Morgunblaðið - 10.09.2004, Síða 16
ERLENT
16 FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBAND, sem sýndi gíslana í
Beslan í Norður-Ossetíu og mann-
ræningjarnir munu sjálfir hafa
gert, vakti mikinn óhug. Á því sást
m.a. Georgí Farníev, 10 ára gamall
drengur, sitja rétt hjá sprengju.
Eins og aðrir gíslar er hann með
hendur fyrir aftan höfuð og andlitið
er lamað af skelfingu. Hann komst
lífs af fyrir ótrúlega heppni en einn-
ig vegna þess að hann sýndi dæma-
lausan sjálfsaga og var svo hug-
rakkur að hann dró sjálfur
sprengjuflís úr öðrum hand-
leggnum.
Georgí sagði í gær frá reynslu
sinni. Hann hafði stillt sér upp í röð
í skólanum með bekkjarsystkinum
sínum þegar hermdarverkamenn-
irnir komu, þeir skutu upp í loftið
og ráku fullorðna fólkið og nemend-
urna inn í leikfimisalinn. Georgí var
í skólanum ásamt frænku sinni
Írínu og sex ára gömlum frænda,
Elbrús, sem lifði af en særðist
nokkuð.
„Þeir sögðu okkar að „sitja þétt
saman og ef þið æpið drepum við 20
börn,““ sagði Georgí. „Einn hryðju-
verkamaðurinn sagði að 20 börn
hefðu verið drepin og þess vegna
hefðu þeir komið til að drepa okk-
ur,“ sagði Georgí.
Ekki var mikið til af vatni og að-
eins örfáum var leyft að fara á sal-
ernið meðan á atburðunum stóð.
„Það leið yfir börn, konur og jafn-
vel karlmenn. Þeir gáfu okkur ekki
vatn,“ sagði Georgí. Hann var
greinilega enn þá andlega dofinn
eftir þessa eldraun og frásögnin var
stundum samhengislaus, hann
hvarflaði fram og aftur í tíma.
Sumir af hermdarverkamönn-
unum voru skeggjaðir en einn var
nauðrakaður og Georgí segir að
konurnar, sem munu hafa verið
tvær, hafi borið á sér eitthvað sem
minnti á peningapyngjur „en það
voru engir peningar í þeim, bara
sprengiefni“. Árásarmennirnir
komu víða fyrir sprengjum í leik-
fimisalnum, þar á meðal uppi í
körfuboltahring.
Georgí segir að á öðrum degi um-
sátursins hafi gíslatökumennirnir
drepið nokkra fullorðna gísla og
eina stúlku. Einn gíslinn var skot-
inn frammi fyrir hinu fólkinu í saln-
um en farið var með hin fórn-
arlömbin á annan stað og þau myrt
þar. Vel sést á myndbandinu að
Georgí var látinn sitja rétt við eina
sprengjuna og segja gíslar sem
komust lífs af að hann hefði án efa
dáið ef hann hefði enn setið þar
þegar gíslatakan endaði í ringulreið
og blóðbaði á föstudeginum. En
honum var sagt að færa sig og það
bjargaði vafalaust lífi hans.
Faldi sig í skáp
Þegar skothríðin byrjaði á föstu-
dag slapp hann óskaddaður. Hann
flýtti sér út úr salnum inn í næsta
sal, síðan inn í matstofu. Þar fékk
hann sprengjubrot í hægra hné og
vinstri upphandlegg. Hann flýði inn
í eldhús og faldi sig í skáp.
Síðan dró Georgí sprengjuflísina
út úr handleggnum og hreinsaði
sárið með vatni en tókst ekki að ná
brotinu sem lent hafði í hnénu.
Hann sagðist hafa fundið síma og
reynt að biðja um hjálp en síminn
var brotinn. Áður höfðu hermd-
arverkamennirnir eyðilagt farsíma
gíslanna með byssuskeftum sínum.
Georgí var áfram í fylgsni sínu og
þegar rússneskur hermaður kom
inn í eldhúsið spurði maðurinn:
„Eru fleiri Tétsenar hér?“ Georgí
svaraði: „Nei.“ Einhver tók í hönd-
ina á drengnum, hann var hand-
langaður út um glugga og inn í bíl
björgunarmanna. Gert verður að
sárum Georgís á sjúkrahúsi í höf-
uðborginni Moskvu.
„Ef þið æpið drepum við 20 börn“
Tíu ára drengur í Beslan dró sjálfur
sprengjubrot úr handleggnum
AP
Georgí Farníev, tíu ára gamall drengur, með dagblaðsmynd sem sýnir
hann og fleiri gísla í leikfimisalnum í Beslan þar sem þeim var haldið.
Vladikavkaz. AP.
’ „Eru fleiri Tétsenarhér?“ Georgí svaraði:
„Nei.“‘
SAMKVÆMT minnisblöðum sem
nýlega hafa komið í ljós var George
W. Bush Bandaríkjaforseta vikið úr
flugsveit þjóðvarðliðsins í Texas á
tímum Víetnamstríðsins vegna þess
að hann stóðst ekki þær kröfur sem
gerðar voru, og lét undir höfuð leggj-
ast að fara í árlega læknisskoðun
þvert á fyrirmæli í þá veru.
Bush var vikið úr flugsveitinni á
sama tíma og hann var að reyna að fá
sig fluttan til Alabama þar sem hann
þyrfti ekki að fljúga og gæti því
starfað við kosningabaráttu þar. Á
minnisblaði sem skrifað var ári síðar
var talað um að embættismaður í
hernum væri „að reyna að fegra“ ár-
legt mat á frammistöðu Bush.
„Í dag gaf ég fyrirmæli um að laut-
inant Bush yrði vikið úr flugmanns-
stöðu vegna þess að frammistaða
hans hefur ekki verið í samræmi við
kröfur bandaríska flughersins og
flugsveitar þjóðvarðliðs Texas, og
[hann] hefur ekki mætt í árlega
læknisskoðun ... svo sem honum
höfðu verið gefin fyrirmæli um,“ seg-
ir á minnisblaði sem Jerry Killian
undirofursti skrifaði 1. ágúst 1972.
Killian er nú látinn.
Á sama blaði kemur fram, að Bush
hafi reynt að fá sig fluttan frá Texas
og í stöðu án flugskyldu, og er lagt til
á blaðinu að í flugmannsstöðu hans í
Texas verði settur „vanari flugmað-
ur úr hópi þeirra hæfu Víetnamflug-
manna sem hafa verið fluttir til“.
Minnisblaðið þykir varpa frekara
ljósi á útskýringar sem aðstoðar-
menn forsetans hafa gefið á því þeg-
ar honum var vikið frá flugmanns-
skyldum fyrir að mæta ekki í árlega
læknisskoðun. Talsmenn Hvíta húss-
ins kváðust í febrúar sl. hafa birt öll
gögn um herþjónustu forsetans, en á
einum af minnisblöðum Killians er
tekið fram að það skuli fara „í gagna-
safn“, en annað blað, þar sem Bush
er fyrirskipað að mæta í læknisskoð-
un, er sagt vera „fyrir George W.
Bush, 1. lautinant“.
„Ég get ekki útskýrt hvers vegna
þetta er ekki í skrám um [forsetann]
en finnst í einkaskjölum Jerrys Kill-
ians,“ sagði Dan Bartlett, samskipta-
sviðsstjóri Hvíta hússins, í viðtali í
fréttaþættinum 60 mínútur á sjón-
varpsstöðinni CBS, sem fyrst kom
höndum yfir minnisblöðin.
Stuðningsmenn Johns Kerrys,
frambjóðanda Demókrataflokksins í
forsetakosningum vestra, hafa blásið
til auglýsingaherferðar gegn Bush
þar sem lögð er áhersla á að forset-
inn hafi nýtt sér sambönd ættmenna
sinna til að komast hjá herþjónustu í
Víetnam auk þess sem klifað verður
á framgöngu hans í Þjóðvarðliðinu í
Texas. Hópur þessi er frá Texas,
heimaríki forsetans, og nefnir sig
„Texasbúar í þágu sannleikans“ eða
„Texans for Truth“.
Bush stóðst ekki kröfur
Skjöl segja að forsetanum hafi verið
vikið úr flugsveit þjóðvarðliða í Texas
Washington. AP.
ÍBURÐARMESTA brúðkaups-
veisla í Asíu í rúman áratug var
haldin í Brúnei í gær þegar krón-
prins soldánsdæmisins kvæntist
sautján ára stúlku af alþýðuætt-
um.
Voru þau gefin saman í hásæt-
issal, sem er á stærð við fótbolta-
völl, í 1.700 herbergja höll sold-
ánsins í Brúnei. Salurinn var
skreyttur gulli og gulum einkenn-
islit soldánsdæmisins.
Á meðal veislugestanna voru
forsetar og forsætisráðherrar
grannríkja í Suðaustur-Asíu og
kóngafólk frá Evrópu- og As-
íuríkjum. Var þetta íburðarmesta
brúðkaup í Asíu frá 1993 þegar
krónprins Japans, Naruhito,
kvæntist Masako Owada.
Brúðguminn, Al-Muhtadee Bill-
ah Bolkiah krónprins, er þrítug-
ur. Brúðurin, Sarah Sallah, sem
er sautján ára og í háskóla, er
dóttir ríkisstarfsmanns í Brúnei
og svissneskrar hjúkrunarkonu.
Foreldrar hennar kynntust í
London þegar þau voru þar við
nám.
Soldáninn í Brúnei, Hassanal
Bolkiah, var álitinn auðugasti
maður heims fyrir tíma tækni-
auðkýfinganna. Brúnei er á eyj-
unni Borneo og hefur auðgast
mjög á olíulindum.
Reuters
Krónprinsinn í Brúnei, Al-Muhtadee Billah, og brúður hans, Sarah Sallah, fara með bæn í brúðkaupinu í gær.
Brúð-
kaupsdýrð
í Brúnei
AÐ MINNSTA kosti níu manns
létu lífið og 182 særðust þegar bíl-
sprengja sprakk fyrir utan sendiráð
Ástralíu í borginni Jakarta í
Indónesíu í gær, tæpum mánuði
fyrir þingkosningar í Ástralíu.
Sprengjutilræðið virtist staðfesta
viðvaranir um að hryðjuverkamenn
kynnu að gera árásir, sem beindust
að Ástralíu, fyrir kosningarnar í
von um að fella stjórn Johns How-
ards forsætisráðherra. Hún var á
meðal mikilvægustu bandamanna
Bandaríkjamanna í innrásinni í
Írak.
Howard lýsti því strax yfir í gær
að hryðjuverkamenn gætu ekki
kúgað Ástrala til hlýðni.
Lögreglan í Jakarta kvaðst telja
að hryðjuverkahreyfingin Jemaah
Islamiyah hefði staðið fyrir ódæð-
inu. Hreyfingin tengist al-Qaeda-
hryðjuverkaneti Osama bin Ladens
og bar ábyrgð á mannskæðum
sprengjutilræðum á eynni Balí í
Indónesíu árið 2002. 202 létu þá líf-
ið, þar af 88 Ástralar.
Níu falla í
sprengju-
tilræði í
Jakarta
Jakarta, Sydney. AFP.
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, skilgreindi í gær
ógnarverkin í Darfur-héraði í Súdan
sem þjóðarmorð.
Hvatti hann Sam-
einuðu þjóðirnar
til að rannsaka
vandlega atburði
í Darfur en slík
rannsókn gæti
orðið fyrsta
skrefið í þá átt að
SÞ settu alþjóð-
legt viðskipta-
bann á Súdan.
Powell sagði að ábyrgð á þjóðar-
morðinu í Darfur bæru stjórnvöld í
Khartoum og vopnaðar sveitir
araba, Janjaweed, sem nytu stuðn-
ings stjórnvalda. Sagði hann að þjóð-
armorðið stæði hugsanlega enn yfir.
Talið er að um 50 þúsund manns
hafi verið drepin í Darfur og 1,4
milljónir manna hrakin frá heimilum
sínum frá því í febrúar 2003.
Þjóðarmorð
í Darfur
Washington. AFP.
Colin Powell
♦♦♦