur varðveitt
barnið í sjálfri/sjálfum þér
og hefur því einstaklega gott
lag á börnum. Þú þarft
að taka mikilvægar ákvarð-
anir á árinu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hikar ekki við að segja
skoðanir þínar á hlutunum í
dag. Þetta getur komið af
stað óvæntri atburðarás í
samskiptum þínum við systk-
ini þín.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú munt sennilega kaupa
eitthvað óvænt í dag. Þá mun
vinur þinn hugsanlega stinga
að þér góðri fjáröflunar-
hugmynd.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú vilt ekki láta segja þér
fyrir verkum í dag. Þú vilt
ráða því sjálf/ur hvernig þú
hagar lífi þínu og það getur
valdið spennu á milli þín og
foreldra þinna eða yfir-
manna.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hugsanirnar eru á fleygiferð
í kollinum á þér í dag. Þú
veist ekki hvar þú átt að
byrja og ættir helst að gera
sem minnst þar til hlutirnir
skýrast.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samningaviðræður þínar við
vini þína geta tekið óvænta
stefnu í dag. Gakktu úr
skugga um að þú hafir fengið
allar nauðsynlegar upplýs-
ingar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Búðu þig undir óvæntar
breytingar á fyrirætlunum
þínum í dag.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú munt líklega lenda í deil-
um um trúmál og heimspeki í
dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Farðu vandlega yfir alla
reikninga í dag. Það liggur
einhver fljótfærni í loftinu og
það gæti komið sér illa fyrir
þig á einhvern hátt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Varastu að taka fljótfærn-
islegar ákvarðanir í fjöl-
skyldumálunum í dag.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú verður að öllum líkindum
að gera einhverjar breyt-
ingar á vinnufyrirkomulaginu
hjá þér í dag. Þetta má hugs-
anlega rekja til einhvers kon-
ar tafa eða bilana.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert einstaklega frjó/r í
hugsun í dag. Notaðu tæki-
færið til að gera eitthvað
skapandi eða eitthvað sem
krefst frumlegrar hugsunar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er ekki útlit fyrir að neitt
gangi samkvæmt áætlun hjá
þér í dag. Það eina sem þú
getur gert er að taka þessu
með æðruleysi og þolinmæði.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
BJÖSSI LITLI Á BERGI
Bjössi litli á Bergi,
bróðurlaus á jörð,
hljóður fram til fjalla
fylgdi sinni hjörð.
Stundum verða vorin
vonum manna hörð.
Bjössi litli á Bergi
bjó við stopul skjól.
Hálsinn hamrasvartur
huldi vetrarsól.
Inni jafnt sem úti
einstæðinginn kól.
– – –
Jón Magnússon
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2004 43
DAGBÓK
Í SUMUM spilum lýkst
skiptingin upp í fyrsta slag.
Þetta er eitt af þeim.
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠KG84
♥D2
♦73
♣97652
Suður
♠ÁD
♥K106
♦K10965
♣ÁD8
Vestur Norður Austur Suður
2 tíglar * Pass PASS 3 grönd
Pass Pass Pass
Sagnir eru skrýtnar, en
upplýsandi. Opnun vesturs
er „multi“ – sýnir sex-spila
hálit og veik spil. Reynar
mjög veik spil (0–7 punkta),
því samkvæmt kerfi myndi
vestur opna á tveimur í hálit
með 8–10 punkta og sexlit.
Austur tekur óvenjulegan
pól í hæðina þegar hann
passar tvo tígla, en það þýðir
bara eitt: hann á langan tígul
og er stuttur í öðrum hálitn-
um – þeim sem hann býst við
að makker eigi. Stökk suðurs
í þrjú grönd er vissulega um-
deilanlegt, en hann vonast
eftir svolítilli hjálp frá makk-
er.
En þá er það spila-
mennskan. Vestur kemur út
með spaða, austur fylgir, og
sagnhafi tekur með ás heima.
Hvernig myndi lesandinn
spila?
Ekki er það glæsilegt, en
þó er von ef laufið gefur þrjá
slagi. Sú hugmynd er fljót að
kvikna að spila hjarta á
drottningu í þeirri von að
vestur sé með ásinn. Sé svo,
mætti svína fyrir laufkóng og
(vonandi) fríspila laufið. Þá
eru átta slagir komnir í hús
og vörnin gæti gefið þann ní-
unda á tígul eða hjarta. Þetta
er kannski eðlileg spila-
mennska, en í rauninni slæm.
Norður
♠KG84
♥D2
♦73
♣97652
Vestur Austur
♠1097532 ♠6
♥7543 ♥ÁG98
♦– ♦ÁDG842
♣G43 ♣K10
Suður
♠ÁD
♥K106
♦K10965
♣ÁD8
Best er að leggja niður
laufás í öðrum slag og spila
svo litlu laufi! Vestur lendir
inni á kóng og verður strax
að gefa tvo rauða slagi. Rest-
in er handavinna.
Þessi spilamennska bygg-
ist á því að austur eigi kóng
annan í laufi. Sem er vissu-
lega heppilegt, en í raun
mjög líklegt eftir sagnir.
Vestur á varla tígul til úr því
hann kom þar ekki út. Sem
þýðir að hann á sjö spil í
hjarta og laufi. Varla á hann
fimmlit í hjarta, svo hann
hlýtur að eiga minnst þrjú
lauf.
Spilið kom upp á lands-
liðsæfingu um síðustu helgi.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3
Rc6 5. Rf3 Db6 6. a3 c4 7. g3
Bd7 8. h4 Ra5 9. Rbd2 O-O-O
10. Bh3 f5 11. exf6 gxf6 12.
O-O Re7 13. He1 Rf5 14. Dc2
Bd6
Staðan kom upp á Evr-
ópumeistaramóti ein-
staklinga sem lauk fyrir
skömmu í Antalya í Tyrk-
landi. Stefán Kristjánsson
(2404) hefur ásamt Ingvari
Jóhannessyni hin undanfarin
misseri verið að skrifa bók
um franska vörn.
Ekki er vitað hvenær
afraksturinn kemst á
prent en á Evr-
ópumótinu tefldi
Stefán nokkrar
áhugaverðar skákir
með hvítu í 3. e5 af-
brigðinu. Næsti leik-
ur hvíts tryggir hon-
um langvarandi
frumkvæði gegn
heimanninum Yakup
Erturan (2273). 15.
Hxe6! Bxe6 16. Bxf5
Bxf5 17. Dxf5+ Kb8
18. Hb1 Dc7 19. Rf1
Hhg8 20. Bh6 Hg6 21. Bd2
Rc6 22. h5 Hgg8 23. He1
Dc8 24. Rh4 Re7 25. Dxf6
ítök hvíts á stöðunni aukast
hægt og sígandi og að lokum
tekst honum að knýja sigur.
25...Dc7 26. Bg5 Rc8 27. Bh6
Db6 28. He6 Hge8 29. Rf5
Hxe6 30. Dxe6 Dxb2 31.
Rxd6 Rxd6 32. Bf4 Db6 33.
Re3 Ka8 34. Rxd5 Dc6 35.
De7 Hd7 36. Df8+ Dc8 37.
Dxc8+ Rxc8 38. Rc7+ Kb8
39. Re6+ Ka8 40. g4 b6 41.
Be5 Re7 42. g5 Rd5 43. g6
hxg6 44. hxg6 Re7 45. g7
Rg8 46. f4 Kb7 47. Kf2 Kc6
48. Ke3 Kb5 49. f5 Ka4 50.
Kd2 Kxa3 51. Kc2 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
ÁRNAÐ HEILLA
70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 9.
júní, er frægasta önd í
heimi, Andrés önd, sjötug-
ur. Hann dvelur nú í faðmi
fjölskyldu og vina í
heimabæ sínum, Andabæ.
Dagana 12.–13. júní nk.
verður hann staddur hér á
landi. Í tilefni af því verður
haldin mikil afmælishátíð í
Kringlunni báða dagana.
Allir hjartanlega velkomnir.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 9.
júní, er fimmtugur Sigurður
B. Arnþórsson, löggiltur
endurskoðandi, Grófarseli
18, Reykjavík, meðeigandi
hjá Pricewaterhouse-
Coopers hf. og formaður
Félags löggiltra endur-
skoðenda. Eiginkona hans
er Aðalheiður Diego.
Morgunblaðið/Kristján
Þessar ungu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu á Akureyri til
styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðust 4.171 kr. Þær
heita Guðríður Lilja Lýðsdóttir og Sandra María Jessen.
HLUTAVELTA
Opnunartími
mán.-fös. kl. 11-18
lau. kl. 11-14
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Óskum eftir að ráða starfskraft
25 ára og eldri
til afgreiðslu í verslun okkar
í Skipagötu 5, Akureyri.
Upplýsingar gefur Þorgerður í verslun
mbl.isFRÉTTIR