Morgunblaðið - 10.09.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.09.2004, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Karólína GuðnýÞorsteinsdóttir fæddist í Víðidal í Hólsfjöllum 15. sept- ember 1927. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 1. september síðastlið- inn. Foreldrar Karól- ínu voru hjónin Þor- steinn Sigurðsson og Guðrún Sigurbjörns- dóttir. Systkini Kar- ólínu eru Guðmundur f. 1922, Sigurður f. 1923, Sigurbjörn f. 1925 og Ester f. 1937. Karólína giftist Guðna Árnasyni frá Selárdal í Vopnafirði f. 21. febrúar 1914, d. 6. febrúar 1988. Börn Karólínu og Guðna eru 1) Arnfríður Ásdís f. 1948, sonur hennar er Guðni Karl f. 1970. 2) Guðrún Kolbrún f. 1952, maki Hjörtur Sigurjóns- son, þau eiga þrjá syni. a) Sigurjón Mýrdal f. 1971, í sambúð með Helgu Fanneyju Edwards- dóttur, dætur þeirra eru Sara Ósk Þrúð- marsdóttir f. 1992 og Stefanía Veiga f. 1998. b) Hilmar f. 1972, í sambúð með Bryndísi Hrönn Gunnarsdóttur, son- ur þeirra er Henrik Máni f. 2003. c) Hjörtur f. 1981. 3) Jóna f. 1955, maki Þórir Jónsson, börn þeirra eru Þórir Reynir f. 1978 og Karólína Stefanía f. 1992. 4) Halldór f. 1959. Útför Karólínu verður gerð frá Laugarneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Hún er farin yfir móðuna miklu hún móðir mín. Í dag kveð ég móður mína er hún heldur til annarra starfa í annarri vídd. Við móðir mín efuðumst ekki um að lífið heldur áfram og hefur til- gang. Mamma hafði fengið að sjá hvernig er hinum megin og sagði mér sitthvað um það. Móðir mín hafði stórt og hlýtt hjarta og hafði mikið að gefa. Skólaljóðin, sú mæta bók, mamma kenndi mér að meta og skilja ljóð. Já, mamma skildi allt og gat allt, handlagnari og duglegri manneskju hef ég ekki hitt. Sæng- urfötin mín voru bróderuð og hand- klæðin merkt upphafsstöfum. Sér- saumuð föt, ég var alltaf umvafinn kærleika móður minnar. Mamma söng oft í eldhúsinu og þar urðu til margir dásemdarréttirnir og þeir voru miklu betri af því þeir urðu til við söng og gleði, mamma! Þú varst alltaf til fyrir mig, mamma, og þú varst heimavinnandi, ótrúlegt starf. Þín ljúfa návist og manngæska munu fylgja mér og að hafa átt Mömmu með stórum staf. Nú ertu hjá pabba í ljósi Guðs og hjarta mitt saknar ykk- ar. Betri fyrirmyndir í lífinu gat ég ekki fengið og þakka Guði. Guð blessi þig um alla eilífð, mamma mín. Þinn sonur, Halldór Guðnason. Elsku Lína, eins og þú varst alltaf kölluð. Við þessi tímamót rifjast upp margar minningar. Það eru 35 ár síð- an ég kom í fyrsta sinn á heimili ykk- ar Guðna á Bugðulæk 7 með Kollu dóttur ykkar sem ég var svo gæfu- samur að kynnast. Hvenær sem maður heimsótti ykkur þá var alltaf fjör á Bugðulæknum. Þú varst alltaf svo myndarleg í þér, útbjóst gómsætar samlokur og nýbakaðar kleinur áður en við héld- um af stað í ferðalög. Ferðalögin urðu fjölmörg og skemmtileg í Hval- fjörðinn, Borgarfjörð og vestur og urðu fjörugri eftir að barnabörnin bættust í hópinn. Alltaf varstu tilbúin að rétta öðr- um hjálparhönd. Gott dæmi um það er þegar þú hjálpaðir móður minni að yfirdekkja borðstofustólana og það verk eins og önnur sem sneru að saumaskap léku í höndum þér. Þegar ég hugsa til baka skynja ég hvað tíminn hefur verið fljótur að líða. Þegar ég heimsótti þig síðast hafði þér hrakað mjög en ekki átti ég von á því að þú færir svona snöggt. Ég bið góðan Guð að gefa okkur huggun og styrk. Elsku Lína, Guð geymi þig. Hjörtur. KARÓLÍNA G. ÞORSTEINSDÓTTIR ✝ Una Kjartans-dóttir fæddist í Hafnarfirði 24. júlí 1921. Hún lést í hjúkrunarheimilinu Víðinesi 4. septem- ber síðastliðinn. Foreldrar Unu voru Jarþrúður Þorláks- dóttir, f. 10.12. 1897, d. 1.4. 1991 og Kjartan Jakobsson, f. 3.1. 1893, d. 1.8. 1954. Systkini Unu eru Jón, f. 1919, d. 1984. Elínborg Anna, f. 1923 og Guðný Bára, f. 1926. Hálfsystk- ini Unu sammæðra eru Sólrún Helgadóttir, f. 1933, Sigurður Helgason, f. 1934, og Þorlákur Helgason, f. 1936. Eiginmaður Unu var Jón R. Kjartansson, f. 24.10. 1919 (þau skildu). Þau eiga fjögur börn: a) Sigrún Ragna, f. 26.3. 1942. Börn hennar og Einars Loga Einarssonar, f. 8.3. 1938, d. 2.8. 2002, eru Ásgerður, f. 19.10. 1965 og María Helga, f. 12.12. 1969. Dóttir Sigrúnar Rögnu og Ólafs Emilssonar, f. 31.8. 1941, er Hildur, f. 12.5. 1982. b) Kjart- an, f. 25.1. 1946. Börn hans og Fanneyjar Helgadóttur, f. 4.1. 1944, eru Helga Sjöfn, f. 10.2. 1981 og Margrét Una, f. 6.7. 1983. Stjúpsonur Kjartans er Helgi Birgisson, f. 24 8. 1967. c) Þrúð- ur, f. 9.10. 1947. Börn hennar og Þorleifs Jóhannes- sonar, f. 7.6. 1937, eru Una Berglind, f. 8.1. 1966 og Arnar Þór, f. 3.4. 1967. Börn Þrúðar og Þorsteins Guð- mundssonar, f. 12.11. 1945, eru Guðmundur Ingi, f. 21.10. 1981 og Björgvin Freyr, f. 9.6. 1984. d) Guðný, f. 9.10. 1947. Börn hennar og Gylfa Snorrasonar, f. 9.2. 1943, eru Dagný, f. 3.12. 1966, Snorri, f. 10.12. 1968, og Sigrún, f. 2.9. 1971. Alls eru afkomendur Unu nú 27. Una bjó í æsku á Skólavörðu- stíg 17a til 1930 þegar hún flutti að Sjafnargötu 4 með frænku sinni og fósturmóður Guðnýju Jónsdóttir frá Galtafelli og Jóni Guðmundssyni. Dóttir Guðnýjar og Jóns er Gígja Björnsson og ól- ust þær frænkur upp og bjuggu lengst af saman í húsinu að Sjafnargötu 4. Una vann lengst af sem matráðskona hjá Slátur- félagi Suðurlands í Reykjavík. Útför Unu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 15. Hjá ömmu Unu á Sjafnargötunni ríkti ákveðinn hátíðlegur andi, það var eins og að fara í annan heim að koma niður á Sjafnó. Amma tók allt- af vel á móti okkur systkinunum og sá til þess að öllum liði vel. Þar snæddum við ófá sunnudagslæri og ógleymanleg í minningunni er hangikjötsveisla á jóladag sem var fastur liður í jólahaldinu. Af Sjafn- argötunni fórum við aldrei heim með tóman maga enda var alltaf nóg til frammi. Hjá ömmu var alltaf allt svo fínt og heimilið prýddu margir fagrir hlutir. Þegar við fórum í heimsókn fórum við í okkar fínasta pússi. Það sem einnig gerði Sjafnargötuna að annarri veröld var það sérstaka orðaval sem amma átti til að grípa til. Hún notaði setningar eins og: Eigum við ekki að fá okkur órans út á altani? Þrátt fyrir hátíðleikann á Sjafnargötunni þá var amma ávallt einlæg og hlý, og húmorinn skein í gegnum glæsileikann. Amma Una á sérstakan stað í hjarta okkar og til hennar munum við hugsa með hlýju. Hún var ein- stök kona og ber önnur okkar nafn hennar með stolti. Guð blessi minningu hennar. Helga Sjöfn og Margrét Una Kjartansdætur. Við ævilok ömmu Unu eru þessar örfáu línur skrifaðar í þakklætis- og kveðjuskyni. Þegar ég var lítill þá voru þær ófá- ar sunnudagsheimsóknir okkar til ömmu Unu. Þær minningar eru ljúf- ar og sterkar og munu ávallt lifa innra með mér hvað sem öðru líður og langar mig til að rifja þær upp. Heimsóknin hófst með því að bílnum var lagt í eitt fárra stæða Sjafnar- götunnar fyrir framan hvítt stórt húsið, gengið var niður tröppurnar inn í bakgarðinn og dyrabjöllunni hringt. Á móti okkur tók amma Una, hlý og fín. Farið var inn ganginn og framhjá eldhúsinu þar sem allt var á fullu með sinni unaðslegu matarlykt. Komið var í vel prýdda stofuna klædda þykkum gólfteppum og hlý- legu veggfóðri. Sest var niður og spjallað, matur borinn fram og sagt: Það er nóg til frammi. Skemmtilegar umræður voru að- alsmerki ömmu Unu og vonandi munu afkomendur viðhalda því. Ég vildi óska þess að við hefðum getað haldið þessum heimsóknum áfram til allrar eilífðar en tíminn líður, við eldumst og hverfum á braut. Helgi Birgisson. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð barna þinna. Þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa og eykur þeirra afl og trú. En það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum – eins og þú. (Davíð Stefánsson.) Með þessum orðum skáldsins frá Fagraskógi kveð ég mína elskulegu fóstursystur. Hún var yndisleg frænka, uppeldissystir og vinkona alla tíð. Við ólumst upp hjá foreldr- um mínum á Sjafnargötu 4 og þar hefur heimili okkar beggja verið síð- an, fyrir utan þau ár sem ég dvaldi erlendis. Una var hljóðlát, hógvær og ljúf og var mér og fjölskyldu minni alla tíð sem traustur klettur í tilverunni. Ég og börnin mín, Sveinn, Níní og Helga, og fjölskyldur þeirra kveðj- um Unu með söknuði og virðingu og biðjum góðan Guð að styrkja börn hennar og fjölskyldur þeirra. Hvíli hún í friði. Gígja Björnsson. UNA KJARTANSDÓTTIR Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, INGÓLFS ÁRNASONAR fyrrverandi rafveitustjóra Norðurlandi eystra. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheim- ilisins Sels á Akureyri og samstúdenta Ingólfs úr MR 1945. Góðar minningar lifa. Anna Hallgrímsdóttir, Jóna G. Ingólfsdóttir, Bjarni Þ. Jónatansson, Hallgrímur S. Ingólfsson, María J. Jónsdóttir, Sigríður E. Ingólfsdóttir, Gunnar Kr. Jónasson, Árni G. Ingólfsson, Sigrún B. Guðjónsdóttir, Valborg Salome Ingólfsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, UNNSTEINN BECK hrl., Árskógum 6, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnu- daginn 29. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Anna G. Beck, Steinar Beck, Þórólfur Tómasson, Hans Jakob Beck. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN JÓHANNSSON, Eyjahrauni 11, (áður Norðurgarði), Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju, Vest- mannaeyjum, laugardaginn 11. september kl. 14.00. Þorvaldur Stefánsson, Sveinbjörg Kristmundsdóttir, Kristinn Ingi Stefánsson, Elísabet Þrastardóttir, Ragnar Þór Stefánsson, Lísa Skaptadóttir, Jóhann Hjaltalín Stefánsson, Berglind Helgadóttir, Ómar Stefánsson, Þórdís Jóelsdóttir, Snædís Stefánsdóttir, Jónsteinn Jensson, Ingibjörg Stefánsdóttir, Jóhann Reynisson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur okkar og bróðir minn, WILHELM MAGNÚS ALEXANDERSSON OLBRICH, Háaleitisbraut 54, Reykjavík, lést af slysförum laugardaginn 4. september. Útför hans fer fram frá Grensáskirkju þriðju- daginn 14. september kl. 13.30. Rebekka Magnúsdóttir, Alexander Olbrich, Gunnar Páll Alexandersson Olbrich. Eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir og tengdadóttir, SIGRÚN JÓNSDÓTTIR, Aðalgötu 14, Stykkishólmi, verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju á morgun, laugardaginn 11. september kl. 15.00. Hólmgeir Sturla Þórsteinsson, Margrét Hólmgeirsdóttir, Jón Glúmur Hólmgeirsson, Þórhildur Hólmgeirsdóttir, Jón Aðalsteinn Baldvinsson, Margrét Sigtryggsdóttir, Ragnar Þór Jónsson, Róshildur Jónsdóttir, Þórsteinn Glúmsson, Aðalbjörg Pálsdóttir. Þig munum, ástrík móðir, þig muna vinir góðir og barna-börnin þín. Við kveðjum þig og þökkum, með þjáðum hug og klökkum, sem morgunsól þín minning skín. (J.S. Húnfjörð.) Hvíl í friði elsku mamma. Þín Kolbrún. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.