Morgunblaðið - 16.10.2004, Qupperneq 1
Kertaljós og
krúttlegheit
Olga á Hótel Freyju ætlar að dekra
við gestina | Daglegt líf
Lesbók | „Alþjóðleg“ á okkar heimóttarlega hátt Jámenn
segja nei Börn | Hresstu upp á sköpunargáfuna! Íþróttir | Hauk-
ar töpuðu í París Groningen með tilboð í Kristján Örn
STOFNAÐ 1913 282. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Lesbók, Börn og Íþróttir
ÍSRAELSHER flutti í gær hermenn og skriðdreka
frá þremur byggðum Palestínumanna á norðurhluta
Gaza-svæðisins og hætti mannskæðasta hernaðin-
um þar frá því að uppreisn Palestínumanna hófst
fyrir fjórum árum.
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fyrirskip-
aði brottflutning hersveita frá Jebaliya-flótta-
mannabúðunum og íbúðahverfum tveggja bæja,
Beit Hanoun og Beit Lahiya. Hann ákvað þetta að
beiðni yfirmanna hersins, sem sögðu að meginmark-
mið hernaðarins hefði náðst. Bandaríkjastjórn hafði
einnig hvatt Ísraela til að hætta aðgerðunum.
Minnst 128 Palestínumenn féllu
Ísraelar hófu hernaðinn 29. september eftir að
flugskeytaárás var gerð á ísraelska landamærabæ-
inn Sderot. Að minnsta kosti 128 Palestínumenn
biðu bana í árásum Ísraela og tugir þeirra voru
óbreyttir borgarar, þeirra á meðal 18 börn og ung-
lingar, auk þess sem hundruð særðust. Fimm Ísr-
aelar lágu í valnum, þeirra á meðal tvö börn sem létu
lífið í árásinni á Sderot.
Ísraelskir skriðdrekar voru enn í grennd við
byggðir gyðinga á norðurhluta Gaza í gærkvöldi.
Heimildamenn í Ísraelsher staðfestu að hernaðinum
hefði verið hætt, meðal annars til að bæta aðstæður
íbúanna í föstumánuði múslíma, ramadan, sem hófst
í gær. Þeir lögðu þó áherslu á að hersveitirnar yrðu
áfram á svæðinu og ættu að hefja hernaðinn að nýju
ef fleiri flugskeytaárásir yrðu gerðar á ísraelska
bæi.
Skriðdrekar og jarðýtur Ísraelshers ollu mikilli
eyðileggingu í palestínsku byggðunum, lögðu hús í
rúst, tættu í sundur vatnsleiðslur og brutu raf-
magnsstaura.
Reuters
Hermenn í ísraelskri herstöð eftir að þeir fóru
frá palestínskum byggðum á Gaza-svæðinu í gær.
Ísraelar hætta
mannskæðum
hernaði á Gaza
Jebaliya-flóttamannabúðunum. AP, AFP.
VÍSINDAMENN segja að tilraunir hafi leitt í ljós í
fyrsta skipti að bóluefni gegn malaríu geti fækkað
dauðsföllum af völdum sjúkdómsins verulega.
Vísindamennirnir segja tilraunirnar vekja vonir
um að mikill árangur náist í baráttunni gegn mal-
aríu. Á ári hverju deyr rúm milljón manna af völd-
um sjúkdómsins, þar af um 700.000 börn, langflest
þeirra í Afríku sunnan Sahara.
Bóluefni, sem lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline
Bio hefur þróað í 20 ár, var reynt á um 2.000 börn-
um á aldrinum eins til fjögurra ára í Mósambík.
Niðurstaðan var að bóluefnið minnkaði hættuna
á því að börnin veiktust af malaríu um 30% og
hættan á alvarlegri malaríu minnkaði um 58%.
Bóluefnið hafði mest áhrif á börn undir tveggja
ára aldri, sem eru viðkvæmust fyrir sjúkdómnum,
því að það minnkaði hættuna á alvarlegri malaríu
meðal þeirra um 77%.
Vonast er til að hægt verði að taka bóluefnið í
notkun fyrir lok áratugarins.
Bóluefni gegn
malaríu lofar góðu
London. AFP, AP.
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Avion Group,
sem samanstendur af flugfélögunum Atlanta,
Íslandsflugi og breska leiguflugfélaginu Excel
Airways, tekur formlega til starfa um áramót-
in. Frá þessu var skýrt í gær. Félagið verður
eitt veltumesta félag landsins, með 72 millj-
arða króna ársveltu. Starfsmenn verða tæp-
lega 3.200. Til samanburðar má geta þess að
Flugleiðir veltu 38 milljörðum króna á síðasta
ári. Veltumesta félag landsins, Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna, velti 59 milljörðum króna í
fyrra og velta KB banka nam ríflega 51 millj-
arði króna.
Magnús Þorsteinsson, aðaleigandi og starf-
andi stjórnarformaður Avion Group, segir fé-
lagið stefna á skráningu á íslenskan hluta-
bréfamarkað og að höfuðstöðvar þess verði
hér á landi. „Það er okkur Íslendingum í blóð
borið að vera leiðandi í flugrekstri,“ segir
Magnús. „Við eigum langa sögu í þessum iðn-
aði, ekki eingöngu á Íslandi heldur um allan
heim.“ Meginstoðir samstæðunnar munu
verða tvær, að sögn Magnúsar, það eru sam-
einað félag Atlanta og Íslandsflugs annars
vegar og Excel-flugfélagið hins vegar. Þess
utan heyra undir samstæðuna viðhaldsfyrir-
tæki á Írlandi, viðgerðarverkstæði á Bret-
landi, afgreiðsla flugvéla í Keflavík og fleiri
félög sem tengjast rekstrinum.
Flugfélögin Air Atlanta Icelandic og Ís-
landsflug verða sameinuð um næstu áramót
og segir Magnús að hið sameinaða félag verði
langstærsta og öflugasta félag heims í leigu
flugvéla með áhöfn, viðhaldi og tryggingum.
Félagið mun reka um 50 flugvélar.
Velta Avion 72 milljarðar
Þrjú flugfélög
sameinuð í eitt
Þrjú flugfélög/14
ÁKVEÐIÐ var á fundi fram-
kvæmdastjórnar Sjómannasam-
bands Íslands í gær að kalla
samninganefnd sambandsins
saman eins fljótt og unnt er til að
fara yfir stöðuna í kjaraviðræð-
unum við LÍÚ og fá heimild til að
undirbúa atkvæðagreiðslu um
verkfall til að knýja á um lausn
deilunnar.
Ákveði sjómenn að hefja und-
irbúning að atkvæðagreiðslu um
verkfall munu útvegsmenn afla
sér heimildar til boðunar verk-
banns, að sögn Friðriks J. Arn-
grímssonar, framkvæmdastjóra
LÍÚ.
Næsti samningafundur í deil-
unni er boðaður á mánudaginn.
Að sögn Hólmgeirs Jónssonar,
framkvæmdastjóra Sjómanna-
sambandsins, verður fljótlega í
framhaldi af þeim fundi ákveðin
dagsetning fundarins með
samninganefndinni ef ekkert
þokast í samkomulagsátt.
Undirbúningur verkfallsboð-
unar tekur langan tíma. Reikna
má með að a.m.k. einn mánuður
færi í atkvæðagreiðslu um
heimild til boðunar verkfalls og
verði hún samþykkt færu þrjár
vikur í boðun sjálfs verkfallsins.
Ekkert hefur þokast í kjara-
deilu sjómanna og útvegs-
manna að undanförnu. „Við höf-
um verið í samningaviðræðum í
tíu mánuði og stöndum nánast í
sömu sporum og þegar við byrj-
uðum. Við erum að missa þol-
inmæðina,“ segir Hólmgeir.
„Við höldum bara áfram að
vinna að því að leysa málið,“
segir Friðrik. Að sögn hans hef-
ur ekkert nýtt komið upp í
kjaraviðræðunum við sjómenn.
„Þetta snýst um það að ef fækk-
ar í áhöfn, þá viljum við skipta
því sem sparast við það á milli
okkar. Það er sanngjarnt boð,“
segir hann
Sjómenn undirbúa
verkfallsaðgerðir
Viðbrögð útvegs-
manna yrðu að
sækja heimild til
boðunar verkbanns
♦♦♦
EDITH Piaf, þ.e.a.s. Brynhildur Guðjónsdóttir, lét ekki slá sig út af
laginu heldur hélt skemmtuninni áfram á tröppum Þjóðleikhússins
eftir að húsið var rýmt í gærkvöldi í kjölfar þess að eldur kviknaði í
feitipotti í Þjóðleikhúskjallaranum. Um 600 manns voru í húsinu
þegar brunavarnarkerfi þess fór í gang og urðu sumir gestirnir
nokkuð skelkaðir við það. Allt fór þó vel og tjón lítið í húsinu. Mikil
stemning var á tröppunum þegar leikarar og hljóðfæraleikarar
héldu uppi fjörinu þangað til sýningar hófust að nýju.
Morgunblaðið/Sverrir
Stuð á tröppunum eftir að leikhúsið var rýmt