Morgunblaðið - 06.09.2004, Page 36
36 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8, og 10.20.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.20
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 Ísl tal.
ÁLFABAKKI
kl. 8 B.i 14 ára.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10. B.i 14 ára.
Þeir hefðu átt að láta hann í
friði.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP
KL. 3.30, 5.40, 8 OG 10.20.
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 5.40.Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 6.
S.V. Mbl.
HP. Kvikmyndir.com
S.V. Mbl.
HP. Kvikmyndir.com
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. b.i. 12 ára
Kemur steiktasta grínmynd ársins
SÝNIÐ ALDREI SLÆMA LITINN
ÞVÍ ÞAÐ VEKUR ATHYGLI ÞEIRRA.
I I I I
Í I I .
G.E.
Ísland í bítið/Stöð 2
Kvikmyndir.com
S.K., Skonrokk
Ó.H.T Rás 3.
Ó.H.T Rás 3.
STÓRSKEMMTILEG
Ó.H.T Rás 2
3 dagar eftir
STÓRSKEMMTILEG
Ó.H.T Rás 2Frá höfundum Kids
sýnd kl. 6.sýnd kl. 8.sýnd kl. 10.sýnd kl. 8.sýnd kl. 6.
sýnd kl. 8 sýnd kl. 8 og 10sýnd kl. 10.
Sigurjón Sighvatsson fram-leiðir dramatísku spennu-myndina A Little Trip toHeaven ásamt leikstjór-
anum Baltasar Kormáki, en hann er
landsþekktur og hefur lengi starfað
sem kvikmyndaframleiðandi í Holly-
wood. Eins og greint hefur verið frá
fara þekktar Hollywood-stjörnur
með helstu hlutverk, Forest Whit-
aker, Julia Stiles, Jeremy Renner og
Peter Coyote, auk þess sem fjöl-
margir virtir breskir leikarar koma
við sögu.
Morgunblaðið ræddi við Sigurjón
á tökustað í Austur-Landeyjum en
þar fóru fram útitökur og búið var að
breyta landnámsbænum Steinmóð-
arbæ í hús á sléttum Ameríku.
„Þetta er alþjóðlegt verkefni en
fyrst og fremst er myndin seld sem
amerísk mynd. Það er ekkert að því
að selja þýskar, íslenskar eða bresk-
ar myndir, en amerískar myndir
hafa mun meiri markaðshlutdeild.
Það sem er fyrst og fremst sérstakt
við þessa mynd er að hún er seld og
unnin sem amerísk mynd,“ segir
hann.
„Upphaflega átti að taka myndina
í Bandaríkjunum. Eftir því sem á
leið þróunarferlið sáum við að það
var möguleiki á að taka myndina hér
og láta hana samt sem áður gerast í
Bandaríkjunum,“ segir hann.
„Þetta er ein af fyrstu myndunum
þar sem Ísland er notað ekki af því
að það er Ísland,“ segir hann og
bætir við að það sé þægilegt að vinna
hérna, ekki síst fyrir Baltasar. Töku-
dagarnir, sem alls eru í kringum 40,
verða að langmestum hluta á Íslandi
þó það verði unnið í nokkra daga í
Minnesota. Aðalleikararnir verða
hérlendis í meira en átta vikur þó
Peter Coyote dvelji eitthvað skem-
ur.
Alþjóðlegir fjárfestar
Fjárfestar koma víðsvegar að,
bæði frá Bandaríkjunum og Evrópu
og eru þá meðtalin Norðurlönd og
Ísland, segir Sigurjón. Ágætlega
gekk að fá fjárfesta til liðs við mynd-
ina. „Það tók svolítinn tíma fyrir fólk
að kveikja á því að þetta væri ekki
íslensk mynd því Baltasar er ís-
lenskur leikstjóri,“ segir hann. „Það
hjálpar til að hafa leikara eins og
Forest sem er vel þekkur en hann er
virtur hjá leikurum, sem skiptir máli
við að fá aðra leikara að myndinni,“
segir hann en Forest og Sigurjón
hafa þekkst í 20 ár. Hann er ánægð-
ur með að gera bandaríska mynd á
Íslandi. „Núna erum við komin með
nóg af færu fólki, sem gæti þess-
vegna unnið hvar sem er í heiminum,
til að gera mynd í alþjóðlegum
gæðaklassa,“ segir hann.
„Það eru ekki allir leikstjórar sem
geta unnið á öðru tungumáli. Þeir
eru markaðir af sínum íslenska
veruleika. Baltasar er kannski fyrst-
ur af nýrri kynslóð af leikstjórum
sem geta unnið á alþjóðlegum vett-
vangi,“ segir hann en bætir við að
Hollywood sé smám saman að verða
alþjóðlegri.
Innviðir að styrkjast
Hann segir innviði kvikmynda-
gerðar á Íslandi að styrkjast. „Aug-
lýsingarnar hafa hjálpað mikið í því
Kvikmyndir | Sigurjón Sighvatsson framleiðir myndina A Little Trip to Heaven
Tilraun í kvikmyndagerð
Morgunblaðið/Þorkell
Stund milli stríða. Um sextíu manns vinna á settinu við A Little Trip to Heaven en Sigurjón vill fleiri verkefni af þessu tagi inn í landið.
Kvikmyndin A Little Trip to Heaven gerist í Bandaríkjunum en er tekin að mestu leyti
upp á Íslandi. Inga Rún Sigurðardóttir heimsótti Sigurjón Sighvatsson framleiðanda á
tökustað í Austur-Landeyjum og fræddist um yfirstandandi og verðandi stórverkefni.
ÞRUMUFUGLARNIR eru byggð-
ir á samnefndum, breskum sjón-
varpsþáttum frá sjöunda áratugn-
um sem nutu talsverðra vinsælda,
m.a. hér á landi. Þeir voru afar ein-
faldir í sniðum og notast m.a. við
leikbrúður en nú er öldin önnur og
hafa kvikmyndagerðarmenirnir til
umráða nýjustu tölvutækni, líkön
og leikara af holdi og blóði. Þrumu-
fuglar eru alþjóðleg björgunarsveit
undir yfirumsjón auðmannsins og
fyrrum geimfarans Tom Tracy
(Paxton), og sona hans. Höf-
uðstöðvarnar eru á eyjunni Tracy
Island í Suðurhöfum, vel búnar há-
tæknibúnaði, m.a. Þrumufuglunum,
sem eru mönnuð flugskeyti, jafnan
reiðubúin til aðstoðar ef eitthvað
fer úrskeiðis á móður jörð.
Að þessu sinni gerir þrjóturinn
Hood (Kingsley), innrás á eyjuna,
tilgangurinn að gera upp gamlar
sakir við höfuðpaurinn Tom og
ræna í leiðinni Þrumufuglunum til
að fremja rán í stæstu bönkum
heims. Þá kemur yngsti sonurinn,
Alan (Corbet), til sögunnar ásamt
tveim vinum sínum rétt af barns-
aldri og bjarga þau heiðri Tracy-
ættarinnar.
Myndin minnir talsvert á bálkinn
um Njósnakrakkana (Spy Kids), en
fölnar í samanburðinum, hann er
miklum mun vandaðri að allri gerð
og eflaust dýrari en fyrst og fremst
skemmtilegri. Hann höfðar til fjöl-
skyldunnar en vandséð er að
Þrumufuglar nái til annarra en
yngstu barnanna og þeirra sem
gera ekki of miklar kröfur um leik,
sögu og útlit.
Skrýtin mynd, hún virðist gerð
af metnaði og trúnaði við gömlu
teikni- og leikbrúðutæknina og út-
koman er greinilega hábreskar
hugmyndir um hátækni fjöl-
skyldumyndir og slíkur samruni
gengur ekki upp, ekki að þessu
sinni a.m.k.
Einkum er gamansemin hallær-
isleg og leikmunahönnunin er ekki
í samræmi við það þróaða brellufár
sem vandfýsnir bíógestir eiga að
venjast árið 2004. Leikstjórnin er
marflöt eins og leikurinn og
Kingsley í slæmum málum. Hann
ætti þó varla að skaðast því
Þrumufuglarnir koma ekki til með
að sitja lengi í hugum bíógesta.
Þrumufugl-
ar til reiðu
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Laugarásbíó
Leikstjóri: Michael Stroker. Aðalleik-
endur: Bill Paxton, Ben Kingsley, Brady
Corbet, Vanessa Anne Hudgens, Soren
Fulto. 90 mínútur. Bretland/Bandaríkin.
2004.
Þrumufuglar
(Thunderbirds) Sæbjörn Valdimarsson