Morgunblaðið - 06.09.2004, Síða 40

Morgunblaðið - 06.09.2004, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Áskriftarsími 881 2060 Í FORMI LIFANDI VÍSINDI Áskriftarsími 881 4060 DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra reiknar með að stýra sín- um fyrsta ríkisstjórnarfundi á morgun eftir veikindin. Davíð sagðist í samtali við fréttamenn á laugardaginn vera að feta sig inná starfsvett- vanginn á nýjan leik og hafi fylgst með þjóðlífinu í gegnum fjölmiðla. Hann sé ekki ennþá farinn að skipta sér af málum. „Ég setti mér þá reglu þegar ég fór í hvíldina, að ég bannaði mínum ráðherrum að hringja í mig. Ég sagði þá að þótt ég sæti heima og horfði á sjónvarpið og væri pirraður út í þá myndi ég ekki hringja.“ Í því hafi hvíld hans falist. Davíð Oddsson til starfa FYRIRTÆKI sækja mjög í að aug- lýsa vörur og þjónustu í framhalds- skólum og greiða þau gjarnan nem- endafélögunum fyrir markaðsaðgang að nemendum. Eru styrkir og auglýs- ingatekjur orðin mikilvæg tekjulind nemendafélaganna en sum fyrirtæki borga umtalsverðar fjárhæðir fyrir að fá að vera eina fyrirtækið í sínum geira sem auglýsir í skólanum. Flest stóru nemendafélögin gera t.d. fasta samninga við banka-, pítsu- og gosdrykkjafyrirtæki og eru slíkir samningar kallaðir hin klassíska þrenna að sögn eins nemanda. Er fyr- irtækið þá orðið eins konar aðal- styrktaraðili félagsins en félögin skuldbinda sig til að auglýsa ekki vörur frá samkeppnisaðilunum. Eftirsótt að auglýsa í skólum  Blómleg/8 FORSVARSMENN Norðurljósa áttu í viðræðum við eigendur eign- arhaldsfélagsins Fjörnis um kaup á sýningarrétti á enska fótboltanum hér á landi þegar þeir fréttu á föstu- daginn að Síminn hefði keypt félagið. Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa, segir það hafa komið til greina í þessum viðræðum að kaupa einnig rúmlega fjórðungshlut Fjörnis í Skjá einum, en viðræðurnar hefðu ekki verið komnar á það stig þegar tíðindin bárust. Forsvarsmönnum Fjörnis hefði verið umhugað um fjárhags- stöðu Skjás eins og selt Símanum eignarhlutinn um leið og sýningar- réttinn á enska boltanum. Skarphéðinn Berg segir af og frá að forsvarsmenn Norðurljósa hafi reynt að koma í veg fyrir þessi við- skipti með því að tala við stjórnendur Landsbankans. Guðmundur Sigurðsson, forstöðu- maður samkeppnissviðs Samkeppn- isstofnunar, gerir ráð fyrir að við- skiptin séu af þeim toga að þau komi til skoðunar hjá Samkeppnisstofnun. Í því felist ekki að eitthvað sé at- hugavert við samninginn. Stjórnend- ur Símans sendu frá sér yfirlýsingu í gær og furðuðu sig á þeim ummæl- um Skarphéðins Bergs að ekkert verði af samstarfi við Norðurljós um uppbyggingu á stafrænu sjónvarps- dreifikerfi vegna kaupa á Skjá ein- um. Norðurljós hafi slitið samstarf- inu fyrir nokkrum mánuðum. Skarphéðinn segir það rétt og fyrir því hafi verið tæknilegar ástæður. Hins vegar verði ekkert samstarf í framtíðinni ef Síminn eigi í keppi- nauti þeirra. Norðurljós vildu kaupa Fjörni ehf. Samkeppnisstofnun skoðar kaup Símans á Fjörni  Norðurljós/4 KANADÍSKI leikarinn Mike Myers mun fara með titilhlut- verkið í bandarískri endurgerð á norsku myndinni Elling sem verð- ur framleidd af Sigurjóni Sig- hvatssyni. Mike Myers hefur hlotið heims- frægð fyrir leik sinn í Austin Powers-myndunum og Wayne’s World-myndunum. Leikstjóri Ell- ing verður Jay Roach./36 Mike Myers verður Elling Morgunblaðið/Halldór Kolbeins ÍSLENSK kona, Margrét Hjaltested, lék með hljómsveit Lucianos Pavarotti á tónleikum í Connecticut í Bandaríkjunum í gær. Pavarotti er nú á tónleikaferðalagi um Bandaríkin og Margrét mun spila á að minnsta kosti fernum tónleikum. Margrét hefur verið búsett í New York í fimm- tán ár og er sjálfstætt starfandi víóluleikari. Morgunblaðið náði tali af henni fyrir tónleikana og sagði hún þá leggjast vel í sig. Að hennar sögn er hljómsveitin að mestu skip- uð fólki sem býr í New York en Pavarotti ferðast ekki með sína eigin hljómsveit með sér heldur nýtir krafta tónlistarfólks á hverjum stað fyrir sig. Margrét segir að nafn hennar sé á skrá hjá ýmsum skrifstofum sem taka að sér verkefni eins og þetta. „Þetta er oft sami hópurinn sem er kall- aður saman og ég kannast við alla sem spila í hljómsveitinni. Í raun virkar þetta þannig að ég mæti á staðinn, spila og fer heim,“ segir Margrét og bætir við að hljómsveitin æfi lítið saman fyrir tónleikana. „Við mætum bara daginn áður. Þetta er 60–70 manna hljómsveit en við erum eiginlega bara maurar á bak við fræga fólkið. Það snýst allt um stjörnurnar.“ Margrét segir að það sé alltaf heil hirð í kringum Pavarotti og að hann eigi stór- an hóp dyggra aðdáenda sem fagna ákaft komu hans til Bandaríkjanna. Stjórnandi hljómsveitar- innar á þessum tónleikum er Leone Magiera og auk þess syngur Carmela Remigio, sópransöng- kona, með Pavarotti. „Þau syngja allar gullnu aríurnar eins og La Bohème, Tosca og La Trav- iata auk þess sem það verða teknir ítalskir slag- arar eins og O sole mio.“ Einn af hápunktum tónleikaferðalags Pav- arotti að þessu sinni eru tónleikar í Washington hinn 16. október nk. þar sem hann mun syngja á hátíð fyrir samtök Ítala í Ameríku. Þar verða margar stórstjörnur, t.d. Sophia Loren, Robert de Niro, Al Pacino, Giorgio Armani, Nicolas Cage og Andrea Bocelli. Það er þó enn ekki víst hvort Margrét leikur á þeim tónleikum enda segir hún skipulagið sjaldnast ná langt fram í tímann. Hefur spilað með Paul McCartney Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Margrét leikur undir hjá frægu fólki. Hún hefur m.a. spilað með Dudley Moore og Paul McCartney og komið fram í sjónvarpsþáttum hjá Jay Leno og David Letter- man. „Þetta er náttúrlega bara vinna en það er að sjálfsögðu gaman að leika undir hjá merkilegu tónlistarfólki, svo ég tali nú ekki um hjá Pavarotti sem er eiginlega lifandi goðsögn.“ Leikur undir hjá Pavarotti Morgunblaðið/Ásdís Margrét Hjaltested hefur búið í New York í 15 ár og er sjálfstætt starfandi víóluleikari. KAJAKRÓÐUR nýtur sífellt meiri vinsælda hér á landi og alls hafa 68 manns af landinu öllu, karlar og konur, tekið þátt í mótum sum- arsins. Nokkurs konar uppskeru- hátíð kajakmanna var um helgina en þá fóru lokamót sumarsins fram. Þátttökumet var slegið um helgina í Hvammsvíkurmaraþoni, sem fram fór í sjötta sinn, en þar mættu 23 til leiks. Ísfirðingar urðu sigursælir á mótinu en Sveinbjörn Kristjánsson og Fanney Pálsdóttir frá Siglingafélaginu Sæfara á Ísa- firði stóðu uppi sem sigurvegarar hvort í sínum flokki og slógu bæði brautarmet. Tekið var upp á þeirri nýbreytni að þessu sinni að keppa í liðum og fór lið frá Sæfara einnig með sigur af hólmi í þeirri keppni. Á sama tíma og róið var mara- þon í Hvammsvíkinni í Hvalfirði var í fyrsta skipti háð Þjórsár- ródeó. Talað er um tvenns konar kajakræðara, annars vegar sjó- bátamenn eins og þá sem kepptu í maraþoninu og hins vegar straum- vatnsmenn. Þeir síðarnefndu öttu kappi í Þjórsánni en að sögn Þor- steins Guðmundssonar formanns Kayakklúbbsins tókst það þokka- lega þótt vatnsmagn í ánni hafi verið í það mesta. Kristján Sveins- son hjá Kayakklúbbnum fór með sigur af hólmi. Á laugardagskvöldinu voru svo Íslandsmeistarar krýndir en þar fóru þau Sveinbjörn og Fanney fremst í flokki sjóbátamanna en Jón Heiðar Andrésson og Helga Björt Möller í Kayakklúbbnum voru sigursæl í flokki straum- vatnsmanna. Kraftur í kajakmönnum Morgunblaðið/Golli AÐ MATI fasteignasala og sérfræð- inga á fjármálamarkaði, sem rætt er við í Fasteignablaði Morgunblaðsins í dag, mun Íbúðalánasjóður verða áfram umsvifamestur í veitingu nýrra lána til íbúðakaupa, ef láns- hlutfallið verður hækkað í 90%, en ný íbúðalán banka og sparisjóða munu að mestu fara til endurfjár- mögnunar eldri og óhagstæðari lána. Jafet Ólafsson hjá Verðbréfastof- unni telur að Íbúðalánasjóður muni á einhverju tímabili missa um 20–25% af sínum hlut á íbúðalánamarkaði. Jón Guðmundsson hjá Fasteigna- markaðnum segir að næsta skrefið hljóti að vera afnám verðtryggingar á lánaskuldbindingum. Ríkið mest í nýjum íbúðalánum  Fasteignablað/30–32C SÉST hefur til ísjaka á Skjálfanda um helgina og norður af Tjörnesi. Að sögn lögreglunnar á Húsavík hefur sést til jakanna frá landi, sem mun vera heldur sjaldgæft á þessum slóð- um á haustin. Voru sjófarendur beðnir að gæta varúðar. Ísjakar á Skjálfanda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.