Íslendingaþættir Tímans - 03.01.1976, Qupperneq 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
Laugardagur 3. jan. 1976 — 1. tbl. 9. árg. No. 235 TIMANS
Hjónin frá Litlu-Reykjum:
Páll Arnason og
Vilborg Þórarinsdóttir
F oreldra-
minning
:Þið fæddust saman, og saman skuluö
þiö verða að eilifu. Saman skuluð þið
verða, þegar hvftir vængir dauðans
leggjást yfir daga ykkar. Já, saman
skuluð þið verða jafnvel í þögulli
minningu guðs:.
Fyrir nokkrum árum dreymdi mig
að ég var stödd uppi á Hellisheiði, þar
sem nýi vegurinn liggur nú, sé ég þá
langa brúðarfylkingu koma að austan.
Ég staldra við og bið. Þegar gangan
kemur nær sé ég að brúðhjónin eru
foreldrar minir, og ber faðir minn
brúðarvönd, og ljómaði friður og ham-
ingja af þeim báðum. Ég réði draum-
inn þannig að það yrði skammt á milli
þeirra, og faðir minn yrði á undan þeg-
ar þau kveddu þennan heim. Enda
varð sú raunin á, þvi faðir minn and-
aðist aðfaranótt 24. júni en móðir min
hálfum mánuði seinna, þann 7. júli. 1
fögru og bliðu vorveðri voru þau til
moldar borin, með viku millibili. Og
stór var vina og ættingjahópurinn sem
fylgdi þeim hinzta spölinn. „Þetta var
góður endir”, sagði einn sveitungi
þeirra við mig, við jarðarför móður
minnar, Og sannarlega var það satt.
Þau voru búin að skila erfiðu og löngu
dagsverki, og voru hvildar þurfi. Ég
minnist þeirra með þakklátum og
hrærðum hug, og langar að minnast
þeirra með nokkrum fátæklegum orð-
um.
Móðir min Vilborg Þórðardóttir
öfjörð var fædd i Austurhlið i
Gnúpverjahreppi 12. febrúar 1892.