Morgunblaðið - 10.09.2004, Síða 27

Morgunblaðið - 10.09.2004, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 27 „VIÐ viljum að menn séu á skráðum hjólum, keyri eftir löglegum slóðum og vegum eða að þeir geti farið inn á sérstök æfingasvæði. Þetta er það sem við höfum verið að berjast fyrir og þau skilaboð sem við sendum félagsmönnum,“ segir Hrafnkell Sigtryggsson, formaður Vélhjólaíþróttaklúbbsins, VÍK. Hann segir utanvegaakstur mótorhjólamanna vissulega vera vandamál sem félagið sé vel meðvitað um og taki skýra afstöðu gegn og reki sterkan áróður til að vekja mótorhjólamenn til umhugsunar og koma í veg fyrir slíkan akstur. Um leið verði þó að hafa í huga að fleiri valdi skemmdum á landinu og því eðlilegt að taka heildstætt á umhverfisspjöllum af völdum allra útivistarhópa og ferðamanna en einblína ekki einvörðungu á mótorhjólamenn. Ennfremur sé nauðsynlegt að hafa í huga að VÍK hafi barist fyrir úthlutun sérstakra æfingasvæða um árabil en mætt mjög litlum skilningi ráðamanna á þörfum þessa hóps. Torfærumótorhjólum hefur fjölgað gríðarlega á síðustu árum og telur Hrafnkell að aukning sé þre- til fimmföld. Þessi aukning skýri að stórum hluta aukna umræðu um utanvegaakstur. Einhverjir mótorhjólamenn hafi um árabil þvælst eftir afskekktum kindaslóðum og stígum án þess að margir hafi orðið þess varir eða gert við það athugasemdir þótt þessi akstur stangist vissulega á við lög. Þar sem fleiri séu farnir að hjóla þessar slóðir verði óhjá- kvæmilega meiri ummerki eftir aksturinn. Nú sé svo komið að nauðsynlegt sé að umræða fari fram meðal mótorhjólamanna um þessi mál, hvar megi aka og hvar það sé bannað. Það sé hins vegar að ýmsu leyti erfitt að eiga við þetta, um 1.500–2.000 manns aki torfæruhjólum og þessi hópur hafi búið við mikið frjálsræði fram til þessa. Um leið sé erfitt að reka áróður fyrir því að menn hjóli ekki leiðirnar sem þeir eru vanir á meðan ekki sé hægt að benda á neina aðra valkosti. Vantar æfingasvæði Hrafnkell segir að æfingasvæði fyrir torfærumótorhjól séu fremur fá. Í fyrra fengu mótorhjólamenn úthlutað svæði í Álfsnesi og í vor var samþykkt að þeir fengju að stunda æfingar á svokölluðu Breiðstræti við Grindavík. Þessi svæði hafi verið kostnaðarsöm í uppbyggingu og þjóni einungis hluta vélhjólamanna. Hrafnkell segir þó augljóst að með þessu hafi dregið úr utanvegaakstri en enn vanti tilfinnanlega fleiri svæði. Nýlega sótti VÍK um að fá æfingasvæði fyrir enduro-mótorhjól í Jósefsdal á Hellisheiði en því hafnaði sveitastjórn Ölfuss. Hrafnkell segir að höfnunin hafi komið á óvart enda hafi sveitarstjórnarmenn virst jákvæðir í fyrstu enda hefði þetta getað létt af akstri á Hengilssvæðinu. Hrafnkell bendir á að Ferðaklúbburinn 4x4 hafi lengi staðið í baráttu gegn utanvegaakstri og svipuð vakning sé nú að eiga sér stað meðal mótorhjóla- manna. Í vor var stofnuð umhverfisnefnd VÍK og haldnir hafa verið fundir þar sem brýnt er fyrir mönnum að ganga vel um landið. Gefinn hefur verið út bæklingur um hvar megi aka og í samvinnu við 4x4 klúbbinn hafi verið sett upp um 60 skilti í kringum þéttbýlisstaði og á hálendinu þar sem félagsmenn eru minntir á að aka ekki utan vega. Auk þessa hefur verið rekinn sterkur áróður gegn utanvegaakstri á vef félagsins, motocross.is. Hrafnkell Sigtryggsson, formaður VÍK Þarf umræðu meðal mótorhjólamanna „ÞAÐ hlýtur að teljast mikill heið- ur fyrir bókaútgáfu að gefa út sjálfa biblíuna sem gjarnan er nefnd bók bókanna,“ sagði Jóhann Páll Valdimarsson, útgáfustjóri JPV útgáfu, er hann og Karl Sig- urbjörnsson biskup skrifuðu í gær undir samning um að JPV útgáfa taki að sér útgáfu og dreifingu á nýrri íslenskri þýðingu biblíunnar. Þetta verður ellefta útgáfa bibl- íunnar á íslensku en hún var síðast gefin út 1981 en þá var ekki um nýja þýðingu að ræða á biblíunni í heild. Biblían hefur ekki verið gefin út í nýrri heildarþýðingu á íslensku síðan árið 1912. Þýðingarstarf um árabil Hinn 1. október árið 1990 var undirritaður samstarfssamningur milli Hins íslenska biblíufélags og Guðfræðistofnunar Háskóla Ís- lands um þýðingu Gamla testa- mentisins og hefur verið unnið eftir honum síðan. Þýðendur eru Sigurður Örn Steingrímsson, Þórir Kr. Þórð- arson, Jón Gunnarsson, Árni Berg- ur Sigurbjörnsson og Gunnlaugur A. Jónsson. Formaður þýðingarnefndar er Guðrún Kvaran sem tók við er Þór- ir Kr. Þórðarson féll frá en aðrir í þýðingarnefnd eru séra Árni Berg- ur Sigurbjörnsson, fulltrúi hins ís- lenska biblíufélags, séra Gunnar Kristjánsson, tilnefndur af biskupi, Gunnlaugur A. Jónsson, fulltrúi Guðfræðistofnunar, og Guðrún Kvaran, fulltrúi Íslenskrar mál- nefndar, og séra Sigurður Pálsson, framkvæmdastjóri Biblíufélagsins. Í ritstjórn verksins eiga sæti Guð- rún Kvaran formaður, Einar Sig- urbjörnsson prófessor og séra Sig- urður Pálsson. Jón Pálsson, framkvæmdastjóri Biblíufélagsins, er ritari nefndarinnar. Hlutar Nýja testamentisins voru þýddir og endurskoðaðir fyrir út- gáfuna 1981. Frá því í apríl 2002 hefur Jón Sveinbjörnsson unnið að ítarlegri endurskoðun á textum bréfa og Opinberunarbókar Nýja testamentisins ásamt því að fara yfir guðspjöllin og Postulasöguna í útgáfunni 1981 og samræma við endurskoðun bréfanna. Er stefnt að útgáfu kynningarheftis með allri nýju þýðingu Nýja testamentisins um áramótin 2004/5 og frágengn- um texta um mitt ár 2005. Frá upphafi hefur verið stefnt að því að þýða eftir frumtexta í báðum testamentum. Í þýðingu Gamla testamentisins er þýtt úr hebresku en Nýja testamentið er þýtt úr grísku. Er leitast við að taka tillit til stíls frumtexta, einkum í Gamla testamentinu án þess að sú við- leitni komi niður á íslenskri gerð textans. Þá verður sú breyting á útgáfunni að apokrýfu bækur hennar verða nú prentaðar með að nýju en þær fylgdu íslenskum út- gáfum Biblíunnar þar til um miðja 19. öld. Samningurinn felur í sér að Bibl- íufélagið afhendir JPV útgáfu end- anlegan texta nýrrar þýðingar biblíunnar um mitt ár 2005 og JPV útgáfa sér síðan um umbrot, frá- gang, prentun, dreifingu og annað er lýtur að útgáfunni. Sögulegt skref fyrir Biblíufélagið Karl Sigurbjörnsson biskup, sem jafnframt er forseti Hins íslenska biblíufélags, sagði að fyrir félagið væri þetta stórt sögulegt skref þar sem félagið hefði allt frá stofnun árið 1815 annast öll sín útgáfumál sjálft. „Þetta var engu að síður vandasöm og viðkvæm ákvörðun en félagið hefur einfaldlega ekki bolmagn til að standa að svo flóknu verki sem útgáfa nýrrar biblíu fyr- ir 21. öldina er. Með þessum samn- ingi við JPV er tryggt að biblían komist til sem flestra og á sem að- gengilegustu máli.“ Um hina nýju þýðingu sagði Karl að vinna við hana hefði hafist snemma á 9. áratug síðustu aldar. „Sú biblíuþýðing sem við eigum er orðin aldargömul og því tímabært að hefja endurskoðun hennar. Það hafa orðið ýmsar breytingar á ís- lensku máli en einnig hefur orðið framþróun í biblíurannsóknum sem ýta undir þörfina fyrir nýja þýð- ingu. Það er ein af frumskyldum hins íslenska biblíufélags að þetta grundvallarrit kristinna manna sé til á aðgengilegu máli. Við þýð- inguna var einnig nauðsynlegt að bera virðingu fyrir frumtextanum og eldri þýðingum en mikilvægi þýðinga Guðbrands biskups og Odds Gottskálkssonar fyrir ís- lenskt mál og íslenskar bókmenntir verður seint metið til fulls.“ Aðspurður hvort hann ætti von á að nýja þýðingin myndi valda upp- námi kvaðst Karl vona að svo yrði ekki en „þó á ég ekki von á að allir verði sáttir. Við höfum reyndar gefið út tilraunaútgáfur af nýju þýðingunum á Gamla testamentinu og óskað eftir athugasemdum bæði frá lærðum og leikum. Þær hafa borist, en þó ekki jafnmargar og við gerðum okkur vonir um, en all- ar athugasemdir hafa verið teknar til athugunar. Á næsta ári verða gefnar út tilraunaútgáfur á þýð- ingu Nýja testamentisins einmitt til þess að gefa fólki tækifæri til at- hugasemda áður en endanlega verður ráðist í útgáfuna árið 2006.“ Treysti á Guð og lukkuna „Það hefur ekki hvarflað að mér að gera kostnaðaráætlun um þetta verkefni,“ segir Jóhann Páll Valdi- marsson útgáfustjóri aðspurður um kostnað við útgáfuna. „Ég treysti algerlega á Guð og lukkuna í því efni. Þetta er stórkostlegt tækifæri fyrir bókaútgefanda og ég er staðráðinn í því að helga mig þessu verkefni næstu misserin. Þetta er gríðarstórt verkefni því við munum gefa út nokkrar útgáfur sem eru ætlaðar til mismunandi notkunar. Þar verður t.a.m. kirkju- biblía í stóru broti en minna brot fyrir almenning og einnig kiljuút- gáfur. Ég tel mjög mikilvægt að finna nýrri útgáfu biblíunnar við- eigandi búning og lít á þetta sem tækifæri til að sýna hversu bóka- gerðin er megnug.“ Jóhann Páll segir að prentun biblíunnar sé mjög sérhæft verk þar sem pappír hennar verði mjög þunnur. „Ég tel þess vegna ólíklegt að íslensk prentsmiðja verði fengin til verksins og er reyndar þegar farinn að leita fyrir mér erlendis um prentunina. Ég geri mér ljóst að útgáfu biblíunnar fylgir mikil ábyrgð og ég og samstarfsmenn mínir munum kappkosta að standa þannig að útgáfunni að öllum verði til sóma,“ segir Jóhann Páll Valdi- marsson. Biblíufélagið og JPV útgáfa semja um biblíuútgáfu Morgunblaðið/Golli Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi og Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, skrifa undir útgáfusamning um nýju biblíuna. Að baki þeim standa fulltrúar ritnefndar og stjórnar Hins íslenska biblíufélags. Sögulegt skref nað er að aka vélknúnum ökutækjum ut-ga. Þó er heimilt að aka slíkum tækjum ám, svo og á snjó utan vega utan þéttbýlis remi sem jörð er snævi þakin og frosin.“ glugerð um akstur í óbyggðum virðist vegar við fyrstu sýn veita nokkuð rýmri ildir og leyfa akstur utan vega svo lengi engin spjöll hljótast af. Í 2. grein segir: r akstur utan vega og merktra slóða þar náttúruspjöll geta af hlotist er bannaður. náttúruspjöllum er meðal annars átt við l á gróðri, jarðvegi og jarðmyndunum, dun nýrra slóða, hvort sem er á grónu , þar með töldu mosavöxnu landi, eða nu og skiptir ekki máli hvort líkur eru á nlegum skaða eða tímabundnum.“ gurður Örn Guðleifsson, lögmaður Um- fisstofnunar, segir það af og frá að reglu- gerðin veiti mönnum heimild til utanvega- aksturs. Reglugerðir verði að eiga stoð í lögum og geti ekki veitt rýmri eða þrengri heimildir en lög. Lögin séu skýr, allur akstur utan vega sé bannaður og það bann standi þrátt fyrir reglugerðina. Hann segir tíma- bært að endurskoða reglugerðina enda gangi hún of langt og hafi auk þess þvælst fyrir rík- issaksóknara þegar ákært er fyrir utanvega- akstur. Annað sem stundum virðist vefjast fyrir mönnum er hvað telst vera vegur. Á hálend- inu eru ótal ómerktir vegaslóðar og sumir eru eknir afar sjaldan. Vonast er til að réttaró- vissu um þetta atriði verði eytt þegar nýtt kort yfir alla vegi og slóða á hálendinu verður tilbúið en það byggist á mælingum Landmæl- inga Íslands. ngja refsingar við utanvegaakstri ga sjálfs- önnum“ r akstur an vega verði að r að eftir engið æf- i eitthvað Svo virð- ðið raun- úti um rbústað- g svo upp í a dengist ekki raftur og eiri mold- aftur eru kvartað hvorki ð ná ð það engin af- r þeim mynd/SB heiði Nýja þýðingin: 1. Mósebók Sköpunarsagan 1 Í upphafi skapaði Guð him- in og jörð. 2 Jörðin var þá ómótuð auðn. Myrkur grúfði yfir frum- djúpinu[1] en andi Guðs sveif yfir vötnunum. 3 Þá sagði Guð: „Verði ljós!“ Og það varð ljós. Þýðingin frá 1981: 1 Í upphafi skapaði Guð him- in og jörð. 2 Jörðin var þá auð og tóm, og myrkur grúfði yfir djúpinu, og andi Guðs sveif yfir vötnunum. 3 Guð sagði: ,,Verði ljós!“ Og það varð ljós. Blæbrigða- munur þýðinganna AR blaðamaður var á ferð um Uxahryggi síðasta sunnudag í ágúst sá hann til fjög- mótorhjólamanna sem óku utan vegar, vestan við Sandkluftavatn og skammt áður en ð er að veginum að Hvalvatni. Mynd náðist af einum þar sem hann ók upp gróna ku og skeytti engu hvort þar væri fyrir stígur eða ekki. Félagar mannsins voru utan myndavélarinnar. Engin vafi leikur á því að hér var um utanvegaakstur að ræða. mmt frá voru tveir bílar með kerrur fyrir mótorhjól. Morgunblaðið/RP tanvega við Uxahryggjaleið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.