Morgunblaðið - 10.09.2004, Page 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 33
Elsku amma mín, það er erfitt að
trúa því að þú sért farin. Meðal
fyrstu æskuminninga minna eru
heimsóknir til ömmu og afa á Bugðu-
læk. Alltaf tókstu vel á móti mér og
mörg voru skiptin sem ég fékk að
gista hjá þér.
Þú varst alltaf svo jákvæð og tilbú-
in að hjálpa mér með allt sem ég var
að gera. Ég gleymi því ekki þegar þú
hringdir fyrir mig í Bjössa bróður
þinn og komst mér þar fyrir í sveit-
inni, vegna þess að það var það sem
mig hafði langað svo lengi. Ég man
hvað mér þótti vænt um þegar þú
hringdir í mig af og til í sveitina að
athuga hvernig ég hefði það.
Eftir að ég eignaðist Henrik Mána
var gaman að sjá brosið sem færðist
yfir andlit þitt þegar ég kom með
hann í heimsókn til þín þótt þú hafir
verið orðin veik undir það síðasta.
Ég lifi í Jesú nafni,
í Jesú nafni eg dey,
þó heilsa og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti eg segi.
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(Hallgrímur Pétursson.)
Amma, þú munt alltaf eiga stað í
hjarta mínu og mun ég aldrei gleyma
þér.
Hilmar Hjartarson.
✝ Jóhann Valde-marsson fæddist
á Möðruvöllum í
Eyjafirði 22. júní
1911. Hann lést á
Dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyri 3.
september síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Kristján Valde-
mar Pálsson, bóndi
og hreppstjóri á
Möðruvöllum í Eyja-
firði, f. á Vatnsenda
í Eyjafirði 11. júní
1889, d. 21. des. 1970
og kona hans Guð-
rún Jónasdóttir húsmóðir, f. á
Þórustöðum í Öngulsstaðahreppi
9. ágúst 1886, d. 4. nóv. 1955.
Systkini Jóhanns eru Ásgerður, f.
16. maí 1914, d. 6. des. 1926,
Ragnheiður, f. 2. júlí 1919, gift
Ragnari Ólasyni, f. 1. júní 1912, d.
27. júlí 1990 og Ásgeir, f. 11. sept.
1926, kvæntur Auði Aðalsteins-
hanni Þórðarsyni, d. 14.10. 1993.
Dætur þeirra eru Helga, f. 1960
og Kristín, f. 1964. 4) Guðrún, f.
14. maí 1944, sambýlismaður
Garðar Karlsson. Sonur hennar er
Jóhann, f. 1963. 5) Jóhann, f. 24.
ágúst 1950, kvæntur Önnu Maríu
Halldórsdóttur. Börn þeirra eru
Halldór, f. 1972, Helga Magnea, f.
1977, og Jóhann Steinar, f. 1982.
Barnabarnabörn Jóhanns eru sex-
tán og barnabarnabarnabörnin
tvö.
Jóhann stundaði nám í farskóla
á Möðruvöllum í 4 vetur, síðan í
Gagnfræðaskólanum á Akureyri
1926–1928 og Búnaðarskólanum á
Hvanneyri 1929–1930. Hann
stundaði búskap á Möðruvöllum
frá vorinu 1932 til vors 1956 en
flutti þá til Akureyrar og hóf
rekstur bókaverslunar sem hann
starfaði við í 9 ár. Í ársbyrjun
1967 flutti hann til Reykjavíkur
og starfaði í Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar fram á áttræðis-
aldur. Í des. 1996 flutti hann aftur
til Akureyrar og bjó þar til dauða-
dags.
Útför Jóhanns fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
dóttur, f. 16. maí
1927.
Jóhann kvæntist 26.
júní 1932, Helgu
Magneu Kristinsdótt-
ur, f. í Samkomugerði
13. feb. 1911, d. 18.
jan. 1965. Jóhann
kvæntist aftur 26. júní
1975 Vilhelmínu Bier-
ing, f. 13. júní 1918, d.
18. okt. 1999. Börn Jó-
hanns og Helgu
Magneu eru: 1) Gerð-
ur, f. 20. feb. 1933,
gift Kjartani Á. Kjart-
anssyni, börn þeirra
eru Kjartan, f. 1956, Helga Jó-
hanna, f. 1962 og óskírðar tví-
buradætur látnar 1964. 2) Gunn-
ar, f. 20. apríl 1935, kvæntur
Heiðdísi Norðfjörð. Synir þeirra
eru Gunnar, f. 1961, Jón Norð-
fjörð, f. 1966 og Jóhann Valdemar
Norðfjörð, f. 1971. 3) María Krist-
ín, f. 1. des. 1939, gift Magnúsi Jó-
Við minnumst með þakklæti og
virðingu tengdaföður okkar Jóhanns
Valdemarssonar er lést hinn 3. sept-
ember sl.
Nú blundar fold í blíðri ró,
á brott er dagsins stríð,
og líður yfir land og sjó
hin ljúfa næturtíð.
Þá mæða sálar hverfur hver,
svo hvílst þú getur rótt,
og sjálfur Drottinn sendir þér,
er sefur, góða nótt.
(Jón Helgason.)
Guð blessi þína minningu.
Anna María og Heiðdís.
Blendnar tilfinningar komu upp í
huga okkar þegar við heyrðum að þú
hefðir yfirgefið okkur. Þrátt fyrir
sorgina við að missa þig fundum við
okkur huggun í því að þú kvaddir
okkur saddur lífdaga, enda upplifað
á lífsleiðinni meira en margur getur
látið sig dreyma um.
Við þökkum þér einlæga gestrisni
þína, hvort sem við sóttum þig heim í
Álfheimana, Hrísalundinn eða Hlíð,
þar sem allt fram á síðasta dag þótti
þér ómögulegt annað en að geta veitt
okkur eitthvað, þótt ekki væri nema
einn sælgætismola. Okkur er sér-
staklega minnisstætt hversu vel þú
mundir alla þá sem urðu á þínum
vegi á lífsleiðinni, alla ættfræði og
allar þessar skemmtilegu sögur sem
við fengum að heyra frá þér. Í gegn-
um skin og skúri skorti þig aldrei
húmor, og sama hversu alvarlegt
ástandið var fannst þér það aldrei
svo alvarlegt að ekki væri hægt að
sjá á því spaugilegu hliðina.
Þrátt fyrir háan aldur var auðvelt
að sjá hve dugmikinn mann þú hafðir
að geyma. Eins og farfuglarnir á
vorin þá komst þú norður til að
stunda þá iðju sem veitti þér svo
mikla ánægju á þínum efri árum.
Okkur er í fersku minni heimsókn-
irnar þínar í Eikarlundinn á sumrin,
þegar þú nánast fluttir búferlum út í
gróðurhús og ræktaðir plöntur af
svo miklu kappi að rétt tókst að pína
þig inn til þess að nærast örlítið.
Við erum þakklát fyrir þær stund-
ir sem okkur voru veittar saman en
við vitum jafnframt að þær verða
fleiri þar sem þú vakir nú yfir okkur
við hlið ömmu. Við kveðjum þig nú,
elsku afi, en höldum eftir minning-
unni um merkismanninn sem þú
hafðir að geyma. Hvíl í friði.
Við þökkum fyrir ástúð alla,
indæl minning lifir kær.
Nú mátt þú, vinur, höfði halla,
við herrans brjóst, hvíld er kær.
Í sölum himinsólin skín,
við sendum kveðju upp til þín.
(Höf. óþ.)
Halldór og fjölskylda,
Helga Magnea, Jóhann Steinar
og Íris Björk.
JÓHANN
VALDEMARSSON
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
GUNNHILDUR AAGOT GUNNARSDÓTTIR,
Þórðarsveig 1,
Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 29. ágúst.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug.
Sigurður Ingi Óskarsson,
Hansína Sjöfn Steingrímsdóttir, Ásgeir Baldursson,
Bergþóra Jóna Steingrímsdóttir, Valgarður Viðar Lúðvíksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við and-
lát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HELGA INGÓLFS IBSEN
fyrrv. skipstjóra og framkvæmdastjóra,
Leynisbraut 10,
Akranesi.
Þorbjörg Laufey Þorbjörnsdóttir,
Anna Mýrdal Helgadóttir, Hafsteinn Guðjónsson,
Lúðvík Ibsen Helgason,
Þorbjörg Helgadóttir, Heiðar Sveinsson,
Björgvin Ibsen Helgason,
Helgi Helgason, Þóra Þórðardóttir,
Kristján Helgason, Hjördís Frímann,
barnabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður,
systur, ömmu og langömmu,
JÓHÖNNU ÁSDÍSAR SOPHUSDÓTTUR,
Vallarbraut 15,
Akranesi.
Guð blessi ykkur öll.
Lúðvík Björnsson,
Sigurey Guðrún Lúðvíksdóttir, Þorsteinn Jóhannesson,
Björn Lúðvíksson, Þórunn Hreinsdóttir,
Fjóla Lúðvíksdóttir, Jóhann Sigurðsson,
Ósk Sophusdóttir,
Laufey Erla Sophusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar,
MARGRÉTAR ÞORGRÍMSDÓTTUR,
Hringbraut 50,
áður til heimilis
í Drápuhlíð 43.
Guðrún Þóroddsdóttir,
Sigrún Þóroddsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÝRAR VIGGÓSDÓTTUR,
Skúlagötu 2,
Stykkishólmi.
Ólafur Þórir Sighvatsson,
Eggert Bjarni Bjarnason, Hafdís Sverrisdóttir,
Sævar Berg Ólafsson, Hjálmfríður Guðjónsdóttir,
Guðbjörg Halldóra Ólafsdóttir, Þorvarður Einarsson,
Ægir Þór Ólafsson, Eydís Bergmann Eyþórsdóttir,
María Bryndís Ólafsdóttir, Ásgeir Héðinn Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kærar þakkir fyrir hlýhug og kveðjur við fráfall
EIRÍKS BALDVINSSONAR,
sem lést þriðjudaginn 24. ágúst sl.
Silja Sjöfn Eiríksdóttir,
Edda Völva Eiríksdóttir, Friðrik Theodórsson,
Vésteinn Rúni Eiríksson, Harpa Karlsdóttir
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
ERLENDAR EINARSSONAR
múrarameistara,
Tjarnarstíg 9,
Seltjarnarnesi.
Einar Erlendsson, Turid Erlendsson,
Erla Erlendsdóttir, Bragi Guðmundsson,
Árni Erlendsson, Inga Hrönn Pétursdóttir,
Snorri Erlendsson, Hanna Erlendsóttir,
Sigrún Erlendsdóttir, Jón Ingi Haraldsson,
Helgi Erlendsson, Lilja Brynjarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
GÍSLI GÍSLASON,
andaðist á St. Franciskusspítalanum þriðju-
daginn 31. ágúst síðastliðinn.
Hann verður jarðsunginn frá Narfeyrarkirkju á
Skógarströnd laugardaginn 11. september
kl. 13.00.
Gunnar Guðmundsson,
Margrét Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Undirskrift Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Minningar-
greinar