Morgunblaðið - 16.10.2004, Page 22
Lokahönd á verkið Jón Karl Ragnarsson trésmíðameistari var í vikunni að ljúka við frágang utanhúss.
Eyrarbakki | Um helgina verður því
fagnað að endurbyggingu Eggjaskúrsins
á Eyrarbakka er lokið en skúrinn stend-
ur við Húsið sem hýsir Byggðasafn Ár-
nesinga. Lýður Pálsson safnstjóri segir
að sumum hafi þótt skrýtinn þessi áhugi
heima-manna á að byggja skúr sem bar
svo einkennilegt nafn. Skúrinn ætti sér
hins vegar merkilega sögu og hann
sagði almenna ánægju með að tekist
hefði að koma honum upp. Það mætti
ekki síst þakka einstökum áhuga og vel-
vilja Vestur-Íslendinga sem rektu ættir
sínar til Eyrbekkinga.
Lýður sagði að þegar ákveðið var að
flytja Byggðasafn Árnesinga til Eyr-
arbakka og koma því fyrir í Húsinu
hefðu menn velt fyrir sér framtíðarupp-
byggingu á safnsvæðinu. Í skýrslu frá
1993 hefði verið lagt til að Eggjaskúrinn
yrði endurbyggður. Það að af fram-
kvæmdum hefði orðið
mætti ekki síst þakka
áhuga Vestur-Íslend-
inga á að minnast
Eyrbekkinga sem
fluttust vestur um
haf. Arni Richter, sem
gert hefur út ferjur í
Wisconsin, en ein
þeirra bar nafnið
Eyrarbakki, sýndi
málinu mikinn áhuga. Niðurstaðan hefði
orðið sú að hann hefði ákveðið að leggja
fram 10.000 dollara til byggingar Eggja-
skúrsins.
Byggður fyrir fé frá
Vestur-Íslendingum
Lýður sagðist upphaflega hafa reikn-
að með að bygging skúrsins kostaði 2–3
milljónir króna en þegar í ljós kom að
kostnaðurinn yrði 4–5 milljónir hefði
orðið að fresta framkvæmdum. Tekist
hefði að fjármagna byggingu með fram-
lagi frá ríkinu, Byggðasafni Árnesinga
og styrk frá Vestur-Íslendingunum
Hannesi M. Andersen og Jeannie Roon-
ings, sem hefðu lagt fram 10.000 dollara
til viðbótar við framlag Arna. Fram-
kvæmdir hefðu því hafist á seinasta ári.
Lýður sagði að skúrinn yrði nýttur til
sýningarhalds. Þar yrði komið fyrir
fugla- og eggjasafni og gerð grein fyrir
sögu og rannsóknum Peter Nielsen sem
löngum dvaldi í Eggjaskúrnum. Þar yrði
ennfremur skjöldur til minningar for-
feður Vestur-Íslendinganna sem fluttu
frá Eyrarbakka til Vesturheims.
Einnig væri fyrirhugað að Fugla-
verndarfélag Íslands fengi þar pláss til
að kynna fuglafriðlandið í Flóa en gert
hefði verið fram að þessu.
Uppbyggingu Eggjaskúrsins á Eyrarbakka lokið
Ýmsum fannst nafnið
á skúrnum skrýtið
Lýður Pálsson
22 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
„ÞEGAR við heimsóttum Lýð á sín-
um tíma sagði hann okkur frá
áformum um uppbyggingu Eggja-
skúrsins. Við Arni sögðum við
hann: „Farðu bara af stað með
þetta. Við munum hjálpa þér að
ljúka þessu,““ sagði Hannes M.
Andersen sem er einn þeirra sem
koma að fjármögnun Eggjaskúrs-
ins, en hin eru Arni Richter og
Jeannie Ronnings.
Hannes sagðist hafa komið til Ís-
lands fyrir nokkrum árum ásamt
Arna Richter og heimsótt Húsið á
Eyrarbakka. Lýður Pálsson hefði
tekið afar vel á móti þeim og í
framhaldinu hefði hafist samstarf
um fjármögnun Eggjaskúrsins.
Afi og amma Hannesar, Ólafur
Hannesson og Guðrún Vigfús-
dóttir, fóru frá Íslandi 1872 og
1873. Þau giftu sig og árið 1874
fæddist móðir Hannesar, Guðrún
Soffía, en hún er fyrsta barn ís-
lenskra foreldra sem fæddist eftir
að Íslendingar hófu landnám í
Vesturheimi.
Hannes verður viðstaddur opnun
Eggjaskúrsins um helgina og hann
ætlar þá að færa Byggðasafni Ár-
nesinga giftingarvottorð afa síns
og ömmu. Auk þess mun hann af-
henda safninu skjöld til minningar
um forfeður gefendanna.
„Við mun-
um hjálpa
þér að ljúka
þessu“
EGGJASKÚRINN tengist nafni Peters Nielsens órjúf-
anlegum böndum því heimildir segja skúrinn hafa verið
afdrep hans, aðstöðu til rannsókna á fuglum og er nafn-
gift skúrsins komin af eggjasafni Nielsens sem hefur
verið einstakt á sínum tíma. Peter Nielsen var versl-
unarstjóri við Lefolii-verslun á Eyrarbakka frá 1887 til
1910 og dvaldist á Eyrarbakka nær samfleytt frá 1872
til 1929.
Lítið er í sjálfu sér vitað um sögu Eggjaskúrsins þó
að mikið sé til af ritum, greinum og handritum sem
rekja má til rannsókna í skúrnum.
Byggingaár er óþekkt. Ljósmyndir Sigfúsar Ey-
mundssonar, sem teknar voru 1884 eða 1886 sýna skúr
á einni hæð, þakið er rislaust og skúrinn ekki eins veg-
legur og sjá má á ljósmyndum teknum síðar.
Enn stuðst við rannsóknir Nielsens
Peter Nielsen var fæddur á Jótlandi árið 1844. Hann
gekk í danska herinn og tók þátt í stríðinu við Þjóð-
verja árið 1864. Þar særðist hann á höfði og hafði svart-
an blett bak við eyrað sem hann fékk eftir þann áverka.
Nielsen stundaði fuglaathuganir frá 1875 til 1920 og
styðjast fuglafræðingar enn þann dag í dag við athug-
anir hans. Hann safnaði fuglshömum og eggjum ís-
lenskra fugla og varð safn hans stórt í sniðum. Fékk
Nielsen bændur til að safna fyrir sig eggjum gegn
greiðslu og rak umfangsmikla verslun með egg og
fuglshami og seldi erlendum söfnum.
Aðstöðu til rannsókna sinna hafði hann í Eggjaskúrn-
um og má rekja nafn-giftina til mikils fjölda úrblásinna
eggja og uppstoppaðra fugla sem hann safnaði. Fugla-
verndunarsinni var Nielsen þótt hann verslaði með egg.
Greinar Peters Nielsen um haförninn, geirfuglinn, ís-
lenska fálkann, hrafninn, svaninn (álftina) og rjúpuna
eru til vitnis um það en greinar um náttúruvísindi,
einkum um fuglaathuganir birtust í blöðum hér og er-
lendis, sérstaklega eftir að hann hætti verslunar-
störfum. Skrif hans um haförninn fjölluðu um rök fyrir
friðun hans og benti Nielsen á að haförninn væri að
deyja út vegna refaeitrunar. Var Nielsen aðal-
hvatamaður þess að sett voru lög á Alþingi í nóvember
1913 um friðun íslenska hafarnarins.
Á sama hátt er talið að með greinaskrifum um ís-
lenska fálkann hafi Nielsen tekist að koma í veg fyrir
algjöra útrýmingu þessa tignarlega fugls. Hann hvatti
rjúpnaveiðimenn til að beita sársaukalausum aðferðum
við veiðar sínar og að veiða rjúpuna í hóflegu magni.
Greinaskrif Nielsens um geirfuglinn voru mönnum víti
til varnaðar. Nielsen benti á að hrafninn sæi um að
eyða hræjum sjálfdauðra dýra. Hann skrifaði bændum
um allt land og bað um upplýsingar um varpstaði og
fuglategundir og birti síðan greinar um útbreiðslu ein-
stakra fuglategunda. Nielsen sinnti auk þess brim- og
veðurathugunum á Eyrarbakka frá 1881 til 1910 og
skrifaði um þessar athuganir í blöð.
Var frumkvöðull í
rannsóknum á
fuglum hér á landi
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
!
"
"# #$
#% &#
# $#
'
()*#
+
,# &
#
#
&
& --#
&###&
&##
$! #
.
'
/' #/0
1023//2
+
,# 11
'
%
&$# &#
%
4 & %
&#
# - &$#
'
5 $#
-#
#
&
#
&#
2
&6$#6 7
8
'
#
#&
$
#
#
* 9
#!
2 ! #
&#: &
; $!
2
"
# #
&+
#*<$
'
##!
$!
" $
!&
#
=#> ,#<
%&
& $! #!
5) >
##
?'
@0/0AB/ @0/0