Morgunblaðið - 10.09.2004, Page 39
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2004 39
Norrænu samtökin NOBAB (Nordisk för-ening för syke barns behov) og Um-hyggja, félag til stuðnings langveikumbörnum, standa þessa dagana fyrir
ráðstefnu um málefni langveikra barna hér á landi.
Ráðstefnan ber yfirskriftina „Frá barnaspítala til
fullorðins spítala – hvenær verða börn fullorðin?“
og verður fjallað um þetta efni í heilan dag og það
skoðað frá sem flestum sjónarhornum. Þá verður
einnig fjallað um léttari efni, t.d. gildi menningar
inni á spítölum. Þar verður m.a. fjallað um það gagn
sem trúðar gera á finnskum spítölum.
Hvernig standa málefni þjónustu við langveik
börn hér á landi?
„Það er margt vel gert en við eigum enn langt
eftir. Málaflokkurinn er óendanlega stór og gleym-
um því ekki að það að eignast langveikt barn er
nánast samasemmerki við það að veröldin hrynji.
Þ.e. sú veröld sem foreldrarnir þekktu áður en
þessi einstaklingur fæddist er ekki lengur til og
verður aldrei. Þetta hefur gífurleg áhrif á alla fjöl-
skylduna sem á nóg með að berjast við tilfinninga-
lega hlið málsins, jafnvel í mörg ár, jafnvel alla ævi.
Það er því ekki boðlegt að stór hluti af starfskröft-
um þessara fjölskyldna skuli fara í það að berjast
við fjárhagsáhyggjur og kerfi sem kannski hefur
aldrei gert ráð fyrir því að svona einstaklingur
fæddist.
Dæmi um það sem við eigum langt í land með er
veikindaréttur foreldra með langveik börn. En víð-
ast er hann einungis örfáir daga á ári sem hrökkva
bara alls ekki neitt til. Flestir foreldrar búa einung-
is við 7–9 daga veikindarétt fyrir öll sín börn á ári.“
Hvernig stöndum við miðað við nágrannalönd?
„Í þessu máli, sem ég nefndi hér að ofan, stönd-
um við okkur illa. Sjúkradagpeningar eru víðast
hvar greiddir af almannatryggingafé svo allir sitja
við sama borð. Þar sem við stöndum okkur vel er
kannski fyrst og fremst smæð landsins að þakka.
Það höfum við í Umhyggju svo oft fengið að upplifa,
á því byggjum við tilveru okkar. Þetta skapar ná-
lægð sem ég held að sé ekki jafnríkulega til staðar á
hinum Norðurlöndunum.“
Hvað eru mikilvægustu málefnin í dag?
„Nákvæmlega núna erum við í Umhyggju auð-
vitað mjög upptekin af því að koma Sjónarhóli af
stað með sína starfsemi. En auðvitað erum við líka
upptekin af þessu málefni sem við ræðum á þessu
þingi, þ.e. að þegar einhver ungur einstaklingur
býr við þau ósköp að þurfa stöðugt á sjúkrahúsvist
og umönnun að halda þá standi kerfið einhuga að
baki honum í því að það sé honum sem léttbærast.
Baráttu fyrir bættum hag barna, veikra sem lang-
veikra, lýkur aldrei. Þeim verkefnum sem NOBAB
fást við hefur ekki fækkað á 25 árum, þau hafa bara
breyst.“
Heilsa | Ráðstefna um málefni langveikra barna á Radisson SAS Hótel Sögu
Barátta við kerfið ekki boðleg
Leifur Bárðarsson er
fæddur í Reykjavík árið
1948. Hann útskrif-
aðist frá Læknadeild HÍ
árið 1975 og varð sér-
fræðingur í barna-
skurðlækningum árið
1983 frá Gautaborg-
arháskóla. Þá nam
hann gæðastjórnun í
heilbrigðisþjónustu hjá
háskólanum í Bergen
árið 2000. Leifur starfar nú sem yfirlæknir
deildar gæðamála og innri endurskoðunar frá
2003. Leifur er varaformaður Umhyggju og
fulltrúi Íslands í stjórn NOBAB. Hann er giftur
og á tvær uppkomnar dætur og tvö barnabörn.
Silfureyrnalokkur í óskilum
FALLEGUR silfureyrnalokkur
fannst ofarlega á Tjarnargötunni
daginn eftir menningarnótt. Upplýs-
ingar í síma 552 5922 eftir kl. 18.
Gleraugu týndust
SJÓNGLERAUGU týndust á
Kringlukrá sl. laugardagskvöld.
Skilvís finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 893 5553.
Bíllykill í óskilum
BÍLLYKILL er í óskilum í Álna-
vörubúðinni í Hveragerði. Upplýs-
ingar á staðnum eða í síma 483 4517.
Nala er týnd
NALA er 10 mánaða gömul læða,
þrílit; gul, grá og hvít. Hún týndist
frá Garðabæ fyrir tæpri viku. Hún
var með gráa ól en er ekki eyrna-
merkt. Ef einhver hefur séð hana
vinsamlegast hringið í síma
564 2204, 897 2204 eða 894 2428.
Fress týndist í Grafarvogi
GULUR og hvítur fress tapaðist úr
gæslu úr Veghúsum 31, Grafarvogi,
sl. mánudag. Hann er gæfur og er
eyrnamerktur en ólarlaus. Þeir sem
geta gefið upplýsingar hringi í síma
695 6673. Fundarlaun.
Kettlingar fást gefins
KASSAVANIR kettlingar fást gef-
ins. Upplýsingar í síma 663 8715.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
„Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða-
markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA
er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan
ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“
Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir,
Allrahanda.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa
og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu.
www.menntun.is
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
Armband er hannað af Karli Guðmundssyni og Ríkharði Jónssyni, 925 sterling silfur kr. 44.900
ERNA
gull- og silfursmiðja.
Erna gull- og silfursmiðja, Skipholti 3, sími 552 0775.
Opnunartími alla virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-14
1924 2004
Líkamsvara sem
mótar línurnar
eins og sokkabuxur?
Ótrúlegt.
GEL SEM MÓTAR,
STYRKIR OG GRENNIR
TRÚÐU Á FEGURÐ
Sími: 568 5170
Kynning í dag
Haust- og vetrarlitirnir eru komnir,
tilboðspakkingar í ýmsum kremum
og margt fleira spennandi.
Veglegir kaupaukar.
h
ei
m
sæ
kt
u
w
w
w
.l
an
co
m
e.
co
m
Á opnu borði.
Norður
♠ÁD7
♥ÁKDG
♦DG10987
♣--
Vestur Austur
♠KG1086 ♠95432
♥5432 ♥--
♦-- ♦65432
♣KDG10 ♣432
Suður
♠--
♥109876
♦ÁK
♣Á98765
Suður spilar sjö hjörtu og fær út
laufkóng.
Hver er vinningsleiðin á opnu borði?
Lausn: Vandinn er stíflan í tíglinum.
Þar eð vestur á fjórlit í hjarta og engan
tígul má hvorki aftrompa hann strax
(þá vantar innkomu á frítígul) eða
reyna að taka ÁK í tígli áður en tromp-
in eru kláruð. Stíflan er hreinsuð þann-
ig: Sagnhafi tekur fyrsta slaginn á lauf-
ás og hendir tígli úr borði – alls ekki
spaða. Svo spilar hann tvívegis trompi
á blindan og stingur sjöu og drottningu
í spaða. Þá á hann eitt tromp eftir
heima en tvö í borði. Hann aftrompar
nú vestur og hendir tígli í síðasta
tromp blinds, og öðrum tígli í spaðaás.
Leiðin er þá greið fyrir tígla blinds.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
NÚ fer hver að verða síðastur að sjá
sýningu Hörpu Daggar Kjart-
ansdóttur í Galleríi Tukt í Hinu hús-
inu, en sýningin, sem samanstendur
af ljósmyndum og skúlptúrum sem
eru að hluta eða öllu leyti úr gifsi,
stendur til 11. september.
Vinnuheiti sýningarinnar er „Á
milli tveggja heima“, en á henni
kannar Harpa mörkin milli leiks og
raunveruleika. Að sögn Hörpu kalla
verkin fram ólík viðbrögð fólks og er
þeim ætlað að vekja siðferðislegar
spurningar.
Þetta er fyrsta einkasýning
Hörpu sem hefur nú nám í myndlist-
ardeild Listaháskóla Íslands, en hún
hefur áður tekið þátt í samsýningum
í Borgarnesi.
Harpa Dögg við eitt verka sinna.
Mörk leiks og
raunveruleika
SOFFÍA Sæmundsdóttir hefur opn-
að sýningu í sal Íslenskrar grafíkur í
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17,
hafnarmegin. Á sýningunni, sem
hún nefnir „Teikningar“, sýnir hún
stór verk unnin með viðarkolum á
pappír. Segir hún verkin tilraun til
að „vekja tilfinningu fyrir því sem
gæti verið landslag, óravíddir sem
hafa hvorki ákveðið upphaf né endi.
Fyrir mig er mikilvægt að klára ekki
verkið eða loka því heldur vekja upp
hughrif og þannig heldur sköpunin
áfram,“ segir Soffía.
Soffía hefur verið virk á íslenskum
myndlistarvettvangi undanfarinn
áratug og haldið fjölmargar einka-
sýningar og tekið þátt í samsýn-
ingum heima og erlendis. Á síðasta
ári lauk hún mastersnámi í myndlist
frá Mills College, Oakland, Kali-
forníu, þar sem aðalkennari hennar
var Hung Liu.
Sýningin er opin frá fimmtudög-
um til sunnudags frá kl. 14–18 og
lýkur 19. september.
„Teikningar“
í Hafnarhúsinu
Ein af „teikningum“ Soffíu.