Íslendingaþættir Tímans - 03.01.1976, Blaðsíða 21

Íslendingaþættir Tímans - 03.01.1976, Blaðsíða 21
Kristjana Ingibjörg Halldórsdóttir Neðri-Dálksstöðum Fædd 11. 11. 1930 Dáin 10. 11. 1975. Sofðu nú hér sofðu, mitt hjarta skal vaka hjá þér. A ljómandi guðsdýröar landi lifir þinn andi. Mágkona min Kristjana Tngibjörg Halldórsdóttir (kölluð Gósa) er dáin, horfin okkur öllum vinum sinum svo óvænt, á bezta aldri, i miðri dagsins önn. Það er svo ótrúlegt, samt er það svo. Það er mikil eftirsjá að þessari konu, fyrst og fremst fyrir hennar nánustu ástvini (sem sýnd hefur verið mjög mikil samúð og þeir þakka af al- hug), einnig hennar mörgu vini. Hennar er sárt saknað. Gósa var fædd á neðri Dálksstöðum á Svalbarðsströnd þann 11. 11. 1930. Foreldrar hennar eru hjónin Kristjana Vilhjálmssdóttir og Halldór Alberts- son. Þar búendur þá. Gósa ólst upp hjá foreldrunum á Dálksstöðum og með systrum slnum tveim, þeim Huldu, sem er elzt og Elinu, sem er yngst. Bróður áttu þær einn, Björn að nafni. Hann dó á fyrsta ári. Með ágætum foreldrum og i glööum og mjög samrýmdum systrahóp dvaldist Gósa þar heima öll sin uppvaxtar ár. Einnig með Marfu móðursystur sinni, sem var henni sem önnur móðir og hennar börnum eftir að þau komu til og hefur ætið borið hag heimilisins svo mjög fyrir brjósti. Brúnáss þá spennu sem oft liggur i loftinu á forstjóraskrifstofum. Og þeg- ar heim kom til Ingu og barnanna og nafni settist i hina sérkennilegu hvild- arstellingu sina og hafði brugðið undir sig öðrum fætinum, þá varö einkenni- lega auðvelt að ræða vandamálin i ró og næði. Börn Vilhjálms og Ingu eru fimm og eina dóttur átti hann áður. Foreldrar hans eru á lifi og frændgarðurinn er stór. Ég votta ástvinum nafna mins islendingaþættir Lánsöm var Gósa að eiga svona gott æskuheimili og æskudaga, enda átti hún til að bera gott lundarfar, hress, kát og drifandi var hún, jafnaöarlega, en heilsan var ekki alltaf sterk. Henni var mjög mikið gefið, framúr- skarandi dugleg og allt lék henni i höndum, hvort sem það var við útvinn- una eða innanhúss störfin, lika var hún mikil hannyrða kona viö útsaum, hekl og prjón. Mér varð stundum star- sýnt á hve miklu hún kom i verk á þvi innilega samúð mina og fjölskyldu minnar. ,,Hann átti fáa sina lika að mann- kostum, traustleika og góðvilja. Það er min reynsla af honum eftir margra áratugakynni og vináttu.” — Svo segir Armann Halldórsson, kennari á Eiðum i bréfi til min á dögunum. Já, gott er þeirra að minnast, sem þannig vitnisburð hljóta þegar leiðir skilur um sinn samkvæmt lögmálunum. Vilhjálmur Hjálmarsson sviði, með öllum öðrum heimilisstörf- um. Hún hefur eflaust helgað sér sálm- versið. Starfa þvi nóttin nálgast nota vel æviskeið, ekki þú veizt nær endar ævi þinnar leið. Starfa því aldrei aftur ónotuð kemur stund ávaxta þvi, með elju ætið vel þitt pund. Ung giftist Gósa hálfbróður minum Inga Þór Ingimarssyni frá Vatnsleysu, og var þeirra sambúö til fyrirmyndar, skilningsrik og hlý. Þau eignuðust 5 börn. Þeirra elztur er Bjöm, næstur er Ómar Þór, IngaMaria, Hanna Dóra og Hulda Hrönn tæpra 6 ára. öll eru börn- in elskuleg og gott fólk. Ungu Dálksstaðahjónin tóku viö búi af tengdaforeldrum Inga ásamt Huldu og manni hennar Hreini Ketilssyni frá Finnastöðum. Fyrstu búskaparárin bjuggu þessi ungu hjón ásamt foreldr- um systranna i Dálksstaðahúsinu, sem þá var mun minna en það er nú, en siðar fengu þau Hulda og Hreinn hluta af Dálksstaðalandi undir býlið Sunnu- hlið. Allur hefur sambúskapurinn hjá þessu fólki gengið frábærlega vel. Samrýmdar voru systurnar mjög og menn þeirra hafa lika átt samlyndi og samstöðu, en það er mikið lán fyrir alla er sliks njóta og þvi var þeim betur stætt, er yfir dundi höggiö þunga, sára. Timinn mildar meinin, svo er Guði fyrir að þakka Gósa min, ég undirrituð, tengdamóðir þin, Þór- unn og allt mitt fólk þökkum þér frá innsta hjartans grunni kynnin á gengnum árum. öllum ástvinum þfn- um sendum við okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Margrét H. Lúthersdóttir. f 21

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.