Íslendingaþættir Tímans - 28.10.1970, Qupperneq 3
Átta þingmanna minnzt á Alþingi
Þegar Alþingi kom saman 10. okt. s.l. var minnzt óvenjulega margra þingmanna,
sem látizt höfðu síðan þingi sleit í vor, eða alls átta. Hæfa þykir að birta í íslendinga-
þáttum minningarorð þau, sem aldursforseti þingsins, Sigurvin Einarsson, flutti um
þessa þingmenn á setningarfundi Alþingis.
BJARNI BENEDIKTSSON
í dag, þeigar Alþingi kemur
saman að rúmum fimm mánuðum
liðnum frá lokum síðasta þings,
eru mönnum ofarlega í hug þau
sorgiegu tíðindi, er spurðust frá
Þingvöllum að morgni hins 10.
júlí síðastliðins, að Bjarni Bene-
diktsson, forsætisráðherra, hefði
þá um nóttina látið lífið ásamt
konu sinni og dóttursyni í bruna
ráðherrabústaðarins þar. Á þeirri
nóttu var þjóðin svipt forustu-
manni sínum og við alþingismenn
sáu-m á bak mikilhæfum þing-
skörungi, sem vegna stöðu sinnar
og hæfilieika hefur öðrum fremur
xnótað störf Alþingis mörg undan-
farin ár.
Bjarni Benediktsson var 62 ára
er hann lézt. Hann fæddist
30. apríl 1908 í Reykjavík. For-
eldrar hans voru Benedikt al-
þingisroaður Sveinsson, Víkings
gestgjafa á Húsaví'k við Skjálf-
anda, Magnússonar, og kona hans,
Guðrún Pétursdóttir, bónda í
Engey. Kristinssonar. Hann stund-
aði nám í menntasfcólanum í
Reykjavík og lauk stúdentsprófi
vorið 1926, og árið 1930 lauk hanm
lögfræðiprófi við Háskóia fs-
lands. Á árunum 1930-1932
stundaði hann erlendis framhalds-
nám í stjórnlagafræði, aðallega í
Berlín. Haustið 1932 varð hann
prófessor í lögum við Háskóla
fslands og gegndi þvi starfi til
hausts 1940 er hann varð borgar-
’Stjóri í Reykjavík. Hinn 4. febrú-
air 1947 var hann skipaður utan-
ríkis- og dómsmálaráðherra _ og
lét þá af borgarstjórastörfum. Átti
hann siðan sæti í rikisstjórn til
^eviloka að undanskildu tímabilinu
frá 24. júli 1956 til 20. nóvember
1959, en þann tíma var hann rit-
stjóri Morgunblaðsins. Hann var
htanríkis-, dómsmála- og mennta-
hiálaráðherra 1949—1950, utan-
ISLENDINGAÞÆTTIR
ríkis- og dómsmálaráðherra 1953—
1956, dóms-, kirkju-, heilbrigðis-
og iðnaðarmálaráðherra 1959—
1961 og 1962- -1963, forsætis-
ráðherra um skeið á ár-
inu 1961 og frá 14. november
1963 til dauðadags.
Bjarni Benediktsson tók fyrst
sæti á Alþingi sumarið 1942 og
átti hér sæti síðan, sat á 31 þingi
alls. Forseti sameinaðs Alþingis
var hann á sumarþimginu 1959.
Hann var fulltrúi í Norðurlanda-
ráði á árunum 1956—1959. Hann
átti sæti í stjórn Happadrættis Há-
skóla íslands 1933—1940, var
bæjarfulltrúi í Reykjavík 1934
1940 og 1946—1949, átti sæti í
útvarpsráði 1934—1935, var skip-
aður 1939 í nefnd til að endur-
skoða framfærslulögin, formaður
nýbyggingarsjóðsnefndar 1941
1944, átti sæti í milliþinganefnd í
stjórnarskrármálinu 1942—1945
og var formaður nýrrar stjórnar-
skrárnefndar frá 1947, var í sendi-
nefnd á allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna 1946. Hann var í stjárn
Sparisjóðs Reykjavíkur 1952
1965, í stjórn Eimskipafélags fs-
lands 1954—1964, í stjórn hluta-
félagsins Árvakurs frá 1955 og
formaður stjórnar Almenna bóka-
félagsins frá stcifnun þess 1955.
í miðstjórn Siálfstæðisflokks-
ins var hann frá 1936 og formaður
flokksins frá 1961. Hann varð
félagi í Vísindafélagi íslendinga
1935 og doktor í lögum í heiðurs-
skyni við Háskóla íslands haustið
1961.
Bjarni Benediktsson hlaut í
vöggugjöf miklar gáfur, viljastyrk
og starfsorku. Námsferill hans var
glæsilegur og frami lians að námi
loknu eigi síður. Hann varð há-
skólakennari 24 ára að aldri,
síðan borgarstjóri, ráðherra, for-
ustumaður fjölmennasta stjóm-
málaflokikks þjóðarinnar og að
lokum forsætisráðherra. í föður-
húsum gafst honum kostur á að
hlýða á rökræður um sjálfstæðis-
mál íslendinga og stjórnmál, í
háskólanum kenndi hann meðal
annars stjórnlagafræði og samdi
innan þrítugsaldurs mikið rit um
deildir Alþingis, störf þeirra og
meðferð þingmála. Iiann var því
vel búinn til starfa, er hann sett-
ist á þing, og jafnan kvað milkið
að honum við þingstörf. í skiln-
aðarmáli íslands og Danmerkur
var hann málsvari þeirra, sem
stefndu að stofnun lýðveldis á ís-
landi á árinu 1944. í ráðherra-
dómi kom það oft í hlut hans sem
utanríkisráðherra og síðar for-
sætisráðherra að hafa forustu um
aðild íslands að alþjóðasamtökum
og ýmsum samtökum öðrum þjóða
í milli. Síðustu árin var það nokkr
um sinnum hlutskipti hans að
hafa af hálfu ríkisstjórnarimnar
milligöngu um sættir í torleyst-
um vinnudeilum. Að öllum störf-
um gekk hann af heilum hug og
fékk milklu áorkað.
Þess er eiki að dyljast, að mi'kl-
ar deilur hafa staðiö um störf
Bjarna Benediktssonar á vettvangi
stjórnmáia. Slí'kt er eðli þeirra
3