Morgunblaðið - 04.08.2004, Blaðsíða 31
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2004 31
Í dag, fjórða dag
ágústmánaðar 0́4, er
góðvinur okkar og
ágætur veiðifélagi um
skeið sjötugur.
Jóhann Guðmunds-
son eða Jói eins og við
nefnum hann oftast er
af vestfirskum ættum
kominn, og ólst upp í
Arnarfirði að bænum
Dynjanda, í því dá-
semdar umhverfi sem
margir þekkja.
Æskan leið í leik og
starfi í foreldrahúsum
við hin ýmsu sveita-
störf, því piltur var harðduglegur.
Fljótt náði hann góðum tökum á að
munda veiðistöng og byssu, sem
hann eignaðist mjög ungur eða um
13 ára. Veiðieðlið var til staðar en
því var aldrei misbeitt á nokkurn
máta, og höfum við það fyrir satt
að aldrei skaut hann ref þar vestra
þótt góð skytta væri, því refurinn
átti samúð hans í öll-
um sínum erfiðleik-
um í lífsbaráttunni.
Eftir skólagöngu í
heimahögum hélt Jói
suður eins og sagt
var þá, 17 ára gamall,
og hóf nám við Iðn-
skólann í Reykjavík
og lagði stund á vél-
virkjun og lauk þar
prófi árið 1957. Eftir
námið hóf Jóhann að
starfa hjá bifreiða-
fyrirtækinu „Egill
Vilhjálmsson“ og
vann þar í ein 25 ár,
lengst af sem verkstjóri. Síðar
eignaðist hann vélaverkstæðið
„Egil ehf.“ í Kópavogi ásamt
nokkrum félögum sínum.
Eins og fyrr segir var Jói fljót-
lega valinn til forystu á vinnustað
sínum sökum einstakra hæfileika
sinna til að fást við erfið verkefni.
Allt lék í höndum hans. Við fé-
lagarnir fórum oft með bilaðar
stangir, veiðihjól, byssur, sláttu-
vélar, dælur, bílvélar og hvað eina,
og Jói lagfærði allt og oft á ótrú-
legan hátt og aldrei þáði hann
greiðslur fyrir.
Jóhann skipaði sér snemma í
raðir Stangaveiðifélags Reykjavík-
ur og starfaði lengi í árnefndum fé-
lagsins svo sem í Stóru-Laxá, Laxá
í Kjós, Víðidalsá og fleiri ám. Hann
er meðlimur í Oddfellow-hreyfing-
unni hér í borg til margra ára, en
eins og menn vita lætur hún margt
gott af sér leiða.
Eitt aðaláhugamál Jóhanns í
mörg ár hefir verið veiði með stöng
að vopni við vötnin ströng, árnar
okkar, sem hann hefir yndi af að
sækja heim. Hann er veiðimaður
frábær og stundar íþrótt sína af
kappi en um leið af forsjálni, og
gengur aldrei á hlut annarra við
veiðarnar, en sýnir öllu í umhverf-
inu fyllstu tillitssemi að hætti nátt-
úruunnandans. Fluguköst hans eru
fullkomin og glæsileg, svo unun er
á að horfa.
Við félagarnir höfum bundist
sterkum vináttuböndum vegna
dellu okkar sem við nefnum svo:
veiðidellunnar, og oft heyrist orða-
tiltækið: Dauður er dellulaus mað-
ur. Þessi vinátta okkar hefir hald-
ist í marga áratugi og aldrei fallið
skuggi þar á. Hún hefir styrkst og
eflst með árunum. Sá er vinur sem
í raun reynist; en það þekkja allir.
Sterk vináttubönd og tryggð er
farsælasta veganestið til æðstu
gæða. Slík bönd taka til alls þess
sem manninum finnst ómaksins
vert að sækjast eftir í lífinu. Séu
vináttubönd fyrir hendi erum við
sæl með lífið, ef þau skortir erum
við vansæl.
Áherslu ber að leggja á að velja
vini af kostgæfni.
Jóhann valdi sér lífsförunaut og
vin, er hann gekk að eiga Sig-
urlaugu Hannesdóttur úr Mið-
stræti hér í borg árið 1958, hina
ágætustu konu, sem búið hefir
þeim afar fallegt og gott heimili á
Valhúsabraut á Seltjarnarnesi, en
þangað er yndislegt að koma og
njóta gestrisni í ríkum mæli. Börn
þeirra hjóna eru tvö: Anna og Guð-
mundur og barnabörnin fjögur.
Við veiðifélagarnir viljum hér
með óska þeim hjónum innilega til
hamingju á þessum tímamótum,
um leið og við sendum börnum
þeirra, mökum, barnabörnum og
öðru venslafólki okkar ágætustu
kveðjur með innilegri þökk fyrir
allt gamalt og gott á liðnum árum.
Kæri Jóhann; bestu afmælisósk-
ir færum við þér með þessum fá-
tæklegu orðum á þessum merka
degi.
Lifðu heill um ókomna framtíð
og njóttu í ríkum mæli útivistar
með stöng í hönd við vötnin ströng.
Þess óska þér af alhug veiði-
félagarnir:
Halldór Þórðarson
Ólafur Ólafsson
Kjartan Zóphoníasson
Friðleifur Stefánsson
JÓHANN
GUÐMUNDSSON
Sumartilboð - 30%! Full búð af
nýjum vörum fyrir hunda, ketti og
önnur gæludýr. 30% afsláttur af
öllum vörum. Opið mán.-fös.
kl.10-18, lau. 10-16, sun. 12-16.
Tokyo, Hjallahrauni 4,
Hafnarfirði, sími 565 8444.
Fjórhjólaferðir
í Haukadalsskógi
www.atvtours.is
Símar 892 0566 og 892 4810.
Ferð og saga. Farið verður í
ferð á slóðir Ólafíu Jóhannesd.
laugard. 7. ágúst. Sögumenn:
Guðrún Ásmundsd. Edda
Björgvinsd. ofl. Sími 551 4715/
898 4385. www.storytrips.com
Einkatímar í sjálfseflingu
Unnin með EFT tækni, dáleiðslu
og djúpslökun. Upplýsingar og
tímapantanir í síma 694 5494,
EFT@internet.is.
Viðar Aðalsteinsson ráðgjafi.
Heilsárssumarbústaður óskast.
Óskum eftir sumarbústað á Suð-
urlandi með 2-3 herb. og/eða
svefnlofti og með heitum potti.
Verðh. 6-11 millj. Uppl. sendist á
bustadur@visir.is.
Fagþjónustan ehf., s. 860 1180.
Glerísetningar, móðuhreinsun
glerja, háþrýstiþvottur, þakvið-
gerðir, þakmálun, útskipting á
þakrennum og niðurföllum, steyp-
uviðgerðir, lekaviðgerðir o.fl.
Námskeið í tréskurði.
Örfá byrjendapláss laus í septem-
ber nk.
Hannes Flosason,
sími 554 0123.
Ég missti 11 kg á 9 vikum -
www.heilsulif.is. Aukakílóin burt!
Ása 7 kg farin! Anna 9 kg farin!
Vilt þú léttast hratt og örugglega?
Frí prótein mæling. Hringdu strax.
Alma, s. 694 9595 www.heilsulif.is
Tilboð: Rafdrifið hlaupahjól kr.
7.990. 100w, ca 10-12 km hleðsla,
hámarkshraði ca 12km/klst.,
handbremsa. Frábær kaup. Hring-
du núna!
ONOFF, sölum., s. 892 9804.
Lagersala 60-70% af öllu Ótrú-
legt úrval af öðruvísi vörum frá
Austurlöndum, sem ekki fást ann-
ars staðar á Íslandi.
Sigurstjarna (bláu húsin),
Fákafeni.
Kristalssprey. Ný sending af
kristalsspreyi fyrir kristalsljósa-
krónur o.fl.
Slovak Kristall, Dalvegi 16b,
201 Kópavogi, s. 544 4331.
Bókhald - skattframtöl. Stofnun
einkahlutafélaga - ráðgjöf o.fl.
KJARNI ehf. - sími 561 1212 -
karm@simnet.is
Bruna- og hljóðvarnir
Askalind 6, sími 554 1800
Eldverjum stálbita.
Eldverjum timbur.
Þéttum gegnumtök í veggi.
Eldverjum loftræstistokka.
Hjóðverjum milliveggi.
Eld- og hljóðverjum iðnaðarhús.
Sumarsandalar
Tilboð 1 par 1.290 - 2 pör 2.000.
Stærðir 35-41, margir litir. Nýir litir
í barnastærðum. Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Poncho - margar gerðir og litir
Ný töskusending. Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Vantar þig bát, mótor, mæla,
lúgur, festingar, öryggisbúnað
eða annað tengt bátum?
Bátaland ehf., Óseyrarbraut,
Hafnarfirði, sími 565 2680.
www.bataland.is.
Nissan Terrano II árg. '01 ek.
47 þús. Álfelgur, skyggðar rúður,
geislaspilari, ný 31" dekk, þjón-
ustubók. Mjög fallegur og vel
hirtur bíll. Verð 2,1 millj. Uppl. í
símum 564 2076 og 848 8788.
Nýr Eurotrailer tunnuvagn. Nýr
3ja öxla tunnuvagn, Hardox 450.
Diskabremsur, lyftihásing, utaná-
liggjandi gafl, seglyfirbreiðsla o.fl.
Til afhendingar strax.
Th. Adolfsson, sími 898 3612.
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Wolksvagen Passat,
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Palomino pony (Yarling), árg.
2001, með ísskáp, svefntjöldum,
hleðslu í bíl og á nýjum dekkjum.
Áhv. 350 þ. kr. Tilboðsverð 750 þ.
kr. Uppl í s. 898 9007. Til sýnis á
bílasölunni Planið.
Stíflulosun og röramyndun
Ásgeirs sf.
Skolphreinsun
Losa stíflur úr salernum, vöskum,
baðkörum og niðurföllum.
Röramyndavél til að staðsetja
skemmdir í lögnum.
s. 892 7260 og 567 0530, f. 587 6030
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum og
niðurföllum – Við notum ný og fullkomin tæki
ATVINNA mbl.is