Morgunblaðið - 06.09.2004, Blaðsíða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 15
!
"
#
!
! "
! $
!"
"
!
!
!
%
&
! !
$
"
#'
(
) *+
,
#%
(
-
( !
"
$
'
"
'
&
(
!
( '
"
.
/
0"
"
-
! !
1
"
2
3 (
4
5
-
3
!
6 #
$
6
!$
5
" !
1 # .
/
$
$$
6
- #"
&!
7
8
!
92 : $
;<
= $
;<
! !-
BÁTAR voru á víð og dreif á þessari strönd við
brú í Riviera Beach í Flórída þegar fellibylurinn
Frances gekk yfir austurströnd ríkisins í gær.
Byggingar skemmdust, tré rifnuðu upp með rót-
um og heimili fjögurra milljóna manna urðu raf-
magnslaus. Yfir 2,6 milljónum manna var sagt að
flýja heimili sín áður en fárviðrið skall á. Heldur
dró úr óveðrinu í gær en fólk var þó hvatt til þess
að hætta sér ekki á hamfarasvæðið.
AP
Fjórar milljónir manna án rafmagns í Flórída
YFIRMAÐUR íraska þjóðvarðliðsins
í borginni Tikrit neitaði í gær fregn-
um um að liðsmenn hans hefðu hand-
tekið nánasta samstarfsmann Sadd-
ams Husseins, Izzat Ibrahim al-Duri,
sem er efstur á lista yfir þá fyrrver-
andi ráðamenn Íraks sem Banda-
ríkjaher leggur nú mesta áherslu á að
handtaka. Talsmenn Bandaríkjahers
sögðust ekki vita til þess að al-Duri
hefði verið handtekinn.
Háttsettur embættismaður í
bráðabirgðastjórninni í Bagdad,
Ibrahim Janabi, sem fer með upplýs-
ingamál, sagði hins vegar að al-Duri
hefði verið tekinn til fanga í heilsu-
gæslustöð í Makhoul, nálægt Tikrit.
„Við erum vissir um að þetta er
Izzat Ibrahim,“ sagði Janabi og bætti
við að verið væri að rannsaka lífsýni
úr fanganum til að staðfesta þetta.
„Um 60% af DNA-rannsóknunum er
lokið.“
Qassim Dawoud, utanríkisráðherra
Íraks, staðfesti handtöku al-Duris.
Hann skýrði ennfremur frá því að
réttarhöld yfir Saddam Hussein og
öðrum fyrrverandi ráðamönnum
landsins ættu að „hefjast á næstu vik-
um, fyrir árslok og kosningarnar í
janúar“.
„Hægri
hönd“ Sadd-
ams í haldi?
Tikrit. AFP, AP.