Morgunblaðið - 10.09.2004, Qupperneq 24
DAGLEGT LÍF
24 FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
eina mínútu.
Karrý, rúsínum og salti bætt í og
steikt í eina mínútu.
Eplaediki, vatni, steininum úr
mangóávextinum og sykri bætt í og
soðið þar til sykurinn er leystur upp.
Setjið mangóið saxað í pottinn og
látið suðuna koma upp aftur, takið
mangósteininn úr pottinum.
Bætið saxaðri papriku í pottinn og
maísmjöli er síðan hrært saman við
1 msk. af köldu vatni og bætt út í.
Hrærið þar til blandan þykknar.
Að lokum er kóríander sett í pott-
inn og hrært samanvið.
Grænmeti
1 eggaldin
100 g ferskt oakra (Nings)
1 meðalstór rófa
2 meðalstórar gulrætur
1 pk. sveppir
100 g frosið rifið kjöt úr kókoshnetu
(Nings)
¾ msk. karrý
3 msk. jurtaolía
salt eftir smekk
Hitið olíuna í potti, gulrætur og
rófur eru saxaðar í litla bita og steikt
á lágum hita þar til þær eru hálf-
steiktar.
Bætið restinni af innihaldinu í
pottinn og steikið þar til það er tilbú-
ið.
Popadom-sósa
1 lítri rjómi
1/2 tsk. tómatpúrra
1 msk. tómatsósa
1 tsk sykur
1 msk. karrý (verður að vera gæða
karrý. Fæst hjá Nings.)
1 tsk. salt
Allt hráefni er sett í pott, soðið þar
til sósan þykknar.
Cummin-kartöflur
1 msk. jurtaolía
1,25 kg kartöflur, skornar í litla bita
1 tsk. turmeric
1 tsk. heil cummin fræ (Nings)
salt eftir smekk
Hitið olíuna í potti, setjið allt í
pottinn í einu og steikið þar til
kartöflurnar eru tilbúnar á lág-
um eða millihita. Ef vill, má bæta
1–2 msk. af vatni á pönnuna.
Naan-brauð
250 g hveiti
1/2 tsk. þurrger
1 tsk. sykur
1/2 tsk. salt
1 egg
125 ml vatn
1 msk. smjör
Setjið allt saman í eina skál, hnoð-
ið þar til deigið verður mjúkt, slétt
og ekki klístrað. Ef deigið er klístr-
að, bætið örlitlu hveiti.
Látið hefast í 30 mínútur.
Skiptið deiginu í 6–7 bollur. Búið
til sívalar kökur úr deiginu með
kökukefli. Bakið kökurnar á lágum
hita á pönnu eða beint á eldavélar-
hellu, ca. 1 mínútu á hvorri hlið.
Burstið kökurnar með smjöri á
meðan þær eru heitar.
Sætar gulrætur með
kókosmjólkursósu
45 g skilið smjör (sjá að ofan)
700 g fínt rifnar gulrætur
400 g niðursoðin sæt mjólk (Cond-
ensed m mjólk frá Nestle hjá Nings)
¼ tsk. brúnt kardimommuduft
(Nings)
80 g rúsínur
30 g sneiddar möndlur
30 g cashew-hnetur
Hitið smjörið í potti, steikið gul-
ræturnar og rúsínurnar saman í 1–2
mínútur.
Bætið mjólkinni í pottinn, sjóðið
þar til mjólkin er næstum soðin upp.
Sneiðið cashew-hneturnar.
Bætið restinni af uppskriftinni í
pottinn ásamt cashew-hnetunum og
sjóðið í eina mínútu.
Kókosmjólkursósa
200 ml kókosmjólk
(taílensk, úr dós)
1 msk. sykur
Blandað vel saman.
Athugið að hægt
er að borða þennan
eftirrétt með niður-
soðnu mangó og
fersku papaya eða
niðursoðnu ef það
fæst ekki ferskt.
Jarðarberja-lassi
1 lítri jarðarberjajógúrt
1 tsk. cummin (Nings)
100 ml vatn
2 msk. sykur
Blandið vel saman í matvinnslu-
vél, kælið og drekkið.
Sætar gulrætur: Með kókosmjólkursósu. Ljúffeng: Lúða að indverskum hætti.
Ef lesendur hafa spurningar um
þessar uppskriftir eða indverskan
mat má senda George fyrirspurn á
coolsteppa@yahoo.com Masala.
Nostur: George bjó sjálfur til köku-
skálarnar undir eftirréttinn og
brauðstangirnar með lúðunni.
gudbjorg@mbl.is
PLOKKFISKUR, vínarterta, rab-
arbarasulta og rauðkál er meðal
rétta í matreiðslubókinni Cool Cu-
isine sem nýlega kom út hjá Eddu
bókaforlagi. Þá er bókin Cool dis-
hes önnur matreiðslubók á ensku
sem kom út á sama tíma hjá
Eddu. Í bókunum eru upp-
skriftir að íslenskum réttum
bæði hefðbundnum og nýjum.
Lesendur læra að elda brauð-
súpu, slátur, fjallalamb og
ávaxtagraut.
Það er Nanna Rögnvald-
ardóttir sem tekur saman efni
í bækurnar sem aðallega eru
hugsaðar fyrir erlenda ferða-
menn eða til gjafa. Ljósmyndir tók
Gísli Egill Hrafnsson
Í bókinni Cool Cuisine eru um
hundrað uppskriftir og í bókinni
Cool Dishes, sem er í smærra broti,
er úrval uppskrifta úr fyrrnefndu
bókinni. Hér gefur að líta uppskrift
að brauðsúpu úr bókinni. Þýðing úr
ensku er blaðsins.
Brauðsúpa með rjóma
250 g dökkt rúgbrauð
vatn
75 g rúsínur
½ sítróna, skorin í þunnar sneiðar
4 msk. sykur eða eftir smekk
250 ml. þeyttur rjómi
Skerið brauðið í bita og setjið í
pott. Bætið við köldu vatni svo það
fljóti yfir brauðmolana. Látið brauð-
ið liggja í bleyti í um hálfa klukku-
stund. Hitið þá innihald pottsins að
suðu og maukið brauðið með kart-
öflustappara.
Bætið í rúsínum og sítrónusneið-
um og látið malla í um tíu mínútur.
Bætið sykri við eftir smekk. Í
sumum tilfellum þarf ekki að sykra
súpuna ef brauðið sjálft er sætt.
Fjarlægið sítrónusneiðarnar. Þeytið
rjóma og berið fram með súpunni.
Uppáhaldsmaturinn
úr leikskólum
Útgáfan Hemra hefur gefið út
matreiðslubókina Krakkaeldhúsið
þar sem eru gefnar uppskriftir að
vinsælustu réttunum í leikskólum
landsins.
Í bókinni gefa matráðar í leikskól-
um uppskriftir..
Uppskriftirnar eru að réttum úr
fiski, kjöti og grænmeti, auk með-
lætis, eftirrrétta og baksturs. Allir
réttirnir eru í uppáhaldi hjá börnum
og eru í senn hollir og einfaldir í mat-
reiðslu. Mælt er með því að bókina
skoði foreldrar og börn saman
Ásta Vigdís Jónsdóttir ritstýrði
Krakkaeldhúsinu og Eduardo Pe-
rez Baca sá um eldamennsku og
ljósmyndaði réttina. Ein upp-
skriftin í bókinni er að Fílakök-
um sem eru grænmetisbuff.
Fílakökur
1 poki kjúklingabaunir
2 pokar gulrætur
300 g sveppir
2 rauðar paprikur
500 g soðnar kartöflur
4 laukar
3–4 egg
5 hvítlauksrif
kartöflumjöl
salt, pipar og krydd eftir smekk
Leggið baunirnar í bleyti í sólar-
hring og sjóðið svo í klukkutíma.
Setjið baunirnar í matvinnsluvél
ásamt grænmetinu. Kryddið vel með
salti, pipar og kryddi eftir smekk.
Setjið kartöflumjöl út í til að þykkja
deigið. Deigið á að vera frekar
blautt. Mótið buff og steikið á pönnu
í 3–4 mínútur á hvorri hlið. Meðlæti:
hrísgrjón og sveppasósa.
MATREIÐSLUBÆKUR
Plokkfiskur og fílakökur
Réttirnir
eru í uppá-
haldi hjá
börnum og
eru í senn
hollir og
einfaldir í
matreiðslu
ÞAÐ ER ekki oft sem leifar af eitur-
úðun á grænmeti og ávexti fara yfir
leyfileg mörk segir í nýlegri frétt í
Berlingske Tidende. En það gerist
oft að danska matvælaeftirlitið finni
leifar af eitri sem ekki er hægt skola
af með vatni. Tekið er fram að engin
hætta sé þó á ferðum vegna þessa og
rétt sé samt sem áður að skola vel
með vatni bæði ryk og annan skít
sem sest oft á grænmeti og ávexti.
Á árunum 1998 til 2002 tók danska
matvælaeftirlitið 203 prufur af inn-
fluttum tómötum og í fimm tilvikum
fannst of mikið magn af eiturefnum.
Á sama tímabili voru teknar 180
prufur af dönskum tómötum sem all-
ar sýndu að eitrun var undir leyfi-
legum mörkum.
MATUR|Eiturúðað
grænmeti og ávextir
Næst ekki af
með vatni
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík