Heimilistíminn - 12.12.1974, Page 18
Leggið þið kapai?
3
rJ&' !♦ ♦ 1
b *
i'.«• •* í r> ♦ f [*♦ * j
S) 1 1**1
1’ 4 ’ j r* * l’v * 1 * * 1 | * *;f
JU 1 1 * * 1 H* T W j
m * I * ♦ [ ♦; |
* | P** !.♦ ♦
!♦ ♦!
Drottningarkapallinn lagður. Hér er marga möguleika aA sjá. Við getum til dæmis lagt
hjarta-tiuna á spaða-niuna eða öfugt tii þess að þá sé hægt að færa bæði niuna og tiuna
yfir á spaða gosann, sem losnaði, þegar við tókum niuna. Við getum lika fært hjarta-sjö
yfir á laufasex, en betra er að hafa það öfugt, þvl þá iosnar hjarta-tvisturinn og við
getum setthann á ásinn. Þið sjáið væntanlega, að við hefðum átt að byrja á þvi að setja
laufa-tvistinn upp á ásinn. Þið getið auðveldlega haldið áfram.
Drottn-
inga-
kapall
Drottningarkapallinn nefnist svo vegna
þess að drottningarnar mynda kjarna
kapalsins, án þess þó að taka beinan þátt i
honum. í þennan kapal þarf tvenn spil,
alls 104. Kóngur er tekinn úr og lagður á
borðið. Afgangurinn af spilunum er
stokkaður vandlega og þeim siöan flett
einu og einu út á borðið upp i loft, það
fyrsta fer ofan á kónginn til hálfs, það
næsta þar ofan á og svo framvegis. f hvert
sinn, sem kóngur kemur upp, er byrjað á
nýrri röð. Komi tveir kóngar i röð, verður
bara einn kóngur i einni röðinni. Drotting-
arnar og ásar fara heldur ekki i raðirnar,
heldur eru færð upp jafnóöum og þau
koma. Drottningarnar eru settar i röð yfir
kóngunum og ásarnir yfir drottningunum,
eins og sést á myndinni.
Þegar búið er að fletta upp öllum
spilum, eru á borðinu röð ása, röð
drottninga og siðan átta lóðréttar
mislangar raðir. Drottningarnar eru ekki
notaðar, en ofan á ásana á að raða
spilunum upp að gosa, án tillits til litar.
Á neðsta spilinu i lóðréttu röðunum
getið þið byggt upp hjálparraöir, þ.e.a.s.
þið raðið eftir þörfum upp á við eða niöur
við einnig án tillits til litarins. Ef ykkur
tekst að flytja öll spil ofan af kóngi i ein-
hverri röö, getið þið lagt hvaða spil sem er
ofan á kónginn. En það má bara færa eitt
spil i einu, aldrei heilar raðir. Þegar
kapallinn gengur upp, eru kóngarnir
neðstir þá drottningarnar og efst átta
bunkar, sem byrja á ás og enda á gosa.
*
18