Heimilistíminn - 19.10.1978, Side 5
Björn Ulvaeus og Agnetha Faltskog
stunda Ifkamsrækt af kappi.
m—--------►
keppninni sem um 500 milljónir sjón-
varpsáhorfenda fylgdust meö. Þar sungu
fjórmenningarnir Waterloo. Þau sigruðu I
það skiptið ýmsa þekkta söngvara.þar á
meðal OIiviu Newton-John, en eins og
Benny segir: — Hún er dásamleg
manneskja og myndi aldrei erfa þetta við
okkur.
ABBA-fjórmenningarnir eru löngu
orðnir þreyttir á ferðalögum og kunna vel
að meta lifið í Lidingö f Stokkhólmi.
Björn segir: — Hjá okkur gengur fjöl-
skyldan fyrir öllu öðru.
Björn og Agnetha búa i yfirlætislausu
niu herbergja húsi og þau forðast eins og
heitan eldinn næturlifið i Stokkhólmi en
sitja þess i stað heima og gæta Lindu, sem
er 5 ára og Christians, átta mánaða. Til-
koma hans var nákvæmlega útreiknuð og
látin falla inn i fyrirframgerðar áætlanir
um söngferðalög og aðrar áætlanir fjór-
menninganna. — En það mátti ekki tæp-
ara standa segir Agnetha. — Við vorum
að ljúka við The Album, nýjustu plötuna
okkar og ég var komin niu mánuði á leiö
og varð að liggja fyrir.svo barnið kæmi
ekki of fljótt.
Agnetha heldur áfram: — Við höfum út-
skýrt fyrir dóttur okkar, hvað við gerum,
en hún er ekkert hrifin af þvi. Hún hlustar
ekki einu sinni á plöturnar okkar.
önnur ástæða er fyrir yfirlætisleysi
þeirra i ABBA,en það er það sem þau
kalla „konungleg sænsk afbrýðisemi.” —
Ef fólk sæi okkur aka um á Rolls-Royce,
myndi það kasta i okkur flöskum.
Benny og Anni-Frid,sem kunningjarnir
kalla Friðu eiga heima skammt frá og það
tekur þau ekki nema fimm minútur i
BMW-bilnum sinum aö aka til Björns og
Agnethu. Þegar þau eru spurð að þvi,
hvort þau ætli ekki að ganga i hjónaband
ypptir Benny öxlum og segir: — Ég sé
ekki ástæðu til þess að fá skirteini upp á
ástina. Hjónabönd geta komiö sér vel
fyrir fólk þegar um eignarétt er að ræða.
en við skiptum öllu jafnt og eigum allt til
helminga. Þau búa i þriggja hæöa gamal-
dags húsi, þar sem tvö börn Fridu frá
fyrra hjónabandi (Hans 15 ára og Lise-
Lotte 11 ára) búa allt áriö um kring og
sömuleiöis börn Benny sem ekki var gift-
ur heldur bjó eitt sinn með annarri konu,
Peter 15 ára og Helena 13 ára koma i
heimsókn um helgar.
Benny og Friða fara stundum út að
skemmta sér i Stokkhólmi. Nýlega fóru
þau svo I siglingu um Svartahafið á nýrri
220 þúsund dollara snekkju. Þau segjast
Björn og Benny við vinnu sina.