Morgunblaðið - 04.08.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 04.08.2004, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2004 9 ÚTIMÁLNING OG VIÐARVÖRN Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 50% afsláttur af öllum vörum Tilboðsslár Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222. www.feminin.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Erum að taka upp nýjar vörur Útsalan heldur áfram Str. 36-60 undirfataverslun Síðumúla 3 - Sími 553 7355 Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga frá kl. 11-15. Lokað í dag Útsalan hefst á morgun Útsala Síðustu dagar Viðbótar- afsláttur Laugavegi 63, sími 551 4422 V e r ð h r u n þessa viku ÞESSIR líflegu krakkar víluðu ekki fyrir sér að stinga sér út í ískalt vatnið á dögunum þegar ljósmyndari Morgunblaðsins, sem var á ferðinni í Vatnaskógi, smellti mynd af þeim. Veðrið var með besta móti þenn- an dag og var um átján stiga hiti í forsælu og auðvelt að una við ýmsa leiki í vatni og skógi. Morgunblaðið/ÞÖK Líf og fjör í Vatnaskógi Í DAG hefst ný mæling á hnitakerfi landsins, svokölluðu grunnstöðvaneti sem byggt er á 119 mælistöðvum sem notaðar eru við kortagerð og margs konar skipulagsvinnu. Í frétt frá Landmælingum Íslands segir að GPS-kerfið sé sífellt meira notað til staðarákvörðunar og að vegna hreyf- ingar á jarðskorpu landsins sé talið nauðsynlegt að mæla netið á 10 ára fresti. Landmælingar Íslands standa að endurmælingunni í samvinnu við ýmsar stofnanir og sveitarfélög um landið allt. Verkefnið hefst í dag við mælistöð nálægt Reykholti í Borgar- firði þar sem Siv Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra annast fyrstu mæl- inguna. Að því loknu munu 19 mælingahópar hefja mælingar á 34 stöðvum á Norðurlandi og síðar um landið allt. Í hópunum eru 34 mæl- ingamenn og aðstoðarmenn þeirra sem fara um á vel út búnum jeppum en mældar verða þær 119 stöðvar sem mældar voru síðast árið 1993 auk 11 til viðbótar. Eru stöðvarnar bæði í byggð og óbyggðum. Verkefnið stendur til 14. ágúst. „Áætla má að einungis flekarek Ameríku- og Evrópuflekanna sé um 2 cm á ári. Síðan bætast við miklar jarð- skorpuhreyfingar eins og á Suður- og Norðausturlandi en þar er hreyfing lands mest. Vöktun á hreyfingum er mikilvægt markmið og þess vegna vinna Landmælingar Íslands náið með ýmsum stofnunum. Sameiginleg viðleitni mun leiða til skilvirkara við- halds grunnstöðvanetsins á Íslandi sem kemur jafnt almenningi og hinu opinbera til góða,“ segir einnig í frétt frá Landmælingum. Hnitakerfi landsins mælt að nýju á 130 stöðum BYGGÐAÞING á vegum samtak- anna Landsbyggðin lifi verður háð á Hólum í Hjaltadal 28. og 29. ágúst næstkomandi. Verða þar flutt nokkur erindi um byggðamál og byggðaþróun og efnt til pall- borðsumræðna. Fyrsta erindi þingsins flytur Ragnar Stefánsson, formaður samtakanna, og mun hann þar fjalla um grasrótarhlutverk þeirra í þróun byggðar. Þá flytur Magnús B. Jónsson, rektor Land- búnaðarháskólans á Hvanneyri, erindi um héraðs- og landshluta- vald í byggðaþróun og Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, deildarstjóri ferðamáladeildar Hólaskóla, ræð- ir um ferðaþjónustu í dreifbýli og byggðaþróun. Þóroddur Bjarna- son, prófessor í félagsfræði- og lagadeild HA, ræðir um æskuna og landsbyggðina, Líneik Anna Sævarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Fræðsluneti Austurlands, fjallar um fræðslunetið og byggðaþróun og Þórarinn Sólmundarson hjá Byggðastofnun fjallar um hlut- verk hennar í atvinnuþróun á landsbyggðinni. Frekari upplýs- ingar um þingið er að finna á vef- síðu samtakanna, landlif.is. Landsbyggðin lifi stendur fyrir byggðaþingi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.