Heimilistíminn - 12.12.1974, Side 19

Heimilistíminn - 12.12.1974, Side 19
AÐ leggja kapal er gömul tómstundaiðja, en þó hægt sé aö rekja þessa iðju 300 ár aftur i tímann, er litiö vitað um sögu kapalsins. Það gefur auga leið, að ekki er hægt að leggja kapal án spila og þess vegnaerhann að minnsta kosti ekki eldri en spilin, en þau eru liðlega 700 ára. Kapallinn er óbeint skyldur gömlu indversku spili, sem á ýmislegt sam- eiginlegt með skák og við uppgröft í Or í Kaldeu hefur komið í Ijós, að spil þetta hefur verið við lýði þegar á tímum Abrahams. Þess má geta, að i Danmörku, Noregi og á Islandi er þetta kaliað kapall, en í Svíþjóð og Finnlandi kallast það ,,patience" eða þolinmæði, eins og á ensku. Orðið kapall, eða „kabale" þýðir hins vegar flækjur og eftir nafngiftunum að dæma.virðumstvið hér norður frá hafa tekið sérstaklega eftir öllum samsetningarmöguleikunum og flækjunum, en hinir hugsa bara um þolinmæðina. En ekki er víst að svo sé. Kapall er lagður um allan heim. Sumir gera það til að stytta sér stundirnar, en aðrir til að spyrja einhvers, sem kapallinn svarar þá með jái eða neii. Sumir eru hreinlega með kapaldellu og meira að segja þeir, sem aldrei leggja kapal, þekkja áreiðanlega einhvern sem gerir það. Flestir kaplar hafa einungis lifað mann fram af manni, en ekki verið skráðir fyrr en á allra síðustu árum. Þess vegna heita sumir þeirra mögum nöfnum og eru lítið eitt mismunandi. Á næstunni birtum við nokkra kapla, sem þið getið gripið til ef ykkur leiðist, til dæmis i jólafríinu. Hér eru tveir þeir fyrstu: i *)! * ♦ * *1 L -<♦ ♦: i 2 1 $ 1 Stór kross- inn Or miklum aragrúa kross- og stjörnukapla birtum við núna Stórkross- inn. 1 hann þarf einnig tvenn spil. Asarnir átta eru teknir úr og lagðir á borðið upp i loft, þannig aö þeir myndi kross, eins og sézt á myndinni. Nú á að raða ofan á ás- ana öllum spilunum að kóngi og i réttri röð. Flettið spilunum einu og einu og leggið ofan á, en það má ekki gera oftar en þrisvar sinnum. Séu þá einhver spil eftir, gengur kapallinn ekki upp. Stórkrossinn. Hér erum við aðeins byrjuö að raða og nánari skýringar þarf ekki með hér. 19

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.