Morgunblaðið - 06.09.2004, Side 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 7
SÍÐASTA haft Fáskrúðsfjarðar-
ganga var sprengt á laugardag. Að-
eins 18 cm mismunur reyndist á
mætingu ganganna og voru Ístaks-
menn að vonum ánægðir með áfang-
ann, enda tveimur mánuðum á und-
an áætlun með verkið.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra kveikti í tundrinu að síð-
ustu færunni, sem var tæplega 4
metra þykk og 280 rúmmetrar. 700
kg af sprengiefni í 110 hvell-
hettustykkjum voru notuð til að
brjótast í gegn.
Næsta skref er styrking
á jarðgöngunum
Sturlu til aðstoðar voru sprengju-
mennirnir Helgi Mar Friðriksson og
Björgvin Guðmundsson. Aðeins eitt
alvarlegt slys hefur orðið í göng-
unum frá byrjun, en það var þegar
Björgvin fékk bjarg í bakið í nóv-
ember á síðasta ári og slasaðist mik-
ið. Hann er enn að jafna sig en þó
byrjaður að vinna. „Þetta er hátíð-
isdagur hjá okkur Ístaksmönnum,“
sagði Ásgeir Loftsson, staðarstjóri
og verkfræðingur, eftir að göngin
opnuðust. „Við höfum unnið við
þetta í fimmtán mánuði og mál að
komast í gegn. Næstu skref eru end-
anleg styrking á göngunum, vatns-
lagnir og vegagerð, auk rafmagns.
Setja þarf viftur í göngin og lýsingu
og malbika veginn.“
Friðmælst við fjallið
„Við höfum djöflast á þessu fjalli í
15 mánuði og sprengt 1.300 sinnum“
sagði Loftur Ásgeirsson, forstjóri
Ístaks, við um 150 veislugesti í miðju
fjalli eftir að göngin höfðu náð sam-
an. „Við höfum sprengt fjórum sinn-
um á sólarhring, svo lítill friður hef-
ur verið í fjallinu. Ef svo skyldi vera
að einhverjir íbúar séu hér fyrir,
hafa þeir ekki átt svefnsamt síðustu
mánuðina. Ég vil því friðmælast við
bæði fjallið og íbúa þess og skála við
þá.“ Að svo búnu var koníaki hellt á
stórgrýtið úr síðustu færunni og
gestum í framhaldi af því boðið til
veislu.
Steindór Óli Ólason, yfirverkstjóri
við göngin, sagði síðustu færuna
hafa verið sprengda í fjallinu 2,8 km
Reyðarfjarðarmegin og að 1 km af
bergi væri ofan við hana.
Hann segir 1,5% halla á veginum
gegnum göngin. „30 metra hæð-
armunur er á veginum, hann er
hærri á Fáskrúðsfirði. U.þ.b. 1 km
frá Fáskrúðsfirði er svokölluð há-
bunga og byrjar að halla niður þar.
Þetta er upp á að fá vatnið sjálfrenn-
andi út.“
Sigur jarðgangamannsins
Steindór segir að steypusprautun
á nýsprengt berg hafi gert gæfu-
muninn við vinnuna, því mikil
spenna í fjallinu og lélegt berg hafi
valdið vandræðum á köflum. Spraut-
að hafi verið allt að 300 mm þykkt á
bergveggina, en í fyrstu umferð séu
menn vanalega með um 40 mm
þykkt. „Að komast í gegnum fjallið
er tvímælalaust sigur jarðganga-
mannsins,“ sagði Steindór og kvað
mannskapinn ánægðan með gott
verk.
Fáskrúðsfjarðargöng eru 5,7 km
að lengd og 5,9 km með vegskálum.
Samgönguráðherra sprengdi síðasta haft Fáskrúðsfjarðarganga tveimur mánuðum á undan áætlun
Hátíðisdagur hjá
Ístaksmönnum
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Helgi Mar Friðriksson og Björgvin Guðmundsson sprengjumenn leiðbeina
Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra um hvernig eigi að bera sig að við
að skjóta síðasta haftið úr veggöngunum. Hann tendraði 700 kg af sprengi-
efni og hafði 4 mín. til að komast út úr göngunum áður en haftið sprakk.
Reyðarfirði. Morgunblaðið.