Morgunblaðið - 06.09.2004, Side 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FÓRNARLÖMB JARÐSETT
Íbúar Beslan í Norður-Ossetíu
jarðsettu í gær börn, foreldra og
kennara sem létu lífið í skóla bæj-
arins eftir að hryðjuverkamenn tóku
þar hundruð manna í gíslingu. Vlad-
ímír Pútín Rússlandsforseti við-
urkenndi veikleika Rússa frammi
fyrir hryðjuverkamönnum og lofaði
víðtækum umbótum til að efla ör-
yggisstofnanir landsins.
Ræningi ófundinn
Lögreglan í Reykjavík leitar enn
manns á þrítugsaldri sem framdi
vopnað rán í Hringbrautarapóteki á
laugardagskvöld. Ógnaði hann
starfsfólki með loftskammbyssu og
hafði á brott með sér ávana- og fíkni-
lyf. Apótekarinn reyndi að hlaupa
ræningjann uppi en missti sjónar á
honum.
Áfall fyrir Schröder
Þýskir jafnaðarmenn, flokkur
Gerhards Schröders kanslara, galt
mikið afhroð í kosningum til þings
Saarlands í gær. Fylgi flokksins
minnkaði um þriðjung og hefur ekki
verið jafnlítið í Saarlandi frá 1960.
Slegist um enska boltann
Forsvarsmenn Norðurljósa áttu í
viðræðum við eignarhaldsfélagið
Fjörni um kaup á sýningarétti á
enska boltanum hér á landi, þegar
þeir fregnuðu fyrir helgi að Síminn
hefði keypt félagið.
Al-Duri í haldi í Írak?
Forsætisráðuneytið í Írak sagði í
gærkvöldi að íraskir þjóðvarðliðar
hefðu handtekið mann sem kynni að
vera Izzat Ibrahim al-Duri, nánasti
samstarfsmaður Saddams Husseins
áður en stjórn hans féll.
Bankarnir endurfjármagna
Hin nýju íbúðalán banka og spari-
sjóða fara að mestu í endur-
fjármögnun eldri og óhagstæðari
lána en Íbúðalánasjóður mun verða
umsvifamestur í veitingu nýrra lána
til íbúðakaupa. Þetta kemur m.a.
fram í Fasteignablaði Morgunblaðs-
ins í dag.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Dagbók 30/32
Fréttaskýring 8 Myndasögur 30
Vesturland 12 Víkverji 30
Viðskipti 13 Staður og stund 32
Erlent 14/15 Menning 33/37
Daglegt líf 16 Af listum 35
Umræðan 18/22 Leikhús 33
Bréf 22 Bíó 34/37
Forystugrein 20 Ljósvakar 38
Minningar 23/27 Veður 39
Hestar 28 Staksteinar 40
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir kynningarblað um mbl.is.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
KAUPMÁTTUR launa hefur vaxið
um rúman þriðjung á síðustu tæpum
tíu árum. Sé litið til kaupmáttarþró-
unarinnar frá því í ársbyrjun 1995
kemur í ljós að kaupmáttur hefur
vaxið um um 37,2% á tímabilinu,
samkvæmt mælingu kaupmáttar-
vísitölu Hagstofu Íslands. Þá hefur
kaupmáttur launa vaxið um 11,5% að
meðaltali sl. tæp fimm ár.
Þetta kemur í ljós þegar þróun
launa annars vegar og verðlags hins
vegar samkvæmt mælingum Hag-
stofu Íslands er borin saman. Þannig
kemur í ljós að laun hafa í krónutölu
hækkað að meðaltali um rúmlega
þriðjung það sem af er þessum ára-
tug eða frá því í ársbyrjun 2000. Á
sama tíma hefur verðlag hækkað um
fimmtung og hefur því kaupmáttur á
tímabilinu aukist um 11,5%. Í janúar
árið 2000 var launavísitalan 186,9
stig og hafði hækkað í 251,4 stig í júlí
síðastliðnum samkvæmt nýjustu töl-
um Hagstofunnar í þessum efnum,
en það jafgngildir 34,5% hækkun á
tímabilinu.
Neysluverðsvísitalan var 195,5
stig í ársbyrjun 2000 og hafði hækk-
að um 234,6 stig í júlímánuði sem
jafngildir 20% hækkun á tímabilinu.
Hagstofan reiknar einnig út sér-
staka kaupmáttarvísitölu, þar sem
vegin hefur verið saman hækkun
launa síðustu fimmtán ár og hækkun
verðlags sama tímabil. Kaupmáttar-
vísitalan var í 79,8 í ársbyrjun 1995
fyrir tæpum tíu árum en var í júní
síðastliðnum komin í 109,5 sem jafn-
gildir 37,2% hækkun á tímabilinu.
Kaupmáttur
óx um þriðjung
SENDIRÁÐ Rússlands á Íslandi
verður með samúðarbók í sendi-
ráðinu í dag og á morgun fyrir fólk
sem vill lýsa yfir samúð sinni vegna
atburðanna í Beslan í Norður-
Osetíu þar sem fjöldi barna lét lífið
í mannskæðustu gíslatöku í sögu
Rússlands.
Sendiráðið er á Túngötu 9 og
verður opið almenningi frá 10–12 í
dag og frá 13–15 á morgun, þriðju-
dag.
Samúðarbók
í sendiráði
Rússlands
MÖRG dæmi voru þess um helgina
að farsímaeigendur hér á landi
fengu smáskilaboð, sms-skeyti, um
að kveikja á kertum og setja þau út
í glugga til að minnast barnanna
sem fórust í gíslatökunni í bænum
Beslan í N-Ossetíu í Rússlandi.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
hafði haft spurnir af þessum fjölda-
símskeytum en ekkert útkall hafði
orðið í gærkvöldi sem rekja mátti
til kertaljósa. Varðstjóri hjá
slökkviliðinu vildi hvetja fólk til að
fara varlega með kerti í gluggum,
einkum þar sem gardínur geta
blaktað við opin fög.
Hvatt til kerta-
ljósa í gluggum
RÚMLEGA tvö hundruð manns
lögðu leið sína í Sundlaug Kópa-
vogs í gær og tóku þátt í Kópavogs-
sundinu. Þetta er í ellefta sinn sem
boðið er upp á þennan viðburð en
það eru sunddeild Breiðabliks,
Íþrótta- og tómstundaráð Kópa-
vogs og Sundlaugin í Kópavogi sem
sjá um skipulagningu.
Þátttakendur syntu ýmist 500,
1000 eða 1500 metra en auk þess
var boðið upp á Viðeyjarsund og
Drangeyjarsund en hið fyrrnefnda
er 3,9 km og hið síðarnefnda 6,8
km. Að synda þessar vegalengdir
jafnast á við að hlaupa hálfmaraþon
eða maraþon.
Morgunblaðið/Golli
Rúmlega 200
manns syntu
Kópavogssund
MÓÐIR tveggja íslenskra pilta, sem
staddir eru hjá föður sínum í bænum
Wellington í Palm Beach-sýslu í
Flórída, hefur ekkert heyrt frá son-
um sínum síðan á laugardag. Felli-
bylurinn Frances reið yfir skagann
um helgina mjög nálægt Wellington
og hefur bærinn verið rafmagns- og
símasambandslaus síðan.
Rammgerðir stálflekar
settir fyrir gluggana
Hjördís Vilhjálmsdóttir vonast til
þess að ekkert hafi komið fyrir syni
sína, 18 ára tvíbura sem stunda nám
og íshokkíæfingar í Flórída. Hún
segist í samtali við Morgunblaðið
hafa andað léttar eftir símtal á lög-
reglustöð í Palm Beach-sýslu síðdeg-
is í gær, þar sem fullyrt var að lág-
markstjón hefði orðið í Wellington
og engar tilkynningar borist þaðan
um slys á fólki.
Þegar Hjördís heyrði síðast í son-
um sínum um miðjan dag á laugar-
dag hafði fellibylurinn þá um nóttina
náð að rífa stórt tré í garði föður
þeirra upp frá rótum og tréð fokið
burtu í veðurofsanum. Um nóttina
hafði rafmagn farið af bænum og
skipun um útgöngubann verið gefin
út til íbúanna, enda var von á að
miðja fellibylsins færi yfir bæinn.
Hjördís segir föður þeirra hafa bú-
ið á þessum slóðum í Flórída í tólf ár
og aldrei þurft að grípa til ráðstafana
eins og að negla fyrir alla glugga. Að
þessu sinni hafi rammgerðir stálflek-
ar verið settir fyrir gluggana. Hún
segir fellibylinn greinilega hafa verið
mjög staðbundinn því föðurbróðir
strákanna, sem hún náði símsam-
bandi við, varð ekki var við óveðrið,
staddur um 100 kílómetrum frá
Wellington. Vonast hún til þess að ná
sambandi við synina í dag þegar
veðrið á að hafa gengið niður í bili.
Flogið til Orlando í dag
Flugvöllurinn í Orlando var opn-
aður á ný í nótt og að sögn Guðjóns
Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa
Flugleiða, verður áætlunarflug Ice-
landair til Orlando samkvæmt áætl-
un í dag. Ein ferð verður farin og þá
um leið sóttir þeir 160–170 farþegar
sem komust ekki burtu fyrir helgi
vegna fellibylsins. Flestir farþeg-
anna voru af áfangastöðum félagsins
í Evrópu, flestir frá Skotlandi, en ís-
lenskir farþegar voru um 30. Ein-
hverjir þeirra fóru til Íslands í gær
frá Baltimore.
Frances veldur aðstandendum Íslendinga áhyggjum
Ekkert símasamband
í tvo daga til Flórída
RÉTTAÐ var í gær í Hraunsrétt í Aðaldal og var þar
margt fólk saman komið til þess að sjá og draga féð.
Hraunsrétt var lengi önnur stærsta skilarétt norðan-
lands og þar hefur verið réttað í meira en hundrað og
sjötíu ár. Þessi vinsæli samkomustaður Aðaldælinga og
fleiri Þingeyinga hefur alltaf sitt aðdráttarafl og unga
fólkið hjálpar til eftir því sem það getur.
Frænkurnar Hulda Ósk og Sigríður sögðu gaman að
vera í réttinni, þær væru búnar að finna mörg lömb og
ekkert væri erfitt að draga þau.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Gimbrin tekin föstum tökum
Aðaldal. Morgunblaðið.