Íslendingaþættir Tímans - 04.01.1973, Qupperneq 6
Kristín Jónsdóttir og
Guðmundur Magnússon
Blesastöðum
Kristin Jónsdóttir fædd 16. mai 1886.
Dáin 2. sept. 1971. og Guðmundur
Magnússon fæddur 11. mai 1878. Dáinn
20. okt. 1972.
Þegar augum er rennt yfir ævi
Guömundar og Kristinar á Blesastöð-
um.blasir við langur og farsæll starfs-
dagur. Þau tóku svo sannarlega þátt i
önn dagsins. Búskaparsaga þeirra
varð lengri en menn vita dæmi til hér i
sveit, og að leiðarlokum verður ekki
annað sagt, en að þau hafi afkastað
stærra dagsverki en flestum auðnast.
Þrátt fyrir að þau yrðu háöldruð héldu
þau búi sinu til hins siðasta.
Eftir erilsaman dag, er börnin voru
komin upp7 minnkuðu þau búið, en
heilsan var góð og þau nutu næðis á
efri árum og litu með ánægju yfir
farinn veg. Þau gátu alltaf gefið sér
tima til þess að taka á móti vinum og
vandamönnum. Þá gat verið gott að
bera upp vandamál sin, þvi að þau
voru fær um aö leysa úr mörgum
vanda.
Þau eignuðust 15 börn og lifa 13
þeirra foreldra sina. Eru nú 104 af-
komendur þeirra á lifi. Auk þess átti
Guðmundur eina dóttur.
Það lætur að likum, að það hafi verið
ærið starf að ala önn fyrir svo stórri
fjölskyldu. Þetta starf leystu þau af
hendi með miklum ágætum. Þau voru
samhent og höföu kjark og bjartsýni,
sem aldrei brást. Strax og eldri börnin
uxu úr grasi unnu þau að heill og hag
heimilisins og alltaf hefur samhugur
og samhjálp skipaö öndvegi innan fjöl-
skyldunnar.
Guðmundur var fæddur 11. mai 1878
á Votamýri á Skeiöum, sonur
Magnúsar Sigurðssonar bónda þar og
konu hans, Guðrúnar Eiriksdóttur frá
Reykjum á Skeiðum, en Eirikur var
sonur Eiriks Vigfússonar bónda þar og
konu hans, Guörúnar Kolbeinsdóttur
prests i Miðdal. Guðmundur andaðist
á sjúkrahúsinu á Selfossi 20. okt sl.
eftir stutta legu.
Forfeður Guðmundar hófu búskap á
Votamýri fyrir tæpum 200 árum og
búa frændur hans þar enn. Hafa fáar
ættir i Arnessýslu setið eins lengi óðal
sitt og þeir Votamýrarmenn.
Kristin, kona Guðmundar, var fædd
i Vorsabæ á Skeiðum 16. mai 1886. Var
hún dóttir hjónanna, Jóns Einarssonar
bónda þar og konu hans Helgu
Eiriksdóttur ljósmóður. Jón Einarsson
var fæddur og uppalinn á Syðri Brúna-
völlum á Skeiðum. Hálfbróðir Jóns i
Vorsabæ var Ketill Arnoddsson bóndi
á Brúnastöðum. Helga ljósmóðir var
fædd i Vorsabæ, móðir hennar var Ing-
veldur, dóttir Ófeigs rika bónda i
Fjalli. Kona Ófeigs i Fjalli var Ingunn,
dóttir Eiriks Vigfússonar á Reykjum
og frá Eiriki Vigfússyni talið; voru
Kristin og Guðmundur að þriðja og
fjórða að frændsemi. Eru þetta allt
geysif jölmennar ættkvislir og dreifðar
um Suðurland. Meðal þeirra hafa
verið fyrr og siðar margir athafna-
menn i röðum sunnlenzkra bænda.
Helga i Vorsabæ og Ingveldur móðir
hennar voru um áratugi ljósmæður og
þóttu leysa þau störf ágætlega af
hendi. Var þvi við brugðið, hvaö þær
voru kjarkmiklar og æðrulausar ef á
reyndi.
Kristin á Blesastöðum andaðist eftir
stutta legu 2. sept. 1971. Guðmundur
og Kristin gengu i hjónaband 10. júli
1910. Guðmundur hafði þá búið tvö ár á
Blesastöðum og var bóndi þar i 64 ár,
en Kristin húsfreyja i 61 ár.
Blesastaðir eru kostajörð, að visu ekki
ýkja landstór, en meginhlutinn er
ræktanlegt land. Eftir 64 ára búskap
6
islendingaþættir