Morgunblaðið - 10.09.2004, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 10.09.2004, Qupperneq 23
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 23 It’s how you live Ég borða skyr eiginlega áhverjum degi og veit ekk-ert betra en íslenska villi-bráð,“ segir George Holmes matreiðslumaður þegar ég byrja að tala við hann um mat og uppruna hans á meðan við gæðum okkur á lúðunni. Lúðan kemur reyndar á óvart, er mild á bragðið en hjúpurinn á fiskinum er bragðmikill og passar vel með honum. Maturinn er frábær. En hversvegna er George á Ís- landi? Þegar hann var lítill strákur að alast upp í Goa á vesturströnd Indlands sá hann mynd í barnabók af landi þar sem himinninn var heið- blár og snjór þakti jörðu. Myndin greyptist í huga drengsins og hann ákvað með sér að þetta sérstaka land, Ísland, vildi hann heimsækja. Löngu seinna ákvað hann að láta æskudrauminn rætast. Hann heill- aðist af landi og þjóð og nú er hann búsettur á Íslandi og starfar sem matreiðslumaður á Café Reykjavík. George er ástríðukokkur , elskar í raun að elda allan mat, en við- urkennir þó að skemmtilegast finn- ist honum að blanda saman ólíkum matreiðsluaðferðum. Stóri draum- urinn er nú að vinna sjálfstætt og kynna hollan, nútímalegan og fram- andi mat fyrir Íslendingum. Hann tekur gjarnan að sér að út- búa matarborð fyrir fólk eða veislur og miklar ekki fyrir sér að koma í heimahús og elda og þá skiptir í raun engu hvað elda á. Hann brást vel við þegar við báðum hann að gefa okkur uppskrift að skemmtilegum helgarmat. Lúða að indverskum hætti varð fyrir valinu; lúða með masala-kryddhjúp með mangó chutney, grænmeti og cummin- kartöflum. Borið fram með Papodom-sósu og naan brauði. Lesendum bendi ég sérstaklega á uppskriftina að mango chutney- maukinu sem var alveg einstaklega gott og geymist vel í ísskáp. Kartöfl- urnar eru líka skemmtileg til- breytni. Sumt hráefni í uppskriftirnar er aðeins fáanlegt hjá Nings eða Fil- ippseyjabúðinni á Hverfisgötu. Kórí- ander og cummin er ekki það sama hjá Nings og í öðrum verslunum. Ef tekið er fram að hráefnin séu ætluð í indverskan mat veit starfsfólkið hvaða krydd er verið að biðja um. Lúða í masala-kryddhjúp 2 msk. jurtaolía 1 laukur, smátt sneiddur 2 söxuð hvítlauksrif 1,5 msk. saxað engifer 1 tsk. cumminduft (Nings) 1 tsk. chilliduft 1 tsk. karrýduft 1 tsk. fennelduft 1/2 tsk. svart kardimommuduft (Nings) 1 tsk. salt safi úr einni sítrónu 1 búnt ferskt kóríander (Nings) 1/8 hluti af búnti af ferskri myntu (Nings) 1,25 kg fersk lúða Lúðunni er skipt í 7 hluta og bit- arnir marineraðir í einni tsk. af salti og sítrónusafa. Lagt til hliðar. Laukur er brúnaður á pönnu, engifer og hvítlauk bætt á pönnuna og steikt í eina mínútu. Bætið öllum þurrefnum á pönn- una, steikið í eina mínútu, setjið kórí- ander og myntu á pönnuna og steikið í þrjátíu sekúndur. Setjið alla blönduna í matvinnslu- vél og vinnið vel. Hyljið fiskinn með Masala blönd- unni, bakið fiskinn við 180°C í 7 mín- útur eða þar til fiskurinn er bakaður. Mangó chutney 2 msk. skilið smjör (smjörið er brætt í potti, það sem flýtur ofaná er notað, ekki sá hluti smjörsins sem sekkur á botninn.) 1 meðalstór laukur, fínt saxaður 1 tsk. saxað engifer 1/2 tsk. saxaður hvítlaukur 1/2 tsk. cummin (Nings) 1/2 tsk. svört sinnepsfræ (Nings) 1 tsk. karrý (Nings) 50 g rúsínur 1 tsk. salt 200 ml vatn 100 ml eplaedik 100 g púðursykur 1 meðalþroskað mangó (frá Bras- ilíu. Fæst í Hagkaup og Bónus.) 1/2 smátt söxuð rauð paprika 1 tsk. ferskt kóríander (Nings) 1 tsk. maísmjöl Mangóið er afhýtt, kjötið er saxað, steinninn er soðinn með en tekinn úr þegar búið er að sjóða. Bræðið smjörið í potti, hitið lauk- inn í smjörinu í eina mínútu. Setjið engifer og hvítlauk í pott og steikið í eina mínútu. Bætið sinnepsfræjunum og cummin-fræjum í pottinn og steikið í  MATARKISTAN | Matreiðslumaðurinn George Holmes býður í mat Lúða að indverskum hætti Morgunblaðið/Jim Smart George Holmes: Tekur að sér að koma heim til fólks og sjá um matarboð. Hann elskar að elda og þá er sama hvort það er indverskt, ítalskt eða íslenskt. Hann nýtur sín þó best þegar hann blandar saman ólíkum aðferðum í eldamennskunni. George Holmes bauð Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur í mat.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.