Morgunblaðið - 16.10.2004, Page 14

Morgunblaðið - 16.10.2004, Page 14
14 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Komdu í næsta útibú, kanna›u máli› á kbbanki.is e›a hringdu í síma 444 7000. KYNNTU fiÉR HVERNIG fiÚ GETUR LÆKKA‹ GREI‹SLUBYR‹I fiÍNA ME‹ KB ÍBÚ‹ALÁNI – kraftur til flín! FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hefur keypt 30,9% hlut í breska leiguflug- félaginu Excel Airways og á nú 71,4% hlutafjár í félaginu. Flugfélög- in Atlanta og Íslandsflug verða sam- einuð um næstu áramót en á sama tíma tekur formlega til starfa nýtt eignarhaldsfélag, Avion Group, sem mun annast rekstur Excel Airways, Air Atlanta Europe, sameinaðs fé- lags Íslandsflugs og Air Atlanta Ice- landic, og annarra félaga í eigu þeirra. Stefnt er að skráningu hluta- bréfa Avion-samstæðunnar í Kaup- höll Íslands þegar fram í sækir. Hið nýja félag verður með höfuð- stöðvar á Íslandi og meginstarfsemi þess er rekstur alþjóðlegra flug- félaga og tengdrar starfsemi. Sam- anlögð velta fyrirtækjanna sem mynda Avion Group á árinu 2004 er, að sögn Magnúsar Þorsteinssonar stjórnarformanns og aðaleiganda samstæðunnar, yfir 1 milljarður Bandaríkjadala, eða 72 milljarðar ís- lenskra króna. Til samanburðar má geta þess að Flugleiðir veltu tæpum 38 milljörð- um króna á síðasta ári og veltumesta félag landsins á árinu 2003, SH, velti þá 59 milljörðum. „Það er okkur Íslendingum í blóð borið að vera leiðandi í flugrekstri. Við eigum langa sögu í þessum iðn- aði, ekki eingöngu á Íslandi heldur um allan heim,“ segir Magnús og upplýsir að stefnt verði að skráningu hlutabréfa í Avion Group á íslenskan hlutabréfamarkað. „Þetta er íslenskt félag og þess vegna liggur það ljóst fyrir að skrá það hér. Markaðurinn hefur verið ágætur, hann hefur verið að vaxa og mér finnst það styrkur fyrir markaðinn að fá til viðbótar þetta stórt alþjóðlegt félag. Flug- rekstur hefur engin landamæri og skiptir ekki öllu máli hvar félagið er staðsett.“ Yfirtökutilboð í Excel Með kaupum á 30,9% viðbótarhlut í Excel-flugfélaginu hefur Atlanta eignast 71,4% í félaginu og myndast því skylda til þess að gera eigendum minnihlutans yfirtökutilboð. Segir Magnús að slíkt tilboð verði gert í Bretlandi á næstu dögum. Hann vill ekki upplýsa um kaupverð hlutarins í Excel eða yfirtökuverð en staðfest- ir að þriðjungshluturinn hafi verið keyptur af kýpverska ferðaþjónustu- fyrirtækinu Libra Holidays sem átti 39% hlut fyrir. Segir hann að Libra muni halda eftir nokkrum hlut í fé- laginu. Til að gefa nokkra hugmynd um hugsanlegt kaupverð þá keypti Atl- anta 40,5% hlut í Excel í febrúar sl. á 3,8 milljarða króna. Sá hlutur var einnig keyptur af Libra. Öflugasta félag heims Flugfélögin Air Atlanta Icelandic og Íslandsflug verða sameinuð um næstu áramót og segir Magnús að hið sameinaða félag verði lang- stærsta og öflugasta félag heims í leigu flugvéla með áhöfn, viðhaldi og tryggingum. Velta þess fyrirtækis verður 34 milljarðar króna, eða tæp- lega helmingur af heildarveltu sam- stæðunnar og félagið mun reka um 50 flugvélar af rúmlega 60 vélum samstæðunnar. Forstjóri hins sameinaða félags verður Ómar Benediktsson, forstjóri Íslandsflugs. Ómar segir tilganginn með samruna félaganna vera hag- ræðingu. „Félögin hafa bæði verið mjög vaxandi á þessu sviði. Með þessu er verið að setja kraftinn sam- an í einn farveg, setja tvær ár saman í eitt risafljót,“ segir Ómar. Starfsemi í öllum heimsálfum Meginstoðir samstæðunnar munu verða tvær, að sögn Magnúsar, það eru sameinað félag Atlanta og Ís- landsflugs annars vegar og Excel- flugfélagið hins vegar. Þess utan heyra undir samstæðuna viðhalds- fyrirtæki á Írlandi, viðgerðarverk- stæði á Bretlandi, afgreiðsla flugvéla í Keflavík og fleiri félög sem tengjast rekstrinum. Magnús Þorsteinsson verður stærsti hluthafinn í Avion, en hann á um 70% hlut í Air Atlanta. Aðrir stærstu eigendur verða Arngrímur Jóhannsson, stjórnendur hjá Excel, Ómar Benediktsson og Gunnar Björgvinsson. Magnús verður starf- andi stjórnarformaður félagsins og Hafþór Hafsteinsson, núverandi for- stjóri Atlanta, verður framkvæmda- stjóri félagsins. Starfsmenn Avion-samstæðunnar verða tæplega 3.200 talsins, starfs- stöðvarnar yfir 20, og flugvélaflotinn telur 63 flugvélar. Þrjú flugfélög í eitt Avion Group annast rekstur alþjóðlegra flugfélaga – Er með veltumestu fyrirtækjum landsins og stefnir á skráningu í Kauphöll Morgunblaðið/RAX Flugrisi „Það er okkur Íslendingum í blóð borið að vera leiðandi í flug- rekstri,“ sagði Magnús Þorsteinsson á blaðamannafundi í gær. ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● NORSKI bankinn KredittBanken, sem Íslandsbanki hafði eignast um 98% hlutafjár í um síðustu mán- aðamót, skilaði hagnaði á þriðja fjórðungi þessa árs eftir að hafa ver- ið rekinn með tapi í langan tíma. Frá þessu er greint í frétt á vefmiðli norska útvarpsins, NRK. Segir í fréttinni að hagnaður Kred- ittBanken á þriðja ársfjórðungi hafi numið 7,7 milljónum norskra króna, sem jafngildir liðlega 80 milljónum íslenskra króna. Tilboðstímabil Ís- landsbanka í öll hlutabréf í Kreditt- Banken rann út í gær. Hagnaður hjá KredittBanken eftir langvarandi tap ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís- lands hækkaði um 0,15% í gær og var lokagildi hennar 3.854,84 stig. Þetta var fysti dagur þessarar viku sem vísi- talan lækkaði ekki. Viðskipti í Kaup- höllinni námu 14,6 milljörðum króna og þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir 7,1 milljarð, mest með bréf í Opn- um kerfum, fyrir 3,5 milljarða. Vísitöl- ur hækkuðu í New York en í Evrópu voru bæði hækkanir og lækkanir. Úrvalsvísitalan hætti að lækka ● ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR tilkynnti í gær að fram hefði farið aukaút- dráttur á húsbréfum. Heimild til þess er í samræmi við heimild skuldara hjá sjóðnum til aukaafborga eða uppgreiðslu skuldar fyrir gjalddaga. Sigurður Geirsson, forstöðumaður hjá Íbúðalánasjóði, segir aukaút- dráttinn ekkert hafa að gera með uppgreiðslur á lánum hjá sjóðnum að undanförnu. „Þetta er liður í þeirri áhættustýringu sem við tókum upp á miðju þessu ári. Verið er að jafna út eignir á móti skuldum til að koma jafnvægi á í rekstrinum.“ Aukaútdráttur liður í áhættustýringu ● SAMEIGINLEGUR hagnaður spari- sjóðanna í landinu fyrir skatta nam 3,2 milljörðum króna á árinu 2003. Eiginfjárhlutfall (CAD) var 15,5%, að því er segir í fréttatilkynn- ingu frá Sam- bandi íslenskra sparisjóða, en aðalfundur sambandsins var í gær. Í tilkynning- unni segir að markaðshlutdeild sparisjóðanna miðað við innlán sé 23%, sem sé næsthæsta markaðs- hlutdeild bankastofnunar á Íslandi. Þá hafi innlánsaukning á fyrstu átta mánuðum þessa árs verið yfir 10%. Sparisjóðirnir í landinu eru nú 24. Guðjón Guðmundsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Sam- bands íslenskra sparisjóða. Hann tekur við af Sigurði Hafstein hinn 1. nóvember næstkomandi. Sigurður hefur verið framkvæmdastjóri sam- bandsins frá árinu 1980. Guðjón lauk háskólaprófi í við- skiptafræði frá HÍ árið 1977 og Cand Merc prófi frá Verslunarháskólanum í Kaupmannahöfn árið 1984 með sér- hæfingu í hagnýtri upplýsingatækni, ráðgjöf og stefnumótun fyrirtækja. Guðjón var kjörinn formaður KR í fyrra. Eiginkona hans er Heiða Elín Jóhannsdóttir og eiga þau tvö börn. Hagnaður sparisjóð- anna 3,2 milljarðar              !  " #  $  # +,  -&. *   -&. *!# /#$ $ +&  * - )  0*  1 )  2 2, /  3 $ . 3.  $ 4' 4 /#$  5 %  " & '   /   ! )  /   !  . ! 6! *7! !$8  96'$ :!&  0   0  1 $;  6!  <=' 4)/ 4 #$>  4!  4;.  4  ! ! '!$8 ' ? ?8  ! !  @   !  9&  %4; (  )  *+ + /    A8$! 1  )  ?; $; @#8 $>  )  4 !  ! !               %  % %    %  % % %   % % % % %  *8  $# $8  ! ! %  % % % % % % % % % % % % % % % % % % % % % % % % % % % B CD B % CD B %CD B  CD B %CD % % B  CD B %CD B % CD % B CD B CD % B %CD % B CD % B % CD % B CD B %CD B  CD % B CD B CD % % % % % % % % % % % %   ! .   ? &! & ( 0. 4                         %  %  %   %   %   %   % % % % %                  %      %                      %         %     @ ! . E7  +?  F +'  /   ! .         % % %  %   % %   %  % % % %  KÖGUN hf. keypti í fyrradag tæp- lega 33% hlut í Opnum kerfum Group hf. og á nú samtals 68,7% hlut í félaginu. Samkvæmt tilkynningu frá Kögun verður öðrum hluthöfum í Opnum kerfum Group (OKG) gert yfirtökutilboð, í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti. Í kjölfar yfirtöku er síðan stefnt að því að af- skrá OKG úr Kauphöll Íslands. Viðskiptin í fyrradag fóru fram á genginu 26,8, sem var 5% yfir loka- verði hlutabréfa í OKG þann dag. Kaupverð þess hlutar sem Kögun keypti var tæplega 2,7 milljarðar. Seljendur hlutabréfanna í OKG voru Straumur Fjárfestingarbanki, sem seldi alls 5,44% hlut, Íslands- banki, sem seldi 19,55% og Frosti Bergsson, stjórnarformaður OKG og félag tengt honum, sem seldi sam- tals 7,95%. Greitt var fyrir hlutina með reiðufé að hálfu og með eigin hlutum í Kögun að hálfu. Í tilkynningu Kögunar segir að stjórn félagsins muni boða til hlut- hafafundar á næstunni og leggja fram tillögu um hækkun hlutafjár til að greiða hluta kaupverðsins á OKG. Straumur Fjárfestingarbanki verður stærsti einstaki hluthafinn í sameinuðu félagi Kögunar og Op- inna kerfa Group með um 16% hlut. Styrkir útrás félagsins Gunnlaugur M. Sigmundsson, for- stjóri Kögunar, segist ánægður með að náðst hafi sátt við stærstu hlut- hafana í OKG. Kögun sjái tækifæri með kaupunum, sem geri félaginu kleift að verða það stórt og fjölbreytt að hægt verði að sækja í ríkara mæli út fyrir landsteinana. Nú þegar séu kortlögð ýmis tækifæri í þeim efnum sem þó sé hægt að segja frá nú. „Við höfum lýst yfir áhuga á því að samstæðan vaxi í þrjár stoðir,“ segir Gunnlaugur. „Í fyrsta lagi er það gamla kjarnastarfsemin, sem er varnariðnaðurinn. Síðan er það við- skiptahugbúnaður og Microsoft, sem við höfum áhuga á. Í þriðja lagi þurfa Opin kerfi Group að halda áfram að vera til í núverandi mynd og vaxa á eigin forsendum.“ Sameinað félag er spennandi Frosti Bergsson segir að kaup Kögunar í OKG séu mjög ásættanleg fyrir hluthafa félagsins. Velta sam- einaðs félags á þessu ári verði í kringum 20 milljarðar og starfs- menn séu yfir eitt þúsund talsins. „Verðmæti Opinna kerfa Group er miðað við þessi viðskipti um 8,1 millj- arður króna. Ég tel að það sé mikil viðurkenning fyrir starfsmenn fyr- irtækisins að hafa skapað öll þessi verðmæti því þau eru fyrst og fremst hjá því hæfa fólki sem starfar hjá Opnum kerfum Group,“ segir Frosi. Á athugunarlista Kauphallarinnar Hlutabréf Opinna kerfa Group voru færð á athugunarlista Kaup- hallar Íslands í gær. Í tilkynningu frá Kauphöllinni segir að þetta sé vegna yfirtökuskyldu sem myndast hafi í félaginu. Þá segir að yfirtöku- tilboð þurfi að leggja fram til ann- arra hluthafa félagsins innan fjög- urra vikna eftir að yfirtakan átti sér stað, samanber lög um verðbréfavið- skipti. Kögun eignast meirihluta í OKG Morgunblaðið/Kristinn Afskráð Kögun stefnir að því að afskrá Opin kerfi Group úr Kaup- höll Íslands. <G 4HI  %#"% %#%$ C C /?4A J+K #& #" C C L+L  32K #&' '% )* +*, C C 0/K <  $ %#"$ +*& +*, C C MLAK J&N :& #$,, "#" C C )*% )* +*% +*, )*, )*,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.