Morgunblaðið - 09.06.2004, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LEIKMANNAHÓPUR karlaliðs
Stjörnunnar í handknattleik þynnist
með hverjum deginum sem líður en
mikill flótti er úr Garðabæjarliðinu.
Í gær gekk Bjarni Gunnarsson til
liðs við FH og er hann fimmti leik-
maðurinn sem lék með Stjörnunni á
síðustu leiktíð sem kominn er í ann-
að lið. Arnar Jón Agnarsson er kom-
inn til FH, Vilhjálmur Halldórsson í
Val, Gunnar Ingi Jóhannsson í
Hauka og Björn Friðriksson í
Gróttu/KR. Þá eru Sigurður Bjarna-
son og Gústaf Bjarnason hættir og
markvörðurinn Jacek Kowal verður
ekki með Stjörnunni á næstu leiktíð
og líklegt er að Þórólfur Nielsen leiti
á önnur mið eða taki sér frí.
„Það er vonum slæmt að missa
nánast byrjunarliðið á einu bretti en
við verðum bara að taka þessu og
vinna okkur út úr vandræðunum,“
sagði Halldór Sigurðsson stjórn-
armaður í Stjörnunni við Morgun-
blaðið í gær. Spurður hvort kæmi til
greina að senda ekki lið til leiks á
næsta tímabili sagði Halldór; „Það
kemur ekki til greina. Stjarnan hef-
ur alltaf sent lið til leiks í karla- og
kvennaflokki og það verður engin
breyting á því. Þetta verður örugg-
lega þungur róður en við leysum
þetta í sameiningu Stjörnumenn,“
sagði Halldór.
Magnús Teitsson var á dögunum
ráðinn þjálfari Stjörnunnar í stað
Sigurðar Bjarnasonar og ljóst er að
hans bíður afar erfitt verkefni.
KRISTINN Jakobsson, knatt-
spyrnudómari, er þessa dagana í
Frakklandi þar sem hann er einn
dómara á móti fyrir leikmenn 21 árs
og yngri í Toulon. Kristinn dæmdi á
laugardaginn leik Frakklands og
Kólumbíu, sem endaði 2:0 fyrir
Frakka og hafði áður verið vara-
dómari á leik Japan og Svíþjóðar og
aðstoðardómari á leik Frakklands og
Kína. Kristinn verður í Frakklandi
út þessa viku en undanúrslit og úrslit
verða um helgina.
GUNNAR Pettersen landsliðs-
þjálfari Norðmanna í handknattleik
segir að sínir menn hafi burði til að
vera með í baráttunni um verðlaun á
heimsmeistaramótinu í Túnis á
næsta ári en Norðmenn tryggðu
keppnisréttinn á HM með því að hafa
betur samanlagt gegn Ungverjum í
leikjum um sæti á HM. „Ég sagði fyr-
ir þremur árum að ég hefði sett mér
það markmið að vinna til verðlauna á
stórmóti innan fimm ára og ég stend
við það,“ sagði Petterson í viðtali við
norska blaðið Verdens Gang. Norð-
menn hafa ekki tekið þátt í stórmóti
síðan árið 2000.
NORSKA landsliðið hefur sjaldan
eða aldrei verið eins vel mannað og í
dag og margir leikmanna liðsins leika
með sterkum félagsliðum. Christian
Berge, Johnny Jensen og Kjetil
Strand leika allir með meistaraliði
Flensburgar í Þýskalandi, Glenn
Solberg og Frode Hagen með Barce-
lona á Spáni, Jan Thomas Lauritzen
með Essen í Þýskalandi, markvörð-
urinn Steinar Ege er hjá Gummers-
bach í Þýskalandi, Kristian Kjelling
hjá Ademar Leon á Spáni, Marius
Riise hjá Altea á Spáni og Preben
Vildalen leikur með þýska liðinu
Eisenach.
SKOSKI landsliðsframherjinn
Paul Dickov gekk í gær til liðs við
Blackburn Rovers frá Leicester City.
Kaupverðið var 150 þúsund pund.
Dickov, sem er 31 árs, gekk til liðs við
Leicester frá Manchester City árið
1997 fyrir eina milljón punda og skor-
aði 35 mörk í 97 leikjum fyrir félagið.
JESPER Grønkjær mun að öllum
líkindum ekki spila með danska
landsliðinu á EM í Portúgal. Alvarleg
veikindi komu upp í fjölskyldu hans
og því fór hann ekki með liðinu til
Portúgal eins og til stóð. Morten Ol-
sen, þjálfari danska landsliðsins, ætl-
ar þó að halda sæti hans lausu færi
svo að Grønkjær ákveði að spila með.
FULHAM hefur leyst sóknarmann-
inn Barry Hayles undan samningi við
liðið. Hinn 32 ára gamli Hayles kom
til félagsins árið 1998 og hann lék yfir
100 leiki fyrir Fulham.
VARNARMAÐURINN Paulo
Ferreira mun leika með Chelsea á
næsta keppnistímabili en hann hefur
verið í herbúðum Porto. Ferreira er
25 ára gamall portúgalskur landsliðs-
maður.
FÓLK ROBERTAS Pauzuolis, lithá-íska stórskyttan í Íslands-
meistaraliði Hauka, er geng-
inn til liðs við þýska 1.
deildarliðið Wilhelmshavener.
Pauzuolis, sem er 31 árs gam-
all og hefur leikið með Sel-
fossi, ÍBV, Fram og Haukum,
gerði eins árs samning við Wil-
helmshavener en samkvæmt
ákvæði í samningnum hefur
hann möguleika á að fram-
lengja hann um eitt ár. Þetta
er óneitanlega mikil blóðtaka
fyrir Hauka en hann hefur
verið einn besti leikmaður
liðsins undanfarin ár tvö ár.
Landsliðsmaðurinn Gylfi
Gylfason leikur með Wilhelms-
havener sem lenti í 11. sæti á
nýafstöðnu tímabili.
Það var blaðamaður AP-frétta-stofunnar sem ræddi í vikunni
um þessi mál og fer hér á eftir laus-
leg þýðing á grein hans. Þar segir
hann meðal annars að sterkustu
deildir heims séu á Englandi, Spáni
og Ítalíu. Í Miðjarðarhafslöndunum
tveimur séu langflestir leikmenn lið-
anna heimamenn og það sama sé að
segja um þjálfarana. Í Englandi hef-
ur heimamaður ekki verið við stjórn-
völinn hjá meistaraliði síðan 1992.
Land sem áður átti fræga þjálfara
leitar nú út fyrir landsteinana að
þjálfurum.
Frakkinn Arsene Wenger hefur
þjálfað Arsenal síðan 1996 og krækti
í þriðja meistaratitil sinn fyrir
skömmu. Helstu stjörnur liðsins eru
Frakkar: Thierry Henry, Robert
Pires og miðjumaðurinn og fyrirlið-
inn Patrick Vieira. Markvörðurinn
Jens Lehmann er þýskur og einn lit-
ríkasti leikmaður deildarinnar und-
anfarin ár er Hollendingurinn Denn-
is Bergkamp.
Skotinn Sir Alex Ferguson þjálfar
Manchester United og besti maður
liðsins er Hollendingurinn Ruud van
Nistelrooy.
Jafnvel enska landsliðið hefur leit-
að út fyrir landsteinana og þar er
Svíinn Sven-Göran Eriksson við
stjórnvölin.
„Við höfum ekkert á móti því að
hæfir erlendir þjálfarar vinni hér,“
segir Frank Clark, varaforseti
enska knattspyrnuþjálfarafélagsins.
„En við erum ekki sammála fras-
anum „útlendingar eru góðir en
Englendingar slæmir“, og við viljum
eyða þeirri hugsun,“ segir hann og
tekur fram að hann flokki Skota sem
útlendinga í ensku knattspyrnunni.
Þegar rússneski auðkýfingurinn
Roman Abramovich rak Ítalann
Claudio Ranieri í síðustu viku og réð
síðan Jose Mourinho frá Portúgal
sem næsta knattspyrnustjóra
Chelsea var enginn Englendingur
inni í myndinni.
Síðasti heimamaðurinn til að
stjórna liði til sigurs í ensku deild-
inni var Howard Wilkinson, en hann
var við stjórnvölinn hjá Leeds fyrir
tólf árum. Eini heimamaðurinn sem
er við stjórnvölinn hjá einu af fimm
efstu liðum deildarinnar er hinn 71
árs gamli Bobby Robson hjá New-
castle. Og hann lærði mikið sem
þjálfari á Spáni og í Portúgal.
Það var einmitt Robson sem upp-
götvaði Mourinho og réð hann sem
túlk fyrir sig hjá Sporting Lissabon
fyrir áratug eða svo. „Hann hefur
svo sannarlega komið ár sinni vel
fyrir borð og ég er ánægður fyrir
hans hönd,“ segir Robson um fram-
gang félaga síns.
Tottenham réð Danann Frank
Arnesen sem yfirmann íþróttamála
og undir lok síðustu viku var Jacq-
ues Santini, landsliðsþjálfari
Frakka, ráðinn knattspyrnustjóri.
Tekur hann við strax að loknum
Evrópumeistaramótinu í Portúgal.
Helsta breska nafnið sem nefnt er
þessa dagana er Martin O’Neill,
Norður-Íri sem var hjá Celtic í Skot-
landi.
Liverpool rak á dögunum Frakk-
ann Gerard Houllier. Sá sem talinn
er líklegasti arftaki hans nú um-
stundir er Rafa Benitez. Hljómar
það enskt? Varla! Hann er Spánverji
hefur undanfarin ár verið við stjórn-
völin hjá Valencia.
Það eru nokkrir frambærilegir
enskir þjálfarar. Alan Curbishley
hjá Charlton, Sam Allardyce hjá
Bolton, Steve McClaren hjá Middl-
esbrough og Steve Bruce hjá Birm-
ingham. En sterkustu liðin hafa ekki
litið við þeim.
Þó svo Kínverjar og Egyptar
haldi því fram að þeir hafi fundið
upp knattspyrnuna þá hjálpuðu
Englendingar til við að setja íþrótt-
inni reglur fyrir 120 árum. Nú virð-
ist sem sú mikla uppbygging, sem
var á Englandi áður fyrr, sé að
hverfa.
Þjálfarar í Englandi þurftu engin
formleg próf allt þar til á síðustu
leiktíð. England var eina Evrópu-
landið sem þannig var ástatt með.
„Við höfðum þá hefð hér að hver sem
er gat í rauninni komið af götunni og
þjálfað lið, ef hann hafði þokkalegt
næmi fyrir íþróttinni. Þetta var
gamli áhugamannahugsunarháttur-
inn. Við trúðum því líka að til að
verða góður þjálfari þyrfti þú að
vera góður knattspyrnumaður.
Arsene Wenger hefur afsannað þá
kenningu,“ segir Clark hjá þjálfara-
félaginu.
Það gerðu líka ensku hetjurnar
frá HM 1966, Bobby Charlton og
Bobby Moore, sem báðir þóttu
standa sig illa sem þjálfarar.
Wenger breytti enskri knatt-
spyrnu þegar hann kom til landsins
fyrir nærri átta árum. Hann kom
með nýjar aðferðir við þjálfun sem
meðal annars fólust í því að sleppa
bjórnum eftir æfingar og leggja
áherslu á léttleikandi samleik og
hreyfingu án bolta í stað „kick-and-
chase“-aðferðarinnar.
Með Bosman-reglunum, sem
heimila Evrópubúum að leika hvar
sem er í Evrópu, komu dýrir leik-
menn þangað sem miklir peningar
voru – til Englands.
Líkt og Wenger var Mourinho að-
eins miðlungsleikmaður. Fyrir
þremur árum þjálfaði hann Uniao
Leiria, lið sem aðeins nokkur þús-
und áhorfendur komu til að sjá leika.
Reuters
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, og Sir Alex Ferguson, hjá Manchester United, hafa sett
hvað mestan svip á enska knattspyrnu síðustu ár enda stýrt tveimur sigursælustu liðum Englands.
Eru færir enskir þjálfarar vandfundnir um þessar mundir?
Enginn enskur stjóri
hjá bestu liðunum
KNATTSPYRNAN kann að vera runnin undan rifjum Englendinga, en
öðru máli virðist gegna um þá sem sjá um þjálfun knattspyrnu-
manna. Enginn Englendingur er við stjórnvölinn hjá stærstu og sig-
ursælustu liðum Englands og aukin heldur er landsliðsþjálfari Eng-
lendinga útlendingur.
Pauzuolis til
Wilhelms-
havener
Leikmannahópur Stjörn-
unnar þynnist enn frekar