Íslendingaþættir Tímans - 27.06.1970, Page 19

Íslendingaþættir Tímans - 27.06.1970, Page 19
MINNING Matthías Matthíasson fulltrúi hjá Sjóvátryggingafélagi Islands Einn af þeim sem hurfu sjón um okkar á síðasta ári, var Matthí as Matthíasson, fulltrúi hjá Sjó- vátryggingarfélagi íslands. Ýmsir urðu til að skrifa um Matthías látinn eins og við mátti búast, svo alþekktur og vinsæll sem hann var. í Morgunblaðinu var hans allveg lega minnzt á útfarardegi 6. desember — og var til ætlazt að sumar þeirra minningargreina birt ust einnig hér í íslendingaþáttum. Að það hefur dregizt lengur en algengast er, stafar af ýmsum or- sökum, sem ekki þýðir um að sak ast. En Matthías er engum svo auð gleymdur, að minning hans sé ekki nokkurn veginn jafnfersk nú, og hún var fyrir hálfu ári. Þar þarf lengri tíma til, að yfir fenni. Og svo er það einnig, að einmitt nú á þessum árstíma, er sérstaklega viðeigandi að minnast hans, — þegar vorar í Þingvallasveit og hestamenn koma saman í Skógar- hóluim. Nokkur vandi er að skrifa svo um Matthías Matthíasson að verð ugt sé. Og ætla ég mér ekki þá dul að gera það sem skyldi. Þar þarf meira til en viljann og vit undina um greiðsluskyldu á gam- alli innstæðu, sem alltaf var verið að bæta við. Matti Matt eins og hann var oft ast nefndur átti umfram flesta menn aðra, ýmsa þá eiginleika sem drýgstir reynast til manngildis. En vandasamt að fullyrða hverra eiginda hans verður lengst minnzt, enda svo saman stungnar, að erf itt er um aðgreiningu. Orðheldni hans, stundvísi og reglusemi var viðbrugðið, og því eðlilegt að hann ætlaðist til þess sama af öðrum. Hispursleysið og hnitnin í til- svönim og dómum gat mörgum verið minnisstætt. En höfðings lund hans og tröllatryggð við þá, ÍSLENDINGAÞÆTTIR sem hann batt vinskap við hygg ég þó að hafi borið hann hæst. Svo gat þó stundum virzt að Matthías Matthíasson væri nokkuð hrjúfur og ekki aðlaðandi við fyrstu kynni, en það breyttist fljótt við nánari samskipti. í því sam bandi kemur mér í hug það sem orðsnjall maður sagði eitt sinn, er rætt var um Matthías, að það væri ekki von að hann væri öðruvísi en raun bæri vitni, því uppistaðan í honum væri aðeins tvö jarðefni: gull og grjót — aðeins hraunskán utan um kjarnann. Að vísu var þetta sagt í gamni, en þó af fullri meiningu, en ég hygg að þeir, sem þekktu Matthías nokkuð ná ið, muni vera sammála um að þessi táknræna mannlýsing hafi verið nærri sanni. Og víst var um það að vinum hans var aldrei torsótt leið inn fyrir „skorpuna“, — og alltaf til tæk. Að eðlisfari var Matthías hlédræg ur og hélt sér lítt fram tn áber andi afskipta. Jafnvel svo, að sum um fannst stundum um of. En það munaði oft miklu um liðveizlu hans til framgangi þeim málefn um, sem hann beitti sér fyrir eða hugð hans beindist að. Þar um er mér kunnast þátt taka hans i félagssamtökum hesta manna og þeim afskiptum, sem hann hafði af ýmc',im fram kvæmdamálum þeirra. Mun sá fé lagsskapur búa lengi að hlutdeild hans þar. Þarna var lika um að ræða snaran þátt í lífi hans. Hesta- mennskan virtist honum meðfædd, enda arfborin og hæfni hans á þeim vettvangi var aldrei um deild. í bernsku og á æskuárum sín um var Matthías jafnan i sveit á sumrum og kvnntist þvi sveitalíf inu af eigin reynd. Það varð hon um alla tíð handgott veganesti. því viðhorf hans til lífskjara og hugð armála sveitafólksms voru jafnan slík. að inn í raðir stéttarinnar mátti leita að betri málsvara. Öðrum stöðum fremur batzt hann traustum böndurn við Arnarfell i Þingvallasveit. enda öðrum þræði föðurleifð hans. Þar rak hann búskap i nokkur ár og þangað var jafnan farið um flestar helgar árs- ins, áratugum saman. Þar var sum arleyfum eytt og yfirleitt dvalizt þar eins oft og lengi og tök voru til. Arnarfell var honum helgur staður, sem gott var að >ninnast. Það er helzt til oft að menn fari héðan fyrir aldur fram og engu síður þeir, sem sízt skvldi. En svona hefur þetta lík1o»a alltaf verið, því enginn má skönun renna. En Matthías var ekki óvið- búinn umskiptunum, þvi sjálfur vissi hann manna bezt, að hverju stefndi og hann tók örlögum sín- um með þeirri rósemi og karl- mennsku, sem fáum er fært og hélt háttsemi sinni og andlegum eieindinn fíi hinztu stundar. Með Matthíasi er horfinn sjón- um okkar sérstæður drengskapa- maður, sem var engum líkur nema sjálfum sér, — virtur og dáður af öllum þeim, sem þekktu hann vel og vis9u hvað inni fyrir bjó. Því 19

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.