Morgunblaðið - 30.06.2004, Page 33
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2004 33
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
OPIÐ HÚS MIÐVIKUDAGINN 30/06
Vallarás 4 - lyftuhús
Góð 3ja herb. 86 fm íbúð á 4. hæð
í lyftuhúsi. Hol með flísum og fata-
skáp. Eldhús með hvítri innrétt-
ingu, flísum á gólfi og borðkrók við
glugga. Dúklagt baðherbergi með
baðkari og tengt f. þvottavél. Rúm-
góð stofa með útg. á vestursvalir.
Sjónvarpshol. Tvö svefnherbergi
með dúk á gólfi og skápum. Sam-
eiginlegt þvottahús er á 1. hæð ásamt sérgeymslu og hjóla/vagna-
geymslu. Húsið er steniklætt og því viðhaldslítið. Þetta er góð eign á
góðum stað. Áhv. er 5,8 millj. Verð 12,9 millj.
Hrafn og Hildur taka vel á móti ykkur í dag
á milli kl. 17.00 og 19.00.
Úrval af
glæsilegum
fatnaði fyrir konur
á öllum aldri
Stærðir 36-52
Opnunartími
mán.-fös. kl. 11-18
lau. kl. 11-14
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Útsala
Sumarútsalan hefst 1. júlí
Komdu og gerðu
dúndur kaup
30-70%
afsláttur
Góðar vörur
á ótrúlegu verði
Heilsudrekinn
Kínversk heilsulind
Ármúla 17a
Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.isKung Fu
Skeifunni 3J
Næstu helgi verður haldin mikil hátíð íGömlu Borg í Grímsnesi og verðamargar skemmtilegar uppákomur.Lísa Thomsen er ein þeirra sem
stendur að þessari hátíð.
Þetta er ansi merkilegur staður er það ekki?
„Jú, þetta hús á sér langa og merkilega sögu.
Það var Ungmennafélgið Hvöt sem hafði veg og
vanda af að byggja það árið 1929. Þessi bygging
reyndist ungmennafélaginu ofviða og yfirtók
hreppurinn hana fljótlega. Þarna var þinghús
hreppsins og ungmennafélagið setti upp leikrit á
litla sviðinu. Árið 1942 hófst tími dansleikjanna
og gekk þá húsið undir nafninu Minni-Borg og
voru Minni-Borgar böllin vinsæl um allt Suður-
land. Árið 1966 var nýtt félagsheimili og þá var
Gamla Borg tekin undir bílaverkstæði og kemur
þá nafnið Gamla Borg til sögunnar. Bílaverk-
stæði var rekið hér í 30 ár eða til ársins 1995.“
Hvenær var hafist handa við að endurreisa
Gömlu Borg og hvernig tókst það til?
„Það var snemma árs 1996. Ég hafði lengi
horft á þetta fallega hús og fannst miður að sjá
það í niðurníðslu. Ég fékk til liðs við mig nokkr-
ar konur úr sveitinni og stofnuðum við áhuga-
félag um endurbyggingu hússins. Það gekk eftir
og að loknu miklu sjálfboðaliðsstarfi og að-
keyptri vinnu var húsið endurvígt 2. júlí 1999,
þá var húsið 70 ára gamalt. Það var mikil vinna
við endurbygginguna en afar ánægjuleg og er
það álit manna sem skoða húsið að vel hafi til
tekist. Við fáum marga gesti sem hafa sögur að
segja frá árum áður, þegar það var hér á böll-
um, margir kynntust lífsförunaut sínum hér, þar
á meðal ég.“
Hvaða starfsemi fer fram í Gömlu Borg?
„Í dag rekum við hér kaffihús og krá með
allskyns uppákomum. Við bjóðum upp á heima-
bakaðar kökur í anda hinnar íslensku húsmóður,
auk ljúffengrar súpu. Það er draumur okkar að
húsið nái að dafna, iða af lífi, söng, gleði og
sögu. Það er ákaflega gaman að sjá kynslóðirnar
mætast hér, dansa og skemmta sér saman og
hér leika ýmsir fyrir dansi. Um næstu helgi eru
liðin 5 ár frá því að við opnuðum húsið eftir end-
urbygginguna. Því ætlum við að fagna og halda
hátíð, Ingrid Hlíðberg opnar listsýningu sína,
spurningakeppni verður kl. 20 á laugardag í
samstarfi við Rolf Johanson á léttum nótum þar
sem allir geta verið með og eru spurningarnar
um sveitina og nágrennið til fróðleiks og
skemmtunar fyrir sumarbústaðafólkið og aðra.
Loks dunar dansinn fram eftir nóttu. Staðsetn-
ing Gömlu Borgar er góð enda í alfaraleið,
verslun nálægt, einnig tjaldstæði og hestagerði.
Gamla Borg er því tilvalinn staður fyrir óvissu-
ferðir, brúðkaup, afmæli o.fl.“
Hátíð| 5 ár liðin frá enduropnun Gömlu Borgar
Sagan svífur yfir vötnum
Lísa Thomsen er
fædd 17. júlí 1944. Hún
ólst upp í Reykjavík og
útskrifaðist úr Versl-
unarskóla Íslands árið
1963. Árið 1963 fluttist
Lísa austur í Grímsnes
og hefur búið þar síðan.
Hún útskrifaðist úr
Fjölbrautaskóla Suður-
lands 1992. Lísa er gift
Böðvari Pálssyni, fyrr-
verandi bónda og oddvita, og eiga þau hjón
fimm uppkomin börn, Sigurð, Laufeyju, Bryn-
dísi Ástu, Önnu Ýri og Láru. Hún starfar sem
hjúkrunarritari á Heilbrigðisstofnuninni á Sel-
fossi.
Gaman í Húsdýragarðinum
VIÐ SKEMMTUM okkur kon-
unglega í Húsdýragarðinum á
Jónsmessuhátíð. Í boði var vönduð
og skemmtileg dagskrá og starfs-
fólk Húsdýragarðsins á heiður skil-
inn því það lagði sig mikið fram við
að skemmta gestum og gangandi.
Helga og Apríl.
Hugdetta
ÞAÐ er fátt sem gleður augu og
eyru hvað fjölmiðla varðar þessa
dagana. Fótbolti og fótbolti og ekk-
ert annað.
Nú eru forsetakosningar að baki
og sem betur fer var meirihluti
þjóðarinnar viss um hvað hún vildi
og óska ég Ólafi Ragnari allra
heilla, nú sem endranær. Hann er
og verður farsæll í starfi.
Einn stjórnmálaflokkur er þó
með armæðu og ergelsi yfir úrslit-
unum. Hann í anda allra sinna
manna, var búinn, að mínu mati, að
ákveða aðra útkomu. Sýndi þó
kjark til þess að fara á kjörstað en
gleymdi líklega skriffærum heima.
Davíð heldur opinni gjánni en er
hún ekki einhvers staðar svo mjó að
hann í fararbroddi geti ekki sýnt
hugrekki og stokkið fyrst yfir? Þá
munu hans menn allir á eftir fara
og jörðin hætta að hristast svo þeir
megi allir samgleðjast forseta Ís-
lands og stutt hann til góðra verka
fyrir land og þjóð.
Ég held að þessu nuddi megi fara
að linna en því miður held ég að það
verði sama útkoman þegar at-
kvæðagreiðslan um fjölmiðla-
frumvarpið verður. Ég held við
megum búast við sama nuddinu.
Kristjana Vagnsdóttir.
Dagur, Ljóska og Lubbi
ÉG SAKNA teiknimyndadálkanna
um Dag og Ljósku og hundinn
Lubba. Gaman væri að sjá þær aft-
ur í blaðinu. Þá mættu Víkverji og
Velvakandi vera meira áberandi.
Guðrún Magnúsdóttir.
Íþróttaskór tapaðist
SVARTUR Reebok íþróttaskór féll
úr bíl á Laugaveginum á móts við
verslun Skífunnar. Óhappið átti sér
stað sl. föstudag. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hafa samband í
síma 899 4575.
Ullarteppi fannst
HANDPRJÓNAÐ ullarbarnateppi
fannst hinn 17. júní sl. í Hljóm-
skálagarðinum. Upplýsingar í síma
568 7215.
Gleraugu fundust
GLERAUGU fundust fyrir
skömmu á grindverkinu sem skilur
að Skúlagötu 64 og gangstíginn.
Upplýsingar gefur Steingrímur í
síma 551 5900.
Loki er týndur
LOKI týndist frá heimili sínu á
Suðurgötu í Rvík, föstudaginn 11.
júní sl. Hann er Balinese síams-
köttur, ljósdrappaður að lit og
dökkbrúnn kringum andlit og fæt-
ur. Hann er með bláa hálsól og
merktur með heimilisfangi og síma-
númeri. Þeir sem hafa orðið varir
við ferðir Loka eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við Mar-
gréti í síma 664 9919.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
BANDARÍSKUR drengjakór frá
Minnesota er gestur Unglingakórs
Grafarvogskirkju um þessar mundir
og halda kórarnir sameiginlega tón-
leika í Grafarvogskirkju kl. 20 í kvöld.
„Kórinn kom hingað í fyrrasumar og
hélt tónleika í Grafarvogskirkju,“ seg-
ir Oddný Jóna Þorsteinsdóttir, stjórn-
andi Unglingakórs Grafarvogskirkju.
„Sú hugmynd kom hjá okkur að end-
urgjalda heimsóknina og tóku þeir
mjög vel í það. Þeir sögðust þá enn
ætla í tónleikaferð um Evrópu og
langaði að koma við hér og halda tón-
leika hjá okkur aftur. Stjórnandi
kórsins frá árinu 1997 er Francis
Stockwell sem starfaði áður um tíma
með Vínardrengjakórnum og þeir
hittu þann kór á tónleikaferðalagi
sínu í Austurríki.“
Kórinn er hluti af hinum stóra
Land of Lakes Choirboys. Honum er
skipt í fjóra hluta eftir aldursstigum
og reynslu, alls um 100 kórfélagar.
Drengirnir sem hingað koma eru um
30 talsins á aldrinum 10–14 ára. Þeir
flytja allar tegundir tónlistar en í
kvöld syngja þeir kirkjuleg verk og
þjóðlög.
Unglingakór Grafarvogskirkju hef-
ur komið víða fram hér heima og
einnig haldið tónleika bæði í Svíþjóð,
Danmörku og nú síðast í St. Gilés
Dómkirkjunni í Edinborg í mars á
síðasta ári. Kórinn er að jafnaði skip-
aður 30 stúlkum en á tónleikunum eru
þær 26. Kórarnir syngja hvor í sínu
lagi og sameinast svo í lok tón-
leikanna. Meðleikari er Hörður
Bragason, organisti Grafarvogskirkju.
Land of Lakes Choirboys syngja í
Skálholtskirkju á fimmtudag.
Drengjakórinn frá Minnesota, Land of lakes Choirboys.
Frá Minnesota
til Grafarvogs