Íslendingaþættir Tímans - 20.06.1970, Qupperneq 30
SEXTUGUR
Baldvin Þ. Kristjánsson
félagsmálafulltrúi
Baldvin Þ. Kristjánsson átti sex-
tugsafmæli 9. apríl s.l. Heimsótti
hann þá margt manna og margar
kveójur bárust. Meðal þeirra var
eftirfarandi afmælisgrein, sem
fyrst var lesin yfir gestum, en birt
lst hér samkvæmt tilmælum höf-
undar.
Kona Baldvins Þ. er Gróa Ás-
mundsdóttir frá Akranesi. Synir
þeirra eru Kristján sjúkrahúslækn
ir í Stykkishólmi, kvæntur Inger
Hallsdóttur — og Gunnlaugur flug
vélavirki hjá Fugfélagi íslands,
kvæntur Hildi Jónsdóttur. Barna-
börn þeirra Baldvins og Gróu eru
sjö.
Baldvin Þorkell Kristjánsson
fæddist 9. apríl 1910 að Stað í Að-
alvík. Hann er sonur hjónanna
Kristjáns Egilssonar og Halldóru
Finnbjörnsdóttur. Kristján var sjó
maður og verkamaður og Baldvin
sonur hans hóf sjómennsku þegar
í æsku. Ströndin og hafið fóstr-
uðu hann fram yfir tvítugt, og
ásamt með æskuheimilinu, komu
honum til mikils þroska og mót-
uðu skapgerð hans á varanlegan
hátt. Hann naut góðrar skóla-
göngu að Núpi og í Samvinnnskól-
anum. Síðar stundaði hann nám í
skólum samvinnumanna í Sviþjóð.
En einkum hefur honum orðið
notadrjúgt að nema í skóla lífsins,
og þar hefur hann ekki verið hlut-
laus nemandi, heldur sívinnandi
og sívaxandi.
Baldvin Þ. Kristjánsson hefur
stundað margs konar störf og
verða hér nokkur nefnd. Þegar
hann hætti sjómennsku varð hann
skrifstofumaður hjá Samvinnufé-
Iagi ísfirðinga, aðeins 22 ára gam-
all. Síðan aðalbókari og gjaldkeri
Síldarútvegsnefndar á Siglufirði í
allmörg ár. Þá erindreki Land-
sambands ísl. útvegsmanna. Eftir
það erindreki Sambands fslenzkra
samvininufélaga og upp úr því
framkvæmdastjóri hraðfrysti-
húss SÍS á Kirkjusandi. Var
hann í þjónustu Sambandsins
samtals í 14 ár. Síðan 1960 hefur
hann verið útbreiðslustjóri og fé-
lagsmálafuHtrúi Samvinnutrygg
inga.
Auk þessa hefur hann gegnt
fjölda annarra trúnaðarstarfa eink
um á vegum félagsmála. Nú hin
síðari ár hefur hann unnið að þýð-
ingu bóka um trúarlega heimspeki
og hafa þær bækur vakið mjög
mikla athygii um allt land.
Af hinum fjölbreyttu störfum
hefur Baldvin hlotið margs konar
stöðuheiti. En einkum hefur hon-
um orðið fast í hendi erindreka
heitið. Það nafn fer honum vel og
er réttnefni. Hann hefiur farið
margra erinda um allt ísland í
þjónustu þeirra málefna, sem hann
trúir á og treystir að séu góð.
Hann rekur sín erindi a-f skaphita
og hreinskilni og hlífir hvor-ki sjálf
um sér né öðrum. Hann er ferða-
garpur. Ef hann hefði verið uppi
á söguöld, gæti hann vel hafa orð
ið trúboði. og víst er, að þá mundi
hann ekki hafa fallið á flótta.
Hann trúir á hugsjónir og blygð
ast sín ekki fyrir, og hann er ekki
haldinn minnsta efa um það, að
lífið sé a-nnað og meira en brauð
og leikir. Hann er blessunarlega
laus við þræikun éfans, en aftur
á móti tryggur bjónn trúarinnar.
Baldvin Þ. Kristjánsson býr yfir
slík-um lífsþrótti, að það er þrek-
raun litlum körlum að v-erða hon-
um samferða. Hann veltir ekki
vöngum yfir torfærum og skap
hans hitnar því meira sem kaldara
blæs á móti.
En að vera með honum einum
á ferð um tunglskinsbjarta vetrar-
nótt, þegar stirnir á hjarn og ísa
og stjörnur skína í heiði, er
Ógleymanlegt. Hann segir svo vel
frá, að gott er á að hlýða. Hann
er hafsjór af lausavísum og orðs-
kviðum. Honum er tiltækt að vitna
1 ljóð góðskálda af slíku öryggi að
u-ndrum sætir. Sjálfur gerir hann
stökur af íþrótt, ef hann vill svo
við hafa, en hefur slíkt ekk ií há-
mælum. Hann hefur frá mör-gu að
segja, því 1-ífið hefur orðið hon-
um ævintýrabók. Þá bók opnar
hann vinum sínum og leyfir þeim
að njóta með sér lestursins.
Baldvin Þ. Kristjánsson er því
líkt lukkunnar barn, að unna fögr
um listum af lífi og sál. Þær eru
heitu hjarta hans hið sama og
morgundöggin björkinni, svölun
og næring. Fyrir þeim krýpur
hinn stolti baráttumaður í auð-
mýkt.
Þessari grein er ekki ætlað að
vera æviskýrsla sextugs athafna-
manns. Hún er aðeins hugleiðing-
ar um sextugan æskumann, sem
ef til vill gætu varpað ljósi á það,
hvers vegna hann er enn svo ung-
ur.
Jafnframt eiga þær að flytja af-
mælisbarni heita þökk fyrir drengi
lega vináttu. „Afmælisbarn“ er
eitt hinna unaðslegu orða tung-
unnar. Það vitnar jafnt til fortið-
ar sem framtíðar. Það leiðir hug-
ann að áfanga, se-m er náð, og
undru-n ókominna daga. Megi þeir
dagar verða Baldvini Þ. Kristjáns-
syni lifandi líf.
Páll H. Jónsson, Laugum.
Sem arnsúgur Baldvin, — fer
nafn þitt um nes og voga,
náskylt þeim hreinleik,
sem einkennir landið mitt.
Hvort mælir þú strítt, eða
leikur létt með þinn boga,
mun lýðurinn frjálsborni,
hlusta á óskabarn sitt.
Lóa og
Hallgrímur Th. Björnsson.
30
fSLENDINGAÞÆTTIR