Morgunblaðið - 11.08.2004, Síða 18

Morgunblaðið - 11.08.2004, Síða 18
DAGLEGT LÍF 18 MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ 4 síðustu dagarnir ! menn + konur,laugavegi 66,www.gk.is ÚTSALA 60-70 % afs láttur enn meiri lækkun ! Á Árbæjarsafni var nýlegahaldið námskeið í gerð flug-dreka og er það liður í starfi safnsins þar sem lögð er áhersla á að kynslóðirnar geri eitt- hvað saman. Ekki veitir af í tíma- hröktu þjóðfélagi að auka samveru foreldra og barna en börnin þurfa aðstoð fullorðinna við flug- drekagerðina. Afar og ömmur, for- eldrar og systkin eru hvött til að koma saman á námskeiðið. Valdór Bóasson smíðakennari til margra ára leiðbeindi við gerð drekanna en hann sá einnig um það í fyrra þegar boðið var upp á svona námskeið í fyrsta sinn hjá Árbæj- arsafni. Lítil sveit í miðri borg „Árbæjarsafn er lítil sveit inni í miðri borg og hér er úrvals aðstaða til að bjóða upp á hvers konar sam- veru. Flugdrekagerð er mjög fjöl- skylduvænt áhugamál. Þetta er sí- gilt krakkagaman og það er mjög einfalt að búa til flugdreka, vissum grundvallaratriðum þarf að fylgja og þá getur hvaða fjölskylda sem er gert þetta og aldur og kyn skipt- ir engu máli. Við vorum ekki nema einn og hálfan tíma að búa til ein- faldan dreka sem kallast kross- dreki og við ætlum líka að gera flóknari gerð sem er tvöfaldur krossdreki með tveimur þver- spýtum. Það er ekkert mál að koma flugdrekunum á loft en svo- lítil kúnst að halda þeim á lofti og þá skiptir lengd skottsins máli.“ Meiri útivera Valdór hefur ákveðnar skoðanir á skólamálum og vill meiri útivist fyrir börnin. „Við lengingu skóla- ársins myndi ég kjósa að við upp- haf og endi skólaársins væri meira stílað inn á útiveru þar sem farið væri í skógarferðir, fjöruferðir og annað slíkt þar sem börnin fá að fræðast um hitt og þetta í umhverfi sínu. Sá þroski sem felst í samveru og leik er mjög mikilvægur fyrir börnin. Lærdómur felst nefnilega í svo mörgu öðru en að sitja við skriftir.“  TÓMSTUNDIR|Námskeið í flugdrekagerð sem haldið var í Árbæjarsafni Fljúga skal flugdrekinn Valdór Bóasson kennari: Hnýtir plast í skottið á einum drekanum og kann vel við sig í sveit í borg þar sem kýr eru á beit. Morgunblaðið/Árni Torfason Skemmtilegt: Guðfinnur Geirdal og Sverrir faðir hans undirbúa flug eftir að hafa lengt í skottinu á drekanum. Valdór: Leiðbeinir Fannari við að halda drekanum á lofti.khk@mbl.is SKJALDFLÉTTA er ættuð frá Suð- ur–Ameríku og rækta flestir hana hérlendis fyrst og fremst til skreyt- inga enda fögur jurt og litrík. En hún gleður ekki aðeins augað, held- ur líka bragðlaukana. Í bókinni Krydd, uppruni, saga og notkun, eft- ir Þráin Lárusson, segir að hvern einasta part þessarar fallegu jurtar megi nýta til matargerðar. Í salat er tilvalið að nota krónublöðin sem og ung laufblöð en Þráin varar við að nota of mikið af þeim þar sem þau eru mjög bragðmikil. Í eftirrétti og aðra sæta rétti má svo nota sporann sem gengur niður af blóminu, en hann inniheldur sykursætan vökva sem fer einkar vel í munni. Blóma- hnappana og fræin má einnig nota sem krydd en þá eru þau pækluð rétt eins og kapers. Taka skal fræin um leið og krónublöðin eru fallin, skola þau í vatni og láta þau síðan liggja í köldu saltvatni yfir nótt. Eft- ir það eru þau þurrkuð og sett í kalt kryddedik í vel lokuðu íláti. Þetta þarf að gera í tíma, því ekki eru þau tilbúin til manneldis fyrr en eftir eitt ár í ílátinu góða.  MATUR Morgunblaðið/Þorkell Skjaldflétta tilvalin í matargerð www.thjodmenning.is Smáralind • sími 553 6622 • www.hjortur.is Brúðkaup • Pökkun • Merking

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.