Heimilistíminn - 19.10.1978, Blaðsíða 4
ABBAselstiangtum beturen Andy Gibb og
Oiivia Newton-John, sem eru hér i miðj-
unni en þessi sex komu fram I ABC sjón-
varpsþætti siðastliðib vor.
Um ABBA eru engar sögur sagðar. bau
hafa ekki drukkið sig full á almannafæri
og gert eitthvaö af sér, svo sögur fari af og
ekki hafa þau heldur verið sökuð um að
neyta eiturlyfja. Það er allt i lagi á
hótelunum, þar sem þau gista og þau
haga sér i einu og öllu eins og mesta
sæmdarfólk. — Við þurfum ekkiaðhaga
okkur eins og rokkaðdáendurnir vilja og
drekka okkur full, segir hinn skeggjaöi
Benny. — Við erum fullorðið fólk. Mesta
hneykslið sem sögur fara af var þegar
Agnetha, sem er þeirra bráðlyndust.greip
einu sinni sild og kastaði henni þvert yfir
herbergið framan i manninn sinn Björn.
Á fimm árum hafa þau i ABBA selt
samtals 53 milljónir platna og fengið i
laun (þar með taliö fyrir segulbönd, en
ekki fyrir hljómleika eða sjónvarpsþætti)
um 300 milljónir dollara. Þegar ABBA
hélt tónleika i London hefði verið hægt að
selja 3.5 .milljónir miöa en tónleikahöllin
tók ekki nema 6200 manns i sæti. Þá hefur
veriö reiknað út að ein af hverjum fjórum
fjölskyldum i Astrallu hafi keypt sér
ABBA plötu á slöasta ári. ABBA-æðið tak-
markast ekki við þaö sem sumir kalla
hinn frjálsa heim. Þannig náöi platan með
Money, Money, Money (It’s a Rich Man’s
World) miklum vinsældum I Sovétrikjun-
um og komst á lista yfir 10 vinsælustu
plöturnar. Eftirspurnin eftir ABBA-plöt-
um i Austur-Evrópulöndunum er svo mik-
il að rikin hafa ekki nægilega mikiö af
vestrænum gjaldmiðli til þess aö greiöa
fyrir þær. Þess vegna var sú leið valin aö
ABBA-plötur kæmu inn i vöruskipta-
samninga og eru þær nú seldar fyrir oliu,
niðursoöið kjöt og grænmeti.
ABBA sló i gegn árið 1974 með þvi aö
fara meö sigur af hólmi I Evrópu-söngva-
Fáir hafa náð jafnmiklum vinsældum
um allan heim og sænski sönghópurinn
ABBA. Þau fjögur, sem nefna sig ABBA
hafa meira að segja náð meiri alþjóðlegri
útbreiðslu en hinn þekkti sænski bill Volvo
og plötur þeirra seljast meira en plötur
nokkurra annarra. 1 Bandarikjunum hef-
ur ABBA ekki náð eins miklum vinsæld-
um og viðast annars staðar. Þó hafa
plöturnar Dancing Queen og Take á
Chance on Me vakiö athygli og ABBA
hefur lika komið fram og vakið hrifningu I
nokkrum sjónvarpsþáttum. En samt hafa
Bandarikjamenn ekki algjöriega sætt sig
við ABBA eins og allir aðrir hafa gert i
þess orðs fyllstu merkingu.
ABBA er sett saman úr fyrstu bók-
stöfunum i nafni fjórmenninganna og þau
skrifa ABBA meö stórum staf til þess aö
þeim sé ekki ruglað saman við vinsæla
sænska fiskniðursuðu.
Benny Anderson.sá sem leikur á tón-
borðið er 31 árs og hann og söngkonan
Anni-Frid Lyngstad sem er 32 ára,hafa
búiö saman i óvigðri sambúð, þvi sem
Bandarikjamenn kalla „Stokkhólms-
hjónabandi”, undanfarin 10 ár. Gitarieik-
arinn og lagasmiðurinn Björn Ulvaeus,
sem er 33 ára og söngkonan og kynbomb-
an Agnetha Faltskog sem er 28 ára hafa
veriö löglega gift frá þvi áriö 1971.
Frida Lyngstad og Benny Anderson ræö-
ast við hjá bllnum sinum.
LIF ABBA
ER EINN
SÆLU-
DRAUMUR
4