Heimilistíminn - 19.10.1978, Síða 19
1
begar þú ætlar aB baka tertu-
botnaerbezt aböll efnin, sem iþá
eiga aö fara séu viö stofuhita.
2
Bakiö tertubotnana daginn áö-
ur en þiö ætliö aö nota þá. Þá á aö
vera auöveldara aö skera tert-
una.
3
Kaupiö rjómann daginn áöur en
þiö ætliö aö nota hann og geymiö
hann i kæliskápnum, þar til þiö
fariö aö þeyta hann.
4
Kæliö skál og þeytara áður en
þiö byrjiö að þeyta rjómann,
vegna þess aö þá gengur verkiö
betur og rjóminn verður um-
fangsmeiri en ella.
5
Geymið kökurnar, þegar biíið
er aö skreyta þær, i isskápnum
eöa á vel köldum staö.
6
Stingiö hnff num i volgt vatn áö-
ur en fariö er aö skera tertuna, þá
skerst hún betur.
7
Ef þiö hafiö flatt út marsipan
t.d. i marsipantertu er bezt aö
vefja hana upp á kökukef liö þang-
aö til hann er settur á tertuna.
Þannig geymist hann bezt.
8
Geymiö aldrei tertur meö öör-
um mat, sem gæti gefiö frá sér
lykt. Þaö skemmir bragöiö af
tertunni.
1 c
d c íúskrókur
Túnfiskur, hrísgrjón
og sveppir
Utan á alls konar matar-
pökkum, haframjöls-
pökkum, hrisgrjónapökkum
og öðru álika, má oft finna
hinar ágætustu uppskriftir.
Venjulega litum við þó ekki
á þessar uppskriftir, heldur
hellum úr pakkanum og
hendum honum svo, þegar
hann er tómur. Hér birtum
við i dag uppskrift, sem var
á Uncle Ben’s hrisgrjóna-
pakka. 1 henni eru
hrisgrjónin að sjálfsögðu
aðaluppistaðan, en auk þess
er túnfiskur og sveppir, sem
hvort tveggja gera þetta
hinn mesta herramanns
mat.
Túnfiskur, hrisgrjón og
sveppir i potti.
1 bolli af hrisgrjónum, 1 dds 101/2
únsa af niðursoðinni sveppasúpu,2 1/4
bolli vatn, 1/2 bolli saxaöur laukur, l
pakki af frosnum baunum, (10 únsur),
1 dós túnfiskur (6 1/2 únsa). Látiö
safann renna af fiskinum og takiö
hann sundur f smábita.
Setjiö nú hrfsgrjónin, súpuna,
vatniö, laukinn og salt í pott. Hræriö
vel i. Látiö suöuna koma upp.
Dragiö þá úr hitanum setjið lok
yfir, og látiö malla viö lágan hita I um
þaö bil 25 minútur, eöa þar til hrfs-
grjónin eru oröin mjúk og þessi jafn-
ingur oröinn eins þykkur og þiö viljiö
hafa hann. Hræriö i annaö slagiö.
Nú eru baunirnar teknar, en þær á
aö vera búiö að þiöa áöur, og tún-
fiskurinn. Þetta tvennt er látiö út i
pottinn, sem er látinn standa á plöt-
unniifimm minútur, þar til allter orö-
iö jafnvel heitt.
Þessi uppskrift er sögö nægja
fjórum til sex. Ef þiö viljiö gera eitt-
hvaö fleira til þess að rétturinn veröi
enn gómsætari, má mylja kartöflu-
flöguryfir réttinn áöur en hann er bor-
inn fram, og einnig er sagt mjög gott
að setja út í 2 matskeiðar af ósætu
sherrii.
19