Morgunblaðið - 10.09.2004, Page 22

Morgunblaðið - 10.09.2004, Page 22
Reykjanesbær | Töluvert hefur borist af málmum og öðru rusli í umhverfisátaki í Reykjanesbæ. Átakið stendur í hálfan mánuð í viðbót og er von á stórvirkum tækjum til að rífa niður stærri mannvirki. Umhverfisátakið felst í því að einstaklingum og fyrirtækjum er gert kleift að losa sig við málma og annað gróft rusl án þess að greiða förgunargjald. Komið hefur verið upp plani í Helguvík þar sem tekið er við ruslinu. Þá taka starfsmenn bæjarins og áhugafólkið sem stendur að átakinu fyrir ákveðin svæði og hreinsar þau. Í ár hefur áherslan verið lögð á að hreinsa svæði við Njarðvíkur- höfn, meðal annars við atvinnu- húsnæði sem kennt er við Sjö- stjörnuna, og svæðið í kringum gömlu fiskvinnsluhúsin í Innri- Njarðvík. Markmiðið er að taka þessi svæði fyrir með sama hætti og umhverfi Vatnsnesvitans í Keflavík á síðasta ári. Hefur hreinsunin gengið vel, að sögn tveggja forsvarsmanna átaksins, þeirra Guðmundar Péturssonar, hjá RV ráðgjöf, og Viðars Más Að- alsteinssonar, framkvæmdastjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar. Viðar Már segir að íbúar í nágrenni þessara svæða hafi hjálpað mikið til við hreins- unina. Áhugi á að nýta vel stórvirk tæki Hringrásar Eftir er að rífa ónýt hús og taka stærstu hlutina. Koma stórvirk tæki á vegum Hringrásar til að vinna það verk og önnur sem til falla. Þeir félagar hafa áhuga á að nýta þessi tæki vel. Nefna þeir að nokkuð sé um ónýta tanka sem séu lýti í umhverfi sínu í Reykjanesbæ og væri gott að fá að fjarlægja þá og ýmis önnur slík mannvirki. Það sé þó háð samstarfi við eigendur og unnið sé að öflun leyfa. Þeir leggja áherslu á að á meðan á þessu átaki stendur gefist fyrir- tækjum kostur á að fá aðstoð við að losa sig við slíka hluti án endur- gjalds og hvetja eigendur þeirra til að nýta sér það. Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar tekur við ábend- ingum og beiðnum um aðstoð. Árangurinn byggist á framlagi áhugafólks Þetta er þriðja árið í röð sem efnt er til umhverfisátaks í Reykja- nesbæ. Að því standa nokkur fyr- irtæki og áhugafólk í bænum. Við- ar Már segir að góður árangur hafi náðst og þakkar það ekki síst að- komu áhugafólksins og almennri þátttöku bæjarbúa. Vonast hann til þess að eftir þetta átak verði búið að losa bæinn við svo mikið af járnarusli og öðru grófu rusli að á næstu árum þurfi ekki annað en taka það sem bætist við. Brotajárnshaugur: Járnarusli og öðrum málmum er komið fyrir á plani sem útbúið hefur verið á af- viknum stað við Helguvík. Hreinsað til við Njarðvíkurhöfn og í Innri-Njarðvík Vilja fjarlægja ónýta tanka SUÐURNES Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Tankar: Talsvert af gömlum olíutönkum og öðrum stórum geymum stend- ur uppi í Reykjanesbæ, engum til gagns en mörgum til ama. Forsvarsmenn umhverfisátaksins vilja fá leyfi til að fjarlægja sem flesta. MINNSTAÐUR 22 FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Egilsstaðir | Þjóðahátíð Austfirð- inga verður haldin á Egilsstöðum á sunnudag. Þar er fagnað þeirri menningarlegu fjölbreytni sem ein- kennir nú Austurland og markmiðið að fólk tileinki sér umburðarlyndi fyrir ólíkum trúarbrögðum, menn- ingu, siðum og venjum. Rauði kross Íslands stendur fyrir hátíðinni. María Ósk Kristmundsdóttir er verkefnisstjóri Þjóðahátíðar. Hún segir hana nú haldna í þriðja sinn á Austurlandi. „Mjög margir sjálf- boðaliðar, sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök leggja hér hönd á plóginn“ segir María. „Um hundrað manns koma að und- irbúningi og annað eins af fólki verð- ur með þjóðakynningar á hátíðinni, þar sem verða tuttugu básar frá fjórtán þjóðlöndum og í þeim er fólk af öllu Austurlandi að kynna þjóðir sínar.“ Kárahnjúkafólk ætlar að mæta „Fólk er yfirleitt kátt og tilbúið til að taka þátt“ segir María og tekur fram að útlendingarnir í Kára- hnjúkavirkjun hafi verið sérstaklega jákvæðir. „Okkur gekk þó í fyrstu illa að ná sambandi þangað því fáir tala ensku. Við fórum nýlega í vett- vangsferð uppeftir og fengum frá- bærar móttökur. Hátíðin er einmitt höfð á sunnudegi svo að mannskap- urinn ofan úr Kárahnjúkum geti mætt á sínum vikulega frídegi. Rúm- lega þrjátíu þjóðir eru nú í Kára- hnjúkum og við fengum fólk frá Kína, Filippseyjum, Portúgal, Pak- istan og Rússlandi til að vera með kynningar. Erfitt reyndist að ná sambandi við aðra og kom á óvart að Ítalir treystu sér ekki til að vera með. Þeir voru þó mjög duglegir við að drífa hina áfram.“ Innflytjendur einangraðir Hvað stöðu útlendinga á Austur- landi varðar, segist María Ósk telja að fólkið sé svolítið einangrað, eins og innflytjendur almennt. „Þeir eru settir í ákveðinn flokk af Íslend- ingum. Eins og sérstaklega er með Kárahnjúka og fólkið þar, að ákveð- in afstaða er ríkjandi hjá heima- mönnum. Þeir segjast margir ekki nenna niður í bæ á sunnudögum þegar fólk frá Kárahnjúkum ver þar frídegi sínum. Það vantar svolítið upp á að heimamenn bjóði útlend- ingana velkomna og það er það sem við erum að reyna að gera með Þjó- ðahátíðinni.“ Sú spurning kemur upp af hverju sveitarfélögin á Héraði hafi ekki lagt meira og sýnilegra af mörkum til að bjóða útlendinga úr Kárahnjúkum velkomna á svæðið, t.a.m. með skoð- unarferðum eða sérstökum við- burðum. „Það vantar svolítið,“ segir María Ósk. „Það er deyfð í þessum sam- skiptum. Auðvitað vill þetta fólk koma og blandast okkur. Maður fann fyrir því í vettvangsferðinni í Kárahnjúkum. Það var svo upplífg- andi að koma þangað og sterk við- brögð við samskiptunum. Nú geta gamlir og grónir heima- menn sýnt innflytjendum góðan hug sinn með því að mæta á Þjóðahátíð, vera þar og spjalla við útlendingana á opinskáan og jákvæðan hátt. Þetta er dagurinn til að opna samskiptin upp á gátt.“ Á laugardagskvöld verður hist í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum kl. 20, þar sem minnast á friðar og bræðralags þjóða með kertafleyt- ingu og tónlist. Þjóðahátíð hefst svo í Íþrótta- miðstöðinni á Egilsstöðum kl. 14 á sunnudag og stendur fram til kl. 18. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Fjölmenna á Þjóðahátíð: Erlendir starfsmann Kárahnjúkavirkjunar taka hátíðinni á Egilsstöðum opnum örmum. Verkefnisstjóri: María Ósk Krist- mundsdóttir stýrir Þjóðahátíð. Mörg hundruð manns koma að undirbúningi Þjóðahátíðar Austfirðinga sem fjórtán þjóðir taka þátt í Tækifæri til að opna samskiptin upp á gátt AUSTURLAND Ísafjörður| „Þetta tekur allan minn tíma. Það fara allar frímínútur og eyður í skólanum í þetta,“ segir Gunnar Atli Gunnarsson, fimmtán ára tónleikahaldari á Ísafirði. Hann heldur mikla tónleika á Ísafirði á morgun til styrktar krabbameins- félaginu Sigurvon. Á tónleikunum koma fram átta hljómsveitir og söngvarar, þeirra á meðal stúlknahljómsveitin Nylon, Idol-sigurvegarinn Kalli Bjarna og Búdrýgindi. Tvíhöfðarnir Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson verða kynnar. Fékk draumastarfið „Það gekk vel að fá listamenn. Ég var að vinna með Nylon í sumar svo það var ekki mikið mál að fá þær og svo vildi til að Kalli Bjarna verður í bænum vegna tónleika sem hann er að fara að halda í Bolungarvík,“ segir Gunnar Atli. Hann hefur töluverða reynslu af skemmtanahaldi þótt hann sé aðeins fimmtán, að verða sextán. Hann hélt samskonar góðgerðartónleika fyrir nákvæmlega ári, 11. september í fyrra. Tilgangurinn er að efla mannlífið á Ísafirði og styrkja gott málefni. „Þetta gekk vel í fyrra. Það komu nærri því 250 manns og allt gekk vel. Ég vonast til að þetta verði svipað í ár,“ segir Gunnar. Hann skipulagði einnig tónleika með Mínus í febrúar, eins og frægt varð, og tónleika með Írafári. Allt þetta gerði hann á lokaári sínu í grunnskóla. Þegar hann stóð í skipulagningu tónleika síðasta vetur hringdi Einar Bárðarson, tónleikahaldari hjá Concert, og bauð honum starf. Gunnar Atli hikaði ekki og starfaði sem aðstoðarmaður Einars í sumar. „Þarna var draumurinn að verða að veruleika. Ekki gefast öllu betri tækifæri til að vinna á þessu sviði,“ segir Gunnar. Hann er nú í fyrsta bekk í Menntaskólanum á Ísafirði og geng- ur vel. „Þetta er frábær skóli,“ segir hann. Gunnar hefur hug á að halda áfram á þeirri braut sem hann er kominn á og langar þess vegna að læra markaðsfræði þegar hann hef- ur lokið námi í menntaskólanum og helst við háskóla í Bandaríkjunum. Tónleikarnir verða í grunnskól- anum á Ísafirði á morgun, laug- ardag, og hefjast klukkan 20. Mið- inn kostar 1.000 kr. Forsala er í Frummynd á Ísafirði. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Ungur athafnamaður: Gunnar Atli Gunnarsson, fimmtán ára mennta- skólanemi á Ísafirði, hefur töluverða reynslu af tónleikahaldi. Heldur góðgerðartónleika á Ísafirði Tekur allan tímann LANDIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.