Heimilistíminn - 08.09.1977, Blaðsíða 37
Gauti Hannesson:
Föndurhornið
2. Hvað eigum við að kalla
hljóðfæri No. 2?
I þaö má ýmist nota nagla eöa titu-
prjöna.
Takiö svolitla fjöl og rekiö 8 titu-
prjdna ihana 1 réttri röö. Eftir þvi sem
þú rekur þá dýpra skifta þeir um tön.
Ef þú nú rekur þá þangaö til tónarnir
sem þeirgefa frá sér, stemma viö tón-
ana á einni áttund á hljóöfærinu, er
hljóðfæriö tilbúið, En þú veröur aö
hafa næmt eyra, svo að hljóðfæriö
veröi ekki falskt. — Og svo spilarðu á
þetta hljóðfæri með þvi aö snerta nál-
arnar meö hvössum blýantsoddi.
5. Svana-flauta
t hana notaröu gamla reiöhjóladælu
— þér finnst þaö undarlegt, en svona
er þaö nú samt. Svo sagaröu til með
málmsög neöri partinn af dælunni, svo
hann verður eins og flauta (sjá mynd-
ina). Skerösvo til ofurlitinn fréklossa,
eins og sýnt er neöst á myndinni og
setur hann inn i hólkinn — alveg eins
og þegar maður býr til flautu úr
tvinnakefli. Og svo leikuröu á flautuna
meö þvi að draga bulluna mismunandi
hratt fram og aftur.
6. Tromman
Til eru blikkkassar, ætlaðir til þess
aö geyma í smákökur eða brauð. Ef
þiö máliö einn slikan eins og sést á
myndinni og notið svo tvo blýanta sem
„kjuöa”, getiö þið slegiö taktinn við
hvaða lag, sem er. Ef til vill væri betra
aö lima grænt filt ofan á trommuna til
þess aö fá betri tón, en þetta getið þið
nú sem bezt þreifað ykkur áfram meö.
SD0
sbe
Það er mjög auðvelt að læra
frönsku. Hestur heitir t.d.
cheval. ... og annað er eftir
þvi.
Það er fátt erfiðara að hrekja
en þögnina.
Vitneskja er mikilvæg, ef þú
veizt eitthvað um réttan aðila.
Farðu vel með vini þina, því án
þeirra værir þú öllum fram-
andi. •
Gáfnaljós eru oft sérvitur, en
sérvitringar þurfa ekki alltaf
að vera gáfnaljós.
Maður sem hefur verið sann-
færður andstætt eigin vilja, er
enn sömu skoðunar.
Smáverk, sem komast i fram-
kvæmd, eru betri en stórvirki,
sem aðeins er verið að ráð-
gera.
Verðbólgan er ástæðan fyrir
því, að bezt hefði verið að
kaupa hlutina í fyrra.
37