Íslendingaþættir Tímans - 08.04.1970, Blaðsíða 25

Íslendingaþættir Tímans - 08.04.1970, Blaðsíða 25
DEMANTSBRÚÐKAUP Jónu og Arna Jakobssonar í VANCOUVER 28. anarz sl var haldið hátíð- letgt 60 ára giftinigarafmœli þessatra imeridishjón'a, en þau voru giff 2. apTÍl 1910 í Winnipeg. Árni Jaikobsson fæddist 12. maí 1886 í Ra-uðuskriöu í Þlngeyjarsýslu. IPoreldirar voru hjónin Jakob Jóns- son og Sigriðiur Ingiríður Sigurðar dóttir, úr Þingeyjansýslu, en flutt- ust tveim árum eftir fæðingu Árrna til Kanada. Prú Jóna er hins vegar fædd hér í Kanada á Lögbergi í Saskatchewan, foreldrar hennar voru Friðlundur Jónsson og Helga Hinriksdóttir, bæði kom-in úr Húnavatnssýslu. Fyrir réttu ári er ég, er þessar línur rita, var að vinnu langt uppi í Kascadefjöllum hér í Kanada, bar fundum -siaman við niann nokk um, sem mér til mikiUar furðu, talaði íslenzku engu síður en ég, iþá aðeins kominn að heiman. Þetta var tengdasonur Árna og Jónu, Sigmar Sveinsson, eiginmaður Jak'obínu Si'gríðar, húverandi forstöðukonu íslenzka elli- heimilisins hér í Vancouver. Þar sem Sigmar gat efcki um annað talað en ísland, þótt aldrei hefði hann þamgað komið, upphófust iþarna kynni mín af þeim mikla ættbálki sem kominn er út af þeini 'hjónum Árna og Jónu, og þeim sjálfum um leið, mér og konu minnd til mikils happs, gleði og ánægju, sem sei-nt mun fyrnast. Enda þótt flest af böirnum þeirra hjóna búi hér í British Kolumbia, þá hafa þau búið frá árinu 1918 í Ashern Manitoba, en létu nú undan börnum sínum að koma hingað á veðurmildari slóð ir, en þeim hjónum lætur ekki að skapi að sitja aðgerðaiiaus og hyggja beim í Siglunesjabyggð strax og vorar, og mun Árni vera orðinn órór í skapi, því hér í IBritish Kolumbia er nú sól og hiti, bióm og runnar farin að skarta Bínu fegursta, en væntanlega legg- ur hann fiskikaup á hilluna, en þau liefur hann stundað frá árinu 1937 Oig til ársins 1969. Er það nokkuð góður starfsdagur. Sömu- leiðis var Árni í skólanefnd SAglu- nesbyggðar í 35 ár og er mór sagt, að hann hafi verið með afbrigðum traustur og vinsæll maður og ekki talið eftir að ljá hönd til sveitar eða náuniganis, ef þess var farið á leát. Þótt efnin væru ekki mikil, enda heimilið stórt, þá var það gert út á ramimíslen2íka vísu með norðlc r zkri gestrisni, enda gesta- gangu eftir þvi. Bömin voru alin upp i í -lenzknm siðum og til marks i n það á þriðji ættliður- inn frá 'ieim Árna og Jónu, hægt með a® lcoona fyrir sig svörum á kjamyrtri íslenzfcu ef svo ber undir og hvort sem tengdadóttirin er hollenzk eða skozk, þá þarf eng'im íslendingi að bregða, þótt hoLum verði boðin rúllupylsa og pönnuköfcur. Auðvitað eru tengda- börnin af mörgum þjóðernum, þar sem börn þeirra Árna og Jónu urðu 11. Bamabörn og barnabaroa börn 28. Verða börn þeirra nú nefnd, eitt barn hafa þau misst, elzta . barnið, Wilfred d. 1948, en hin eru: Jakobína Sigríður gift Sig mari Sveinssyni, þau bjuggu lengi í New York. Gordon kvæntur Beb, Tómas kvæntur Mörtu, Skúli kvœntur Marion, Kenneth kvænt ur Jean, Ella gift Jónasi, Bjöm kvæntur Muriel, Arthur kvæntur Mercy og Klara gift Jarnes. Öll hafa bömin tekið föðumafn afa slns og kalla -sig Johmsotn. Heimilisfaug Jónu og Áxna Jakobssonar hér er: 1986. East 38 ave., Vancouver, B.C. Kanada. Með þessum línum færum yið hjónin þeim Árna og Jónu okkar beztu hamingjuóskir á íslenzka vísu með afmælið. Guðiaugur Bjarnason. ÍSLENDINGAÞÆTTIR 25

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.