Morgunblaðið - 16.10.2004, Page 15

Morgunblaðið - 16.10.2004, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 15 ERLENT HÓPUR íraskra kvenna bíður fyrir framan inngang Abdul-Qadir- moskunnar í Bagdad í gærkvöldi viðbúinn því að rjúfa föstu sína þeg- ar fyrsti dagur ramadan, föstumán- aðar múslíma, var að kveldi kom- inn. Í föstumánuðinum neyta sanntrúaðir múslímar ekki matar eða drykkjar en þegar sólin er sest geta þeir byrjað að borða á ný. Múslímar í Írak halda ramadan í ár í skugga mikillar vargaldar og ástandið var reyndar ekki miklu betra fyrir ári, þá dóu næstum 50 manns í árásum í Bagdad á fyrsta degi ramadan. Bandaríkjamenn hafa staðið fyrir hernaðaraðgerð- um í borginni Fallujah undanfarna tvo daga og féllu a.m.k. 8 Írakar í fyrrakvöld. Fallujah er helsta vígi uppreisnarmanna í Írak. Reuters Fastan rofin í Bagdad ALEXANDER Lúkashenko hefur fram til þessa látið gagnrýni sem vind um eyru þjóta. Og engar líkur eru á að breyting verði þar á í kosningum á morgun, sunnudag, þegar íbúum Hvíta-Rússlands verður gefinn kostur á að breyta stjórnarskrá landsins til að tryggja að forsetinn geti þjónað þegnum sínum þriðja kjörtímabilið í röð. Raunar má telja fullvíst að vilji Lúkashenko nái fram að ganga í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun. Hann er vanur að fá sitt fram og síðan sakar ekki að stjórnarandstaðan er ýmist í felum, í útlegð eða í fangelsi. Hvar sem komið er blasir við ásjóna forset- ans. Ástandið minnir mjög á Sovétríkin sálugu. „Kjósið í þágu Hvíta-Rússlands“ sagði á for- síðu ríkisdagblaðsins Sovyetskaja Belorusia. Með fréttinni fylgdi mynd af Lúkashenko, skælbrosandi að sjálfsögðu þar sem hann hélt á lítilli telpu en hún bar rauðan trefil sem minnti mjög á ungliðahreyfingu sovéska kommúnistaflokksins. Vísunin til Sovétríkjanna var vel við eigandi því Hvít-Rússar hafa löngum átt erfitt með að skilgreina sig sem þjóð og sakna þess greini- lega að tilheyra ekki lengur stóru sambands- ríki. Rússar og fleiri Evrópuþjóðir hafa lengst- um ráðið landinu en djúp tilvistarkreppa hefur einkennt samfélag Hvíta-Rússa frá því að Sov- étríkin liðu undir lok. Þær tíu milljónir manna sem í Hvíta-Rússlandi búa hafa mátt þola ein- angrun á alþjóðavettvangi jafnt í pólitískum sem viðskiptalegum efnum. Taumlaus persónudýrkun Lúkashenko, sem stýrði samyrkjubúi á sovéttímanum, hefur leitast við að fylla þetta tómarúm. Persónudýrkun hefur reynst áhrifa- mikið tæki í því efni. Stuðningsmenn hans nefna hann „batka“ eða „pabba“ og fer ekki á milli mála að skipun hefur verið gefin í þá veru. Nú er svo komið að Lúkashenko og nánustu undirsátum hans hefur verið bannað að ferðast til Bandaríkjanna og aðildarríkja Evrópusam- bandsins. Þeir eru sakaðir um ólöglega vopna- sölu og kúgun bæði gagnvart stjórnarandstöð- unni og frjálsri fjölmiðlun í landinu. Engu að síður er búist við ágætri þátttöku í kosningunum á morgun en um sjö milljónir manna eru á kjörskránni. Síðara kjörtímabili Lúkashenko lýkur árið 2006 og þar með ætti að hann að leggja niður völd samkvæmt stjórnarskrá Hvíta-Rússlands. Nú geta lands- menn hins vegar samþykkt tillögu um breyt- ingu á stjórnarskránni þess efnis að Lúk- ashenko leyfist að bjóða sig fram þriðja sinni. Verði tillagan samþykkt mun hann því ríkja til 2010, hið minnsta, endist honum líf og heilsa. Jafnframt fara fram þingkosningar en 110 fulltrúar sitja á þingi Hvíta-Rússlands. Vestræn ríki hafa fordæmt þjóðaratkvæða- greiðsluna og hefur sú gagnrýni fallið í grýttan svörð. Lúkashenko hefur lýst yfir því að stuðn- ingsmenn hans muni vinna öll sætin á þingi. Ekki að það breyti miklu, þing landsins gerir fátt annað en staðfesta ákvarðanir forsetans. Stjórnarandstaðan hefur nú aðeins fjóra fulltrúa á þingi. Sjá þeir iðulega ekki ástæðu til að mæta til þingfunda. Og stjórnarandstaðan telur tilefni til bjartsýni vandfundin nú um stundir. „Ríkisstjórnin er þegar búin að ákveða niðurstöðu kosninganna og þær eru hreint formsatriði. Lúkashenko er hafinn yfir lögin og stjórnarskrána,“ segir Anatolíj Leb- edko, leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Hann á yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir að hafa „rægt“ forsetann á opinberum vettvangi. Stórfelld kosningasvik Þótt atkvæðagreiðslan fari formlega fram á morgun hófst hún í raun á þriðjudag þegar kjósendur voru hvattir til að hraða sér á kjör- fund. Persónuskilríkja er ekki krafist þegar menn greiða atkvæði og búist er við að um helmingur kjósenda hafi greitt atkvæði sitt fyrr í vikunni. Stjórnvöld segja að þessi háttur hafi verið hafður á til að tryggja að kjósendur í dreifbýli geti tekið þátt en samgöngukerfi Hvíta-Rússlands er víða frumstætt. Stjórnarandstaðan segir hins vegar að Lúk- ashenko og menn hans hafi iðulega beitt þess- ari aðferð í kosningum í landinu. Með þessu móti megi breyta úrslitum kosninga. Andstaðan er mest á meðal ungs fólks og hafa Lúkashenko og menn hans reynt að biðla til þess m.a. með ókeypis rokktónleikum. Talið er að um helmingur yngri kjósenda kunni að hafna forsetanum þrátt fyrir að hafa sætt margvíslegum þrýstingi. Lúkashenko boðaði til þjóðaratkvæða- greiðslu árið 1996 en þá var kjörtímabil hans lengt úr fimm árum í sjö. Þessi gjörningur var fordæmdur víða um heim og mótmæli bloss- uðu upp í Hvíta-Rússlandi. Liðsmenn öryggis- lögreglunnar börðu þau niður. Lúkashenko hét landsmönnum því á forsíðu Sovyetskaya Belorusia á fimmtudag að hann myndi virða vilja fólksins. „Þjóðarviljinn, ákvörðun þjóðarinnar, er mér heilagur,“ sagði hann. „Ég er viss um að þið munið láta heil- brigða skynsemi og mannvit ráða ákvörðun ykkar og að þið munið kjósa rétt,“ sagði hann. Ræður „pabbi“ eina ferðina enn? Alexander Lúkashenko hyggst enn lengja valdaskeið sitt með því að knýja fram breytingu á stjórnarskrá Hvíta-Rúss- lands í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer á morgun. Hann lætur alla gagnrýni sem vind um eyru þjóta. AP FÉLAGAR í rússneska Yabloko-flokknum halda á lofti mynd af Alexander Lúkashenko með áletruninni: „Setjum hann á sakamannabekkinn.“ Myndin var tekin á fimmtudag er fram fóru mótmæli gegn einræðisstjórn Lúkashenkos við sendiráð Hvíta-Rússlands í Moskvu. Á þaki byggingarinnar blaktir fáni H-Rússlands en Lúkashenko ákvað á sínum tíma að fáninn sem notaður var þegar landið var eitt lýðvelda Sovétríkjanna skyldi á ný verða þjóðfáni H-Rússa. Minsk. AFP. Mótmæli í Moskvu ÆÐSTI dómstóll Ítalíu hefur stað- fest dóm áfrýjunardómstóls, sem í fyrra sýknaði Giulio Andreotti, fyrr- um forsætisráðherra, af ákæru um samstarf við ítölsku mafíuna. Þetta er þriðji dómurinn sem kveðinn er upp í máli sem ítalskir fjölmiðlar hafa kallað „réttarhöld aldarinnar“, og er þetta endanlegur úrskurður. Andreotti, sem er 85 ára, var sjö sinnum forsætisráðherra Ítalíu og situr nú í öldungadeild ítalska þingsins. Hann hefur ávallt sagt, að hann sé fórnarlamb samsæris mafíunnar, sem hafi logið á hann sökum í hefndarskyni. „Ég er glaður yfir því að þessum málarekstri fyrir dómstólum er lokið og að ég er enn á lífi til að verða vitni að þessum lyktum,“ sagði Andreotti í gær en hann má með réttu kalla einn af allra áhrifamestu stjórnmálamönn- um samtímans á Ítalíu. Málareksturinn hófst fyrst fyrir dómstólum í Palermo á Sikiley árið 1993. Árið 1999 var Andreotti sýkn- aður af öllum ákærum. Áfrýjunar- dómstóll sýknaði hann einnig í fyrra en þar var þó gerður greinarmunur á milli þess sem gerðist fyrir 1980 og eftir það ár. Var Andreotti sýknaður af ákæru fyrir að hafa veitt mafíunni vernd á meðan hann var við völd eft- ir 1980. Dómurinn sem féll í gær staðfestir þessa niðurstöðu, segir hugsanlegar sakir fyrir árið 1980 fyrndar og að engar sannanir séu fyrir því að Andreotti, sem seinast var forsætisráðherra 1992, hafi hald- ið uppi tengslum við mafíuna eftir 1980. Ellefu ára málarekstri lokið Dómstóllinn varð því ekki við kröfu lögmanna Andreottis að hreinsa nafn hans að fullu og öllu leyti og fréttaskýrendur segja því enn nokkurn skugga falla á feril Andreottis. Verjendur hans lýstu engu að síður ánægju með niðurstöð- una í gær. „Þetta gekk vel, fyrir okk- ur skiptir mestu að þessum ellefu ára langa málarekstri lauk hér,“ sagði verjandinn Giulia Bongiorno. Á síðasta ári sýknaði hæstiréttur Ítalíu Andreotti einnig af ákæru fyr- ir að hafa skipað mafíunni að myrða blaðamanninn Mino Pecorelli árið 1979. Undirréttur hafði í nóvember 2002 lýst Andreotti sekan af þessari ákæru og olli sá dómur miklum titr- ingi í ítölsku þjóðlífi. Andreotti sýknaður af hæstarétti Róm. AP. Giulio Andreotti MORGAN Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Zimbabwe, sagðist í gær vona að sýknudómur, sem kveðinn var upp yfir honum fyrr um daginn, gæti orðið grundvöllur þjóðarsáttar og lausnar á deilum í landinu. Tsvang- irai var sýknaður af ákæru um landráð en sak- sóknarar sökuðu hann um að hafa lagt á ráðin árið 2001 að myrða Robert Mugabe, forseta landsins. Eftir að dómurinn var kveðinn upp braust út mikill fögnuður meðal stuðningsmanna Tsvangirais sem höfðu safnast saman utan við dóm- húsið í Harare, höfuðborg Zimb- abwe. Lögregla brást hart við og beitti táragasi og kylfum gegn fólk- inu sem leitaði skjóls í nærliggjandi verslunum og húsagörðum. Átti yfir höfði sér dauðadóm Dómarinn sem sýknaði Tsvang- irai, Paddington Garwe, sagði ákæruvaldinu ekki hafa tekist að færa óyggjandi sönnur á að Tsvang- irai hefði gerst sekur um landráð. Hefði Tsvangirai verið fundinn sek- ur þá hefði hann hugsanlega átt yfir höfði sér dauðadóm. Tsvangirai átti að hafa lagt á ráðin um morðið á hinum umdeilda Robert Mugabe, forseta Zimbabwe, fyrir forsetakosningarnar 2002. Mugabe sigraði í þeim kosningum en Lýð- ræðishreyfingin og erlendir kosn- ingaeftirlitsmenn sögðu gríðarlegt kosningasvindl hafa einkennt kosn- inguna. Vonast eftir þjóð- arsátt Harare. AFP. Morgan Tsvangirai

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.