Íslendingaþættir Tímans - 03.01.1976, Side 8
Ég sendi eiginkonu Svavars, börn-
um og foreldrum hans innilegar
samiíðarkveðjur.
Kristján Thorlacius.
f
Kveðja frá bekkjarsystkin-
um i Kennaraskólanum.
Hregg fer um hlíðar
hrynur lauf af grein,
affjalla er sólin,
er á sumrinu skein,
þá sorgin ber að dyrum, —
og sorgin kemur ein.
Heill nauzt þú handa,
hélzt um gæfuslóð.
Af hjartans hreina gulli
hafðir ferðasjóð.
Minning um þig vakir, —
minning þin er góð.
Sigurður Óskar Pálsson.
f
Þau sorgartiðindi bárust stjórn
Sambands islenzkra barnakennara
mánudaginn 27. okt. s.l., að tveir
stjórnarmanna hefðu látizt af slysför-
um kvöldið áður.
Það tók langan tima að átta sig á þvi
og trúa, að Svavar Helgason og Þór-
hildurJónasdóttirværu látin. Nokkrum
dögum áður hafði stjórnin undirbúið
fundahöld með barnakennurum viðs
vegar um landið og stjórnarmenn
höfðu skipt með sér að sækja fundina.
Það kom i hlut þeirra Svavars og
Þórhildar að sjá um fundahöldin á
Vestfjörðum og þau voru á heimleið,
er bifreið þeirra fór út af veginum við
Vatnsdalsá i Vatnsfirði á Barðaströnd
með fyrrgreindum afleiðingum.
Við, sem eftirlifum, eigum æði erfitt
með að sætta okkur við það, þegar fólk
er hrifiö burt mitt úr dagsins önn, fólk
sem er fullt af starfsorku og sem virð-
ist eiga ólokið ótal verkefnum.
Frammi fyrir slikum atburðum
finnum við vel hvað við erum litil og
vanmegnug. Við drúpum höfði í auð-
mýkt og reynum að hugga okkur við
það, að Svavar og Þórhildur hafi verið
kölluð til starfa að háleitari og göfugri
verkefnum en viö í skammsýni okkar
hugðum biða þeirra okkar á meðal.
Svavar Helgason fæddist 18. mai
1931 i Haukadal i Dýrafirði, sonur
hjónanna Bergljótar Bjarnadóttur og
Helga Pálssonar, kennara. Þar ólst
hann upp i mannvænlegum, samhent-
um systkinahópi og vandist öllum
venjulegum störfum eins og þau
tiðkuðust við sjó og i sveit á þeim tim-
um.
Svavar stundaði nám i Núpsskóla og
lauk landsprófi þaðan árið 1951. Þaðan
lá leiðin i Kennaraskóiann og vorið
1954 útskrifaðist hann sem kennari.
Hann hóf kennslu þegar næsta haust
við Skóla Isaks Jónssonar. Um þær
mundir var Breiðagerðisskólinn i
Reykjavik að taka til starfa og þangað
réðst Svavar kennari haustið 1955.
Það kom fljótt i ljós, að hér var
vaskur maður á ferð. Hann var glæsi-
menni bæði i sjón og raun, fullur vel-
vildar og ætið boðinn og búinn að rétta
hjálparhönd. Hann var farsæll kennari
og gagnkvæmt traust rikti milli hans
og nemenda. Það kom lika af sjálfu
sér, að kennarar fólu honum forustu-
hlutverk i félagsmálum sinum. Hann
var ungur kjörinn til að sitja þing
barnakennara og jafnframt var hann
kosinn fulltrúi þeirra á þing Bandalags
starfsmanna rikis og bæja.
Svavar átti sæti i stjórn Stéttarfé-
lags barnakennara i Reykjavik á
árunum 1960 — 1962 og var um skeið
formaður félagsins.
Arið 1964 var hann kjörinn i stjórn
Sambands islenzkra barnakennara og
átti sæti þar óslitið upp frá þvi. Hann
var varaformaður samtakanna 1972 —
1974.
Svavar átti sæti i stjórn Bandalags
starfsmanna rikis og bæja frá árinu
1970 og hann var fulltrúi barnakennara
i stjórn lffeyrissjóðs stéttarinnar.
Framkvæmdastjóri Byggingarsam-
vinnufélags barnakennara var hann
frá árinu 1970.
Arið 1967 var Svavar ráðinn fram-
kvæmdastjóri Sambands islenzkra
barnakennara. Starfsemi samtakanna
var I örum vexti og mönnum var ljóst,
að sæti framkvæmdastjóra yrði að
vera vel skipað. Svavar brást heldur
ekki vonum manna. Hann vann að
málefnum samtakanna. af heilum hug
ogsparaði þá hvorki tima né fyrirhöfn,
ef þvi var að skipta. Hæfileikar hans
voru llka ótviræðir. Hann var greindur
ogathugullog framkoman á þann veg,
að menn gátu leitað til hans með
hverskyns málefni. Starf fram-
kvæmdastjórans reyndist lika mjög
erilsamt, en Svavar tók öllum með
sama hlýja viðmótinu og greiddi götu
þeirra með lagni og festu. Hann tók
ekki ákvarðanir nema að vel yfirlögðu
ráði en hélt vel á málum, þegar hann
haföi myndað sér skoðun á hlutunum.
Þess vegna var svo ánægjulegt að
vinna með honum.
Svavar kom oft fram sem fulltrúi
stéttar sinnar, bæði innanlands og á
erlendum vettvangi og þá komu
mannkostir hans vel i ljós. Hann vakti
athygli manna með fágaðri framkomu
og drengilegum málflutningi og ávann
sér traust þeirra er honum kynntust.
Svavar var tvikvæntur. Fyrri kona
hans var Guðrún Guðmundsdóttir og
eignuði st þau þrjú börn: Asgerði
Stefan.u, f. 11. jan. 1953. Hún er gift
Pou> "ichaid og eru þau búsett i Main
i Bandarikjunum. Þau eiga tvær
dætur.
Sólveigu, f. 6. des. 1954. Hún vinnur i
Samvinnubankanum og Jakob
Guðmund f. 25. okt. 1959. Hann vinnur
hjá ölgerðinni Agli Skallagrimssyni.
Guðrún- og Svavar slitu samvistum
árið 1969.
Árið 1971 kvæntist Svavar eítiriií-
andi konu sinni Unni Bjarnadóttur
kennara við Vörðuskólann. Þau höfðu
að mestu lokið við að reisa einbýlishús
a Fornuströnd 5 á Seltjarnarnesi af
miklum dugnaði þar sem þau höfðu
búið sér hlýlegt og fallegt heimili.
Svavar bar mikla umhyggju fyrir
börnum sinum og samband hans við
þau var náið og traust. Á sama hátt
varð hann Brynjólfi og Jónu Elvu,
börnum Unnar, hollur vinur og góður
heimilisfaðir.
Samband islenzkra barnakennara
hefur misst traustan forustumann og
farsælan framkvæmdastjóra, sem
hefur öðrum fremur mótað stefnu
samtakanna undanfarin ár. Skarð
hans verður vandfyllt.
Við nánustu samstarísmenn hans I
stjórn sambandsins sjáum á bak
góðum vini og félaga.
Við blessum minningu hans og þökk-
um öll störf hans i þágu kennarastétt-
arinar.
Við vottum aðstandendum, elsku-
legum foreldrum, konu og börnum
ásamt öðrum ástvinum inniiega
samúð.
Guð gefi, að ljós góðra minninga um
mætan mann lýsi þeim og ylji á dimm-
um dögum.
Ingi Kristinsson
8
islendingaþættir