Íslendingaþættir Tímans - 20.06.1970, Blaðsíða 31
SJÖTUGUR:
ÍSLEIFUR SVEINSSON
trésmíðameistari, Hvolsvelli
Síðla hausts árið 1942 fluttu þau
hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir
og ísleifur Sveinsson frá Miðkoti
í Fljótshlíð út í Hvolsvallarkaup-
tún og hófu þar byggingu á snotru
íbúðarhúsi einu af þeim fyrstu, sem
þar risu af grunni. Húsinu var af
húsráðendum ekki gefið nafn eins
og þá var aigeng venja í þorpum
og kauptúnum, en barnabörnin,
sem strax fóru að venja kornur
sína í nýja húsið, nefndu það
Ömmubæ og við þá nafngift situr
enn í dag.
Ingibjörg og ísleifur byrjuðu á
næsta vori að pæla landið um-
hverfis húsið sitt og gróðursetja
trjá og blúmagróður og við þann
starfa hafa þau hjónin unað mörg
lörng vorkvöld á undanförnum ár-
um, svo að langt er síðan að lim-
rík tré og litfríð blóm fóru að
Prýða garðinn þeirra. ísleifur
Sveinsson varð sjötugur 18. júní.
— Foreldrar hans eru Sveinn Jóns
son frá Lambalæk og Margrét
Guðnadóttir frá Hallgeirseyjar-
hjáleigu. Hjónin Sveinn og Mar-
grét hófu búskap að Skíðabakka
í Austur-Landeyjahreppi, þar sem
ísleifur fæddist aldamótaárið, en
fluttu eftir fárra ára búskap að
Miðkoti í Fljótshlíð og bjuggu þar
til ársins 1922. Sveinn Jónsson var
snillmgssmiður og stundaði smíð-
ar með búskapnum. Árið 1923 gift
ust þau Ingibjörg og fsleifur og
tóku við búsforráðum.
Miðkot í Fljótshlíð er engin
kostajörð, til þess er hún of land
Þröng. Hún er í miðri Fljótshíð
ú bökkum Þverár. Hagar jarðarinn
ar eru sunnan Þverár á svonefnd-
Ulí> Aurum. Oft var erfitt að kom-
ast yfir ána á búskaparárum ís-
’eifs, en hann var afbragðs vatna-
^aaður og átti trausta hesta og víl-
aði ekki fyrir sér ófrýnilega ála og
var iðulega fenginn sem fylgdar-
Piaður yfir Þverá.
Hjónunum í Miðkoti varð sex
®annvænlegra barna auðið, sem
öll lifa og eru löngu farin úr föð
Prgarði og er hópur barnaharn-
anna orðinn stór. Áður en Ingi
jorg giftist, eignaðist hún eina
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
dóttur, sem- ólst upp með hálf
systkinum sínum og reyndist ís
leifur henni eins og faðir getur
bezt reynzt barni sínu. Heunilið í
Miðkoti var stórt þvi auk sjö
barna voru í heimilinu tvær gaml
ar konur, sem fylgdu þeim hjón
um út í Hvolsvöll.
Margrét Guðnadóttir, móðir ís
leifs, stórmerkileg skapfestu og
tryggðarkona og Kristín Krist
mundsdóttir, en með þeim heið
urskonum hafði gegnum gömul
tengsl skapazt óbilandi vinátta.
Þau Ingibjörg og ísleifur bjuggu
á allan máta svo að þessum eftir
minnilegu konum, að aðdáunar
vert var.
ísleifur Sveinsson er mikill hag
leiksmaður, en hann er ekki ein
ungis snilldarsmiður, heldur er
hann og úrræðagóður með af
brigðum og sér oft úrræði þar
sem öðrum sýnast lokuð sund.
Hann gengur glaður að störfum sín
Fratmbald af bls. 32.
hópur sem átt hefur sinn þátt í
að setja svip á umhverfið og heim-
ilisbraginn. Ekki mun ofsagt. að
börnin öll séu mannkosta fólk,
sem bera í dag móður sinni fagurt
vitni. 75 ára getur hún með stolti
litið til baka yfir farinn veg. Hún
hefur sigrazt á öllum erfiðleiKum.
Maður hennar fatlaðist snemma á
ævinni vegna bilunar í mjöðmum.
Gefur að skilja að ekki hefur það
sízt komið til kasta Guðrúnar að
fylla það skarð, er með því varð
í afkastahring heimilisins.
Mér er margt í huga er ég lít
til baka og hugsa til þess hve oft
ég hefi fengið hjartanlegar og
ánægjulegar móttökur á Mýra-
heimilinu, hve tryggð þeirra hjóna
og barna þeirra við mig hefur alla
tíma verið sönn og innileg. Ég
finn að mörg orð þar um, henta
hvað sízt, svo yfirlætislaust hefur
allt verið unnið á Mýrum. Þeim
mun nær hefur það hjarta manns
náð. Ég minnist með þakklátum
um og hefur glöggt auga fyrir því
kímilega i veröldinni, en fer vel
með og skapar gott andrúmsloft
þar sem hann vinnur. En°inn
smiðisgripur hans er fullgerður
fyrr, e-n á honum er næmt fegurð
arskyn og listfengur bragur, vand
virkni hans er viðbrugðið. Hann
miklast aldrei af verkum sínum
og gengur hljóðlega á vegum til
verunnar, en einlægni hans og
mannkostir dyljast engum, sem
honum hafa kynnzt. Hann er gott
að eiga að vini. Eiginkonu sinni
er hann umhyggjusamur eins og
ungur brúðgumi. Greiðasamur er
ísleifur með afbrigðum og höfum
við grannamir notið þar af góðum
handtökum hans.
Til eru þeir, sem eins og eldast
ekki, þótt árin færist yfir, þeir
eiga slík lífsviðhorf, hug os hiarta
lag. fsleifur Sveinsson frá Mið
koti er í hópi þessara vormanna.
P,E.
huga alls i orði og verki sem ég
hefi notið. Ég sé vel að góðir ná-
grannar eru eitt það dýrmætasta,
sem maður eignast á lífsleiðinni,
því hvers fær sá notið. sem ekkí
á friðinn?
Ég sendi vinkonu minni Guð-
rúnu á Mýrum hjartans innileg-
ustu hamingjuóskir á 75 ára af-
mælinu og þakka góð kvnni fyrr
og síðar. Nú er fuglinn að setjast
upp. það var kannsiki engin tilvilj-
un að Guðrún fæddist 17 mai þeg-
ar allt líf er að vakna af vetrar-
dvala. Hún er sannur fulltrúi hins
gróandi lífs og hún hefur aldrei
brugðizt þvi.
Hún er enn keik og létt í spori
og enginn fer þess dulirm af henn-
ar fundi, að þar fer óvenjulega
glæsileg íslenzk kona. Þeir, sem
til þekkja, vrta að eins mun hún
falla og hún hefur staðið, þegai
sú stund rennur upp, heiðarleg,
velviljuð og sönn.
Jónína Jónsdóttir.
z\
Guðrún Sigríður Jónsdóttir