Morgunblaðið - 06.09.2004, Side 4

Morgunblaðið - 06.09.2004, Side 4
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segist fyrst hafa frétt af kaupum Sím- ans á Skjá einum í fréttum fjölmiðla. Hann sé ekki enn kominn til starfa eft- ir veikindin og hafi ekki verið að skipta sér af þjóðlífinu með nokkrum hætti á bataveginum. Aðspurður hvort hann telji þetta samrýmast rekstri Símans virðist honum að Sím- inn sé að gæta hagsmuna sinna. Þetta sé fjölmiðlunarfyrirtæki að ein- hverjum hluta. Hins vegar verði að spyrja stjórnendur fyrirtækisins nánar út í hvernig þetta bar að því hann hafi ekki sett sig inn í málið í einstökum atriðum. Geir H. Haarde fjármálaráðherra fer með 99% hlut ríkisins í Sím- anum. Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, sem verið hef- ur erlendis síðustu daga, vildi ekki tjá sig um málið í gær. Heyrði af kaupum Símans í fréttum Davíð Oddsson Forsætisráðherra Leitað að ræn- ingja eftir vopn- að rán í apóteki Morgunblaðið/Júlíus Lögreglan var skjót á vettvang þegar tilkynnt var um ránið í Hringbrautar- apóteki. Vöktuðu lögreglumenn ránsstaðinn á meðan rannsókn fór fram. LÖGREGLAN leitaði enn í gær- kvöldi ungs manns sem framdi vopn- að rán í Hringbrautarapóteki í gamla JL-húsinu um sjöleytið á laugardagskvöld. Myndir náðust af manninum á öryggismyndavélar apóteksins en á leiðinni út tók hann ofan lambhúshettu. Veifaði hann loftskammbyssu, ógnaði starfsfólk- inu og krafðist þess að fá ávana- og fíknilyf. Hafði hann á brott með sér úr hillum nokkurt magn lyfja, sam- kvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík. Vitni sáu til ræningjans fara upp í bíl sem beið hans skammt frá apó- tekinu. Lögreglan vildi ekki stað- festa þær upplýsingar blaðsins og sagði rannsókn málsins síðdegis í gær vera á viðkvæmu stigi. Fjölmennt lið lögreglu var sent á staðinn þegar tilkynnt var um ránið og vegna vopnsins hafði hún tals- verðan viðbúnað. Leit að ræningjan- um hófst þegar í stað í vesturbænum og víðar um borgina en sem fyrr seg- ir hafði hún ekki borið árangur í gærkvöldi. Jón Ingvarsson, lyfsali í Hring- brautarapóteki, stóð vaktina í fyrra- kvöld ásamt þremur starfsmönnum sínum þegar ræninginn æddi inn í apótekið veifandi byssunni og með hettu á höfði sér. Jón segir manninn hafa haft í hótunum við starfsfólkið og skipað því að útvega sér ávana- og fíknilyf. Nokkrir viðskiptavinir voru í apótekinu þegar þetta gerðist, að sögn Jóns. Hljóp á eftir ræningjanum Maðurinn, sem talið er að sé á þrí- tugsaldri, náði sjálfur að hrifsa nokkur lyf úr hillum og hljóp svo út. Á útleið tók hann ofan lambhúshett- una. Jón segist hafa reynt að elta manninn uppi en misst sjónar af hon- um. Síðar hafi hann heyrt að mað- urinn hafi farið upp í bíl sem virðist hafa beðið eftir honum í nágrenninu. Aðspurður segir Jón að rán hafi ekki áður verið framið í Hringbraut- arapóteki. Öryggismál séu í stöðugri endurskoðun en vonandi muni myndir úr öryggismyndavélunum, átta talsins, koma lögreglunni til góða. Hótaði starfsfólki með loftskammbyssu og hafði á brott með sér ávana- og fíknilyf FRÉTTIR 4 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin til Portúgal þann 14. september á hreint ótrúlegum kjörum. Njóttu frísins á Algarve, vinsælasta áfangastaðar Portúgal við frá- bærar aðstæður um leið og þú nýtur traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða í fríinu. Þú bókar núna, tryggir þér síðustu sætin og 3 dögum fyrir brottför færðu að vita á hvaða gististað þú býrð. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 19.990 Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1. Verð kr. 29.995 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug, gisting, skattar. vikuferð, 14. september. Stökktutilboð, netverð. Verð kr. 39.990 M.v. 2 í stúdíó/íbúð, vikuferð, netverð. Símabókunargjald kr. 2.000 á mann. Munið Mastercard ferðaávísunina Stökktu til Portúgal 14. september frá kr. 19.990 FULLTRÚAR Norðurljósa áttu í viðræðum við for- svarsmenn Fjörnis ehf. um kaup á Íslensku sjónvarpi, sem á sýningarréttinn á enska fótboltanum hér á landi, þegar samkomulag náðist um sölu eignarhaldsfélagsins til Símans. Fjörnir á einnig rúm 26% hlut í Skjá einum og segir Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórn- arformaður Norðurljósa, það hafa komið til greina að kaupa þann hluta einnig. Forsvarsmönnum Fjörnis hafi verið umhugað um fjárhagsstöðu Skjás eins og viðræð- urnar komust ekki svo langt áður hluturinn var seldur. Skarphéðinn Berg segist hafa frétt af samkomulagi Fjörnis og Símans á föstudaginn og haft samband við þá, sem tóku þátt í viðræðunum, til að spyrja hvort rétt væri. Svo reyndist vera. Hann segir það af og frá að hringt hefði verið í kjölfarið í stjórnendur Landsbank- ans, helsta lánardrottin Skjás eins, til að koma í veg fyr- ir þessi viðskipti, eins og hefði komið fram í Morg- unblaðinu á laugardaginn. Óeðlileg fjárfesting Sigurði G. Guðjónssyni, útvarpsstjóra Íslenska út- varpsfélagsins, sem er í eigu Norðurljósa, finnst óeðli- legt hve Síminn fjárfesti mikið í sjónvarpsrekstri fyrir tekjur af öðrum rekstri. Vill hann að samkeppnisyfirvöld fari yfir málið og kanni hvort Síminn geti orðið þetta stór aðili á fjölmiðlamarkaðnum. Guðmundur Sigurðsson, forstöðumaður samkeppn- issviðs Samkeppnisstofnunar, hefur verið erlendis síð- ustu daga og þekkir málið ekki í einstökum atriðum. Hann sagðist í samtali við Morgunblaðið gera ráð fyrir að kaup Símans á Fjörni, og þar af leiðandi í Skjá einum, væri af þeim toga að stofnunin myndi skoða það. Í því fælist ekki að eitthvað væri athugavert við þessi við- skipti. Stjórnendur Símans lýsa furðu sinni á ummælum stjórnarformanns Norðurljósa Í yfirlýsingu frá stjórnendum Símans í gær segir það vekja fullkomna furðu að Skarphéðinn Berg segi í fjöl- miðlum að ekkert verði af samstarfi Norðurljósa og Sím- ans um uppbyggingu á stafrænu sjónvarpsdreifikerfi vegna þessara kaupa á Skjá einum. Norðurljós hafi slitið samstarfinu nokkrum mánuðum áður en af kaupunum varð. Ennfremur hafi Norðurljós nýlega kynnt áform sínum um stafrænt sjónvarp um eigið dreifikerfi. Skarphéðinn Berg segir rétt að viðræðunum hafi verið slitið snemma í sumar og nefnir tæknilegar ástæður fyr- ir því. Norðurljós fari að sjálfsögðu ekki í samstarf við Símann um þróun og uppbyggingu á stafrænni tækni í gegnum símalínur þegar fyrirtækið er stærsti hluthafinn í Skjá einum, sem sé keppinautur þeirra. Ef hann hefði sleppt því hefði samstarf vafalaust náðst því þessi tækni muni koma. Þeir ráði engu um það og sjónvarp muni í framtíðinni fara inn á símakerfið. „Ég held að þessi ákvörðun sé ekki síður pólitísk en viðskiptaleg,“ segir Skarphéðinn Berg og sér ekki við- skiptahugmyndina á bak við þessi kaup. Síminn útiloki sig um leið frá samstarfi við önnur fjölmiðlafyrirtæki. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, segir á heimasíðu sinni það einmitt hafa verið höf- uðrökin fyrir því að einkavæða Landssímann að ríkisfyr- irtækið geti illilega starfað á samkeppnismarkaði, þar sem það eigi í samkeppni við fyrirtæki sem einstaklingar hafi byggt upp með sínum fjármunum. Segir hann kostulegt að hlýða á þá aðila sem „væli“ núna en gengu harðast fram gegn fjölmiðlafrumvörpum ríkisstjórnarinnar. Það hefði komið í veg fyrir þessi við- skipti. Einar Kristinn segir að ef það er á annað borð arð- vænlegt að fjárfesta í Skjá einum verði það ekki til þess að minna sé hægt að leggja til annarra verka, svo sem uppbyggingu dreifikerfis. Einar K. Guðfinnsson Guðmundur Sigurðsson Skarphéðinn Berg Steinarsson Skarphéðinn Berg Steinarsson segir kaup Símans pólitísk Norðurljós slitu samstarfi við Símann fyrr í sumar MEÐLIMIR Hugarafls, Auður Ax- elsdóttir og Bergþór Grétar Böðv- arsson, áttu fund með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á Bessa- stöðum á dögunum. Auður og Berg- þór kynntu fyrir forsetanum hug- myndir og framtíðarsýn Hugarafls en eitt af meginmarkmiðum félags- ins er að efla þjónustu við geðfatlaða og stuðla að því að fólk sem þarf að nota þjónustuna geti haft áhrif á hana með ýmsum hætti. Hugarafl var stofnað fyrir tæpu ári af fólki sem hefur átt við geðræn vandamál að stríða en er nú á batavegi. Heimsóttu forseta Íslands Morgunblaðið/Sverrir JÓHANN Hjartarson bar sig- ur úr býtum á minningarskák- móti um Guðmund Arnlaugs- son, fyrrverandi rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, í gær. Þetta er í áttunda sinn sem mótið er haldið og líkt og áður tóku flestir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar þátt. Tefldar voru sjö umferðir og hver skák var 2x5 mínútur. Helgi Ólafsson varð annar og Jón Viktor Gunnarsson þriðji. Jóhann vann minningar- skákmótið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.