Heimilistíminn - 08.09.1977, Síða 7

Heimilistíminn - 08.09.1977, Síða 7
veriö valdar einfaldar og spennandi sög- ur, og spurningarnar, sem lagðar voru fyrir börnin á eftir voru einnig mjög létt- ar. A þessu stigi rannsóknarinnar voru 325 börn úr 2., 3. og 4. bekk og úr tveimur skólum i úthverfum Stokkhólms. Yngstu börnin voru 8-9 ára en þau elztu 10 til 11 ára. Börn úr öðrum bekk náðu ekki frásögn- unum, hvort sem þær stóðu á sjónvarps- skerminum i 4 eða 6 sekúndur. Þriðja bekkjar börnin náðu að lesa textann sem sýndur var lengst, en aðeins með tveimur af þremur myndum. Börnin úr fjórða bekk skyldu allar þrjár f rásagnirnar. Þær voru sendar úr mismunandi lengi, og náðu börnin innihaldinu i tveimur lengri sendingunum. Stytzti timinn nægði þeim ekki til þess að skilja textan. Þegar þess er gætt, að börn horfa mikið á sjónvarp, og þá mest á erlent efni með innlendum, í þessu tilfell sænskum text- um, er greinilegt, að mikil hætta stafar af þvl að þau verða óvandvirk við lesturinn. Færist þessi óvandvirkni að sjálfsögðu einnig yfir á venjulegan lestur innan veggja skólanna og lestur þeirra á bókum og blöðum. Þau læra seint og illa að lesa. Telpurnar horfa á sjónvarpið, en enginn veit hvort þær skilja það, sem á skjánúm stendur. Hvað skal til bragðs taka? Mjög óhagkvæmt er að setja tal inn á allar myndir, þar sem slikt kostar geysi- legar fjárupphæðir. Þá kemur það og til að þeir sem ekki heyra missa algjörlega af frásögnunum, sem fylgja myndunum, og hafa ekkert nema myndina til að horfa á. Einnig telja menn, að börn hafi gott af þvi að hlusta á frummálið, sem fylgi myndunum. Það geti komið þeim til góða við tungumálanám siðar. Eitthvað annað verður að gera til þess að bæta hér úr. Til dæmis kemur til grein að textinn sé lesinn um leið og hann birtist á skerminum. Þó er talið bezt, að upplesturinn kæmi ekki i gegn um sjón- varpið sjálft, heldur I sérstakri útvarps- sendingu, samtimis sjónvarpsdag- skránni, en þá hefðu börnin tækifæri til þess að velja á milli. Þau gætu hlustað á textann eða reynt að lesa hann sjálf á skjánum. segir Ingela Schyller. (Þ.fb) farið til London ferðamenn heimsæki London I ár, til þess að verzla, hvort heldur sem er til þess að kaupa kjóla, Rolls Royce-bila eða 20 herbergja einbýlishús. Yfirvöldin hafa reiknað út, að þessir ferðamenn muni eyða um 300 milljón- um punda iLondon, bæði I berzlunum og i veitingahúsum, og hvar svo sem þeir fara um, á meðan þeir dveljast I landinu. Samkvæmt útreikningum ferðamálaráðs þeirra Bretanna eyddu Arabar yfir 500 milljónum punda I far- gjöld, gistingu og innkaup I Englandi siöastliðið ár. Frá Kuwait kemurstærstihluti þess fjár, sem fest er i brezkum iðnaði, og Kuwaithefur yfir að ráða rúmum 5% hlutafjár margra helztu fyrirtækja, sér I lagi á sviði fjármála I Bretlandi. Kuwait-menn hafa fjárfest i sumum helztu bönkum og tryggingarfélögum Englands, og talið er, að Arabar frá Austurlöndum hafilagt um það bil 800 milljónirpunda í kaup á brezkum fast- eignum og fýrirtækjum á siðustu þremur árum. Arabar hófu innrás sina á fasteigna markaðinn fyrir um það bil þremur árum, þegar Bretar fóru að finna fyrir því, að fjármálin voru ekki I sem beztu lagi þar I landi. Aröbunum féll vel sú mikla athygli, sem þeim var veitt, og alls staðar stráðu þeir peningum I kringum sig, þar sem þeir fóru. Mjög einfalt svar er við þvi, hvers vegna Aröbunum fellur England svo vel í geð, en það er að þar telja þeir bezta möguleika á þvi, að dveljast og lifa lúxuslifi fyrir tiltölulega litinn pening. Til London koma þeir I einka- þotum sinum tilþess einsaðláta laga I sér tönn, eða fara I læknisskoðun I Harley Street. Þeim líkar vel við Eng- land og Englendinga, bæði hvað við kemur menningar- og skemmtanalif- inu. Arabarnir hafa nóg af peningum, og þeir nota þá lika — til þess að kaupa einbýlishús, hótel og klúbba. Segja má, að það séu einungis kaupsýslu- mennimir, sem eru ánægðir með Arabana. Þegar hinn venjulegi borg- aralegi Englendingur sér þvottinn af Aröbunum hanga útiá svölum til þerr- is á hinu fina Mayfair hóteli, þá fer heldur að fara um hann, og honum finnst sér vera misboðið. (Þ.fb) 7

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.