Heimilistíminn - 18.11.1976, Qupperneq 19
Barnasagan:
Lewis Carrol:
Lísa
r
1
U ndralandi
Piparinn og svínið
6. þáttur.
Lisa stanzaði snöggvast, virti fyrir sér húsið
og hugleiddi, hvað til bragðs skyldi taka. Alit i
einu kom einkennisklæddur þjónn hlaupandi út
úr skóginum. Lisa hugsaði sem svo, að þetta
hlyti að vera þjónn eftir búningnum að dæma.
Annars var hann nákvæmlega eins og fiskur.
Hann barði harkalega að dyrum með hnúun-
um. Annar einkennisklæddur þjónn opnaði
dyrnar. Hann var fjarska búlduleitur, með stór
augu, og likastur froski. Hár þeirra beggja var
mélað og skrautlega lokkað. Lisu lék mikil for-
vitni á að vita, hvað nú stæði til, og hún faldi sig
þess vegna á bak við trén, og hlustaði á það,
sem fram fór.
Fisk-þjónninn dró nú stórt bréf undan hand-
leggnum, það var nærri eins stórt og hann
sjálfur. Hann rétti hinum þjóninum bréfið og
sagði hátiðlega: ,,Til hertogafrúarinnar, boðs-
bréf frá drottningunni um þátttöku i kroket-
leik”. Frosk-þjónninn át þetta upp, en breytti
ofurlitið orðunum: ,,Frá drottningunni, boðs-
bréf til hertogafrúarinnar um þátttöku i
kroketleik”.
Siðan hneigðu þeir sig djúpt, svo að hár-
lokkarnir rugluðust saman.
Lisa hló svo mikið að þessu, að hún varð að
flýta sér inn i skóginn, svo að ekki heyrðist til
hennar. Þegar hún gægðist aftur fram, var
fisk-þjónninn horfinn, en hinn sat flötum bein-
um við dyrnar og góndi bjálfalega upp i loftið.
Lisa gekk dálitið hikandi að dyrunum og
barði.
,,Það er gjörsamlega þýðingarlaust að
Framhald á bls. 24
19